Virði útgerða sem skráðar eru á markað hefur aukist um 142 milljarða á tíu mánuðum

Eign­ar­hlutur þeirra fámennu hópa sem eiga um eða yfir helm­ings­hlut í Síld­ar­vinnsl­unni og Brim hefur sam­an­lagt hækkað um næstum 80 millj­arða frá því í maí í fyrra. Stærstu hluti þeirra verð­mæta hefur runnið til Samherja og Guð­mundur Krist­jáns­sonar.

Fyrir rúmum tíu mán­uðum lauk hluta­fjár­út­boði Síld­ar­vinnsl­unnar og í lok maí 2021 voru við­skipti með bréf félags­ins, sem er eitt stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins, tekin til við­skipta í Kauphöll. Við það voru tvö útgerð­ar­fyr­ir­tæki skráð á markað hér­lendis, en fyrir var Brim sem hefur verið á mark­aði frá 2014.

Fyrir vikið geta almenn­ingur og fag­fjár­festar keypt hluti í þessum útgerðum sem stendur ekki til boða í öðrum fyr­ir­ferða­miklum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum hér­lendis.

Í dag eiga líf­eyr­is­sjóðir lands­ins sam­an­lagt að minnsta kosti tæp­lega 19 pró­sent beinan hlut í Síld­ar­vinnsl­unni sem met­inn er á tæp­lega 32 millj­arða króna. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eiga sömu­leiðis að minnsta kosti sam­an­lagðan 33,4 pró­sent hlut í Brimi sem er met­inn á 59 millj­arða króna. Þarna er um að ræða eign almenn­ings í gegnum líf­eyr­is­sjóða­kerfið. En mest eiga hópar tengdra útgerð­ar­manna, sem halda á um eða yfir helm­ings hluta­fjár í félög­unum tveimur.

Eign­ar­hlutir í þessum einu tveimur útgerð­ar­fyr­ir­tækjum lands­ins sem skráð eru á markað hafa hækkað gríð­ar­lega í verði á síð­ustu tíu mán­uðum. Mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar hefur auk­ist um 67 pró­sent, eða 67,7 millj­arða króna, og var i lok dags á þriðju­dag 169 millj­arðar króna. Mark­aðsvirði Brims hefur á sama tíma­bili auk­ist um 75 pró­sent, eða 74 millj­arða króna, og var í lok dags á þriðju­dag 176,7 millj­arðar króna.

Sam­an­lagt mark­aðsvirði þess­ara tveggja útgerð­ar­fyr­ir­tækja var því 345,7 millj­arðar króna.

Loðnukvóti lykilatriði

Brim er það íslenska útgerð­ar­fyr­ir­tæki sem heldur á mestum kvóta. Í síð­ustu sam­an­tekt Fiski­stofu fór Brim yfir tólf pró­sent lög­bundið hámark og þurfti að selja frá sér afla­heim­ildir í kjöl­farið. Þær voru seldar til stærsta eig­anda Brims, Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, og Brim heldur nú á rétt undir tólf pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Síld­ar­vinnslan er í þriðja sæti yfir það útgerð­ar­fyr­ir­tæki sem heldur á hæstri hlut­deild af kvóta, eða 9,41 pró­sent hans. Sam­an­lagt halda þessi tvö skráðu fyr­ir­tæki sam­tals á um 21,4 pró­sent af öllum afla­heim­ildum lands­ins. Aðilar þeim tengdir halda svo á tölu­verðum hluta til við­bótar líkt og lesa má um hér að neðan.

Stóra ástæðan fyrir því að mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar og Brims hafa hækkað jafn mikið og raun ber vitni er úthlutun á loðnu­kvóta í fyrra­haust. Engum slíkum kvóta hafði verið úthlutað í tvö ár en Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra sem var hættur á þingi en beið myndun nýrrar rík­is­stjórnar á ráð­herra­stóli, ákvað að úthluta stærsta kvóta sem úthlutað hafði verið í tæpa tvo ára­tugi, rúm­lega 900 þús­und tonn. Kvótinn var síðan skertur um 34.600 tonn í febr­úar síð­ast­liðnum eftir mæl­ingar á stofn­inum. Vænt­ingar eru til þess að loðnu­ver­tíðin muni skila útgerðum lands­ins sem stunda slíkar upp­sjáv­ar­veiðar yfir 50 millj­örðum króna í nýjar tekjur.

Eitt af síðustu stóru verkum Kristjáns Þórs Júlíussonar í sjávarútvegsráðuneytinu var að undirrita reglugerð um úthlutun á stærsta lóðnukvóta sem úthlutað hefur verið í næstum 20 ár. Það gerði hann 13. október í fyrra.
Eitt af síð­ustu stóru verkum Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu var að und­ir­rita reglu­gerð um úthlutun á stærsta lóðnu­kvóta sem úthlutað hefur verið í næstum 20 ár. Það gerði hann 13. októ­ber í fyrra.

Þrjú fyr­ir­tækið fengu 56,5 pró­sent af þeim loðnu­kvóta sem var úthlutað. Ísfélag Vest­manna­eyja, einka­fyr­ir­tæki að mestu í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og barna hennar, fékk mest, 19,99 pró­sent. Síld­ar­vinnslan og tengd félög komu þar á eftir með 18,5 pró­sent og Brim var í þriðja sæti með um 18 pró­sent. Eftir að þetta var til­kynnt rauk mark­aðsvirði skráðu félag­anna tveggja upp.

Seldu fyrir tugi milljarða en virðið hefur hækkað um enn hærri tölu

Hluta­fjár­út­boði Síld­ar­vinnsl­unn­ar lauk 12. maí í fyrra. Alls voru til sölu 498,6 millj­ónir hluta, alls 29,3 pró­sent í félag­inu, en rúm­lega tvö­föld eft­ir­spurn varð eftir hlut­um. Þeir nálægt 6.500 aðilar sem skráðu sig fyrir hlut sótt­ust eftir að kaupa fyrir um 60 millj­arða króna en selt var fyrir 29,7 millj­arða króna. Útboðs­gengi í til­boðs­bók A var 58 krónur á hlut en 60 krónur á hlut í til­boðs­bók B. Miðað við þetta verð er heild­ar­virði Síld­ar­vinnsl­unnar 101,3 millj­arðar króna.

Við lok dags á þriðju­dag var mark­aðsvirði félags­ins, líkt og áður sagði, 169 millj­arða króna og hafði því hækkað um 67,7 millj­arða króna á tíu mán­uðum.

Langstærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji hf. (32,64 pró­­sent) og Kjálka­­nes ehf. (17,44 pró­­sent), ­fé­lags í eigu Björg­­­ólfs Jóhanns­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi for­­­stjóra Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­­skyld­u­­­bönd­­­um. Stærstu hlut­hafar eign­ar­halds­fé­lags­ins með 45 pró­senta hlut eru systk­inin Anna og Ingi Jóhann Guð­munds­börn.

Björgólfur Jóhannsson, sem var um tíma forstjóri Samherja og Þorsteinn Már Baldvinsson, sem er forstjóri Samherja, eru báðir á meðal stærstu eigenda Síldarvinnslunnar.
Björgólfur Jóhanns­son, sem var um tíma for­stjóri Samherja og Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem er for­stjóri Samherja, eru báðir á meðal stærstu eig­enda Síld­ar­vinnsl­unnar.

Auk þess á Eign­­ar­halds­­­fé­lagið Snæfugl, sem er meðal ann­­ars í eigu Sam­herja og Björg­­ólfs, fjögur pró­­sent hlut. Sam­an­lagt halda því þessir þrír aðilar á um 54,1 pró­­sent hlut í Síld­­ar­vinnsl­unni og skipa þrjá af fimm stjórn­­­ar­­mönnum þess. Hlutur þess­ara þriggja aðila hefur því hækkað um 36,6 millj­arða króna frá því að útboðið fór fram. Beinn hlutur Samherja hefur hækkað um 22,1 millj­arð króna.

Þeir sem seldu eign­ar­hluti í útboð­inu í maí í fyrra voru ofan­greindir stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar og helstu stjórn­endur henn­ar. Sam­herji fékk um 12,2 millj­arða króna af þeirri upp­hæð sem selt var fyrir í sinn hlut og Kjálka­nes seldi fyrir 15,3 millj­arða króna. Eign­ar­halds­fé­lagið Snæfugl seldi hluti fyrir einn millj­arð króna og Síld­ar­vinnslan fékk um 738 millj­ónir króna fyrir þá eigin hluti hennar sem hún seldi.

Kjálka­nes seldi svo við­bót­ar­hlut í júní í fyrra fyrir alls um tvo millj­arða króna. Félagið hefur því þegar selt hluti fyrir meira en 17 millj­arða króna á síð­ustu mán­uðum.

Brim líka rokið upp

Sama dag og hluta­fjár­út­boði í Síld­ar­vinnsl­unni lauk var mark­aðsvirði Brim, ann­ars útgerð­ar­fé­lags sem er skráð á markað, 102,7 millj­arðar króna. Líkt og rakið var hér að ofan hefur það síðan hækkað um 75 pró­sent og var í lok dags á þriðju­dag 176,7 millj­arðar króna. Mark­aðsvirðið hefur því auk­ist um 74 millj­arða króna.

Langstærsti eig­andi Brim er Útgerð­­­­­ar­­­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­­­­­ur, sem á 43,97 pró­­­­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­­­­ur­­­­­fé­lag sitt RE-13 ehf. Það félag er að upp­i­­­stöðu í eigu Guð­­mundar Krist­jáns­­son­­ar. Hlutur Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur í Brim hefur því hækkað um 32,5 millj­arða króna á tíu mán­uðum.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur keypti fyrst hluti í Brimi árið 2018 þegar það keypti um 34,1 pró­sent hlut Krist­jáns Lofts­son­ar og Hall­dórs Teits­son­ar á 21,7 millj­arða króna. Sá hlutur hefur hækkað um 38,6 millj­arða króna í virði síðan þá, eða um 177 pró­sent.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi Brims.
Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og stærsti eig­andi Brims.

Næsta árið hélt félagið eða tengdir aðilar áfram að stækka í Brimi, ýmist með kaupum á bréfum eða í gegnum hluta­fjár­aukn­ingar vegna kaupa Brims á eignum Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur. Hjálmar átti á þeim tíma í Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur og um tíma voru félög bræðr­anna með meiri­hluta í Brimi. Þeir fram­kvæmdu hins vegar fjár­hags­legan aðskilnað á eign­ar­hlut sínum í Brimi í lok árs 2019 sem gerði það að verkum að Hjálmar fór út úr Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur en eign­að­ist KG Fisk­verkun að fullu.

Auk þess eiga félögin KG Fisk­verkun og Stekkja­salir, í eigu Hjálmars Krist­jáns­sonar bróður Guð­mundar og sona hans, 5,89 pró­sent hlut í Brimi og félagið á 1,79 pró­sent hlut í sjálfu sér. Bræð­urnir halda því á 49,86 pró­sent hlut í útgerð­ar­ris­anum og geta saman myndað meiri­hluta í honum ef atkvæða­vægi eigin hlutar Brims er dregið frá. Hlutur félaga Hjálmars í Brim er met­inn á 10,4 millj­arða króna og hefur hækkað um 4,4 millj­arða króna á tíu mán­uðum.

Sam­an­lagt hefur hlutur bræðr­anna og sona Hjálmars því hækkað um næstum 43 millj­arða króna frá því í maí í fyrra.

Stefnir í metár

Síðasta ár, 2021, var besta ár íslenskra útgerða frá upp­hafi ef miðað er við heild­ar­afla­verð­mæti. Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í byrjun mars var heild­ar­afla­verð­mæti íslenskra útgerða 162 millj­arðar króna miðað við fyrstu sölu og jókst um níu pró­sent milli ára. Í ljósi þess að ein­ungis var búið að veiða, landa og selja loðnu fyrir um fimmt­ung af því sem vænst er að fáist fyrir úthlut­aðan kvóta vegna yfir­stand­andi fisk­veiði­árs um síð­ustu ára­mót má vænta þess að árið 2022 verði enn betra ár fyrir útgerðir lands­ins. Veiking krón­unnar mun auk þess ýkja rekstr­ar­nið­ur­stöð­una en hækk­andi olíu­verð auka kostnað á móti.

Þess var því beðið með nokk­urri eft­ir­vænt­ingu að skráðu útgerð­ar­fé­lögin myndu birta árs­upp­gjör sín, fyrstu birtu upp­gjör útgerða vegna árs­ins 2021. Það gerð­ist í lok febr­úar og byrjun mars.

Bæði félögin, Síld­ar­vinnslan og Brim, högn­uð­ust um rúma ell­efu millj­arða króna í fyrra. Á grund­velli þessa árang­urs ætlar Brim að greiða hlut­höfum sínum rúm­lega fjóra millj­arða króna í arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs og Síld­ar­vinnslan ætlar að greiða sínum 3,4 millj­arða króna. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur og félög Hjálmars Krist­jáns­sonar fá um tvo millj­arða króna af arð­greiðslu Brims í sinn hlut og Samherji, Kjálka­nes og Snæfugl rúm­lega 1,8 millj­arða króna af arð­greiðslur Síld­ar­vinnsl­unnar.

Greiða meira í arð en í opinber gjöld

Síld­ar­vinnslan greiddi 531 millj­ónir króna í veiði­gjöld í fyrra og tæp­lega 2,1 millj­arð króna í tekju­skatt. Því námu sam­an­lagðar greiðslur vegna veiði­gjalds og tekju­skatts í rík­is­sjóð um 2,6 millj­örðum króna, eða 76 pró­sent af þeirri upp­hæð sem til stendur að greiða hlut­höfum í arð og 23 pró­sent af hagn­aði Síld­ar­vinnsl­unnar vegna síð­asta árs.

Brim greiddi alls um 907 millj­ónir króna í veiði­gjald á árinu 2021 og tæpa þrjá millj­arða króna í tekju­skatt. Samtals greiddi Brim því rúm­lega 3,8 millj­arða króna í tekju­skatt og veiði­gjöld til rík­is­sjóðs, sem er lægri upp­hæð en til stendur að greiða hlut­höfum í arð og um þriðj­ungur af hagn­aði félags­ins.

Þetta er við­snún­ingur sem fyrst varð vart á árinu 2020. Þá greiddu öll sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins í fyrsta sinn eig­endum sínum meira í arð en þau greiddu sam­tals í tekju­skatt, trygg­inga­gjald og veiði­gjald. Arð­greiðsl­urnar 2020 voru 21,5 millj­arðar króna en opin­beru gjöldin 17,4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár