Mynd: Birgir Þór Harðarson

Heildaraflaverðmæti íslenskra útgerða var 162 milljarðar í fyrra og hefur aldrei verið meira

Árin sem kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn herj­aði á heim­inn hafa verið tvö af þeim best í sögu íslensks sjáv­ar­út­vegs. Virði þess afla sem útgerðir hafa veitt hefur vaxið ár frá ári og auk­inn loðnu­kvóti mun nær örugg­lega gera 2022 að mjög góðu ári líka.

Heild­ar­afla­verð­mæti þess fisks sem skip íslenskra útgerða veiddu í fyrra var 162,2 millj­arðar króna miðað við fyrstu sölu. Afla­verð­mætið jókst alls um níu pró­sent milli ára, en það var 148,3 millj­arða króna árið 2020. Þegar litið er aftur í tím­ann var besta ár íslenskra útgerða árið 2012 þegar stór­auknar mak­ríl­veiðar og lágt gengi krónu sköp­uðu mikið góð­æri fyrir íslenskra útgerðir. Það ár var heild­ar­afla­verð­mætið, á föstu verð­lagi, 159,3 millj­arðar króna.

Því var síð­asta ár besta ár íslenskra útgerða frá upp­hafi er miðað er við heild­ar­afla­verð­mæti. Þetta má lesa úr tölum sem Hagstofa Íslands birti í byrjun mán­aðar.

Stóra breyt­ingin milli ára var í síld og loðnu. Afla­verð­mæti útgerða vegna fyrstu sölu á síld sem þær veiddu jókst um 49 pró­sent milli ára, eða um 3,3 millj­arða króna. Loðnu­kvóta var úthlutað í fyrsta sinn í nokkur ár á árinu 2021. Var um að ræða stærstu úthlutun í loðnu í tæp 20 ár. Afla­verð­mæti þeirrar loðnu sem búið var að veiða, landa og selja um síð­ustu ára­mót var 10,8 millj­arðar króna á síð­asta ári en þorri þeirra verð­mæta varð til í des­em­ber. Vænt­ingar eru til þess að loðnu­ver­tíðin skili yfir 50 millj­örðum króna í nýjar tekjur.

Aukið verðmæti í heimsfaraldri

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur því ekki haft nei­kvæð áhrif á sjáv­ar­út­veg­inn. Heild­ar­afla­verð­mæti hans vegna fyrstu sölu jókst milli áranna 2019 og 2020 og svo aftur í fyrra, með áður­nefndum afleið­ingum að það hefur aldrei verið meira innan árs.

Árið 2020 var samt sem áður ekk­ert slor í rekstri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja. Bók­fært eigið fé íslensks sjáv­ar­út­vegs var 325 millj­arðar króna í lok þess árs og hafði aldrei verið meira. Þar er um að ræða hreinar eignir þegar búið er að greiða arð út úr geir­anum og gera upp öll opin­ber gjöld. Alls jókst bók­fært eigið fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja um 28 millj­arða króna milli áranna 2019 og 2020 og um 104 millj­arða króna frá árinu 2014. Búast má við því að það hafi enn auk­ist umtals­vert í fyrra.

Vert er að taka fram að eigið fé útgerð­ar­fyr­ir­tækja er stór­lega van­metið, en í flestum til­fellum eru afla­heim­ildir bók­færðar á nafn­virði, ekki upp­lausn­ar­virði. Heild­ar­virði kvóta í lok árs 2020 var 1.200 millj­arða króna miða við síð­ustu gerðu við­skipti með hann. Við á tölu má bæta þeim afla­heim­ild­um sem úthlutað var end­ur­gjalds­laust í loðnu í fyrra, en þær eru metnar á 65 til 110 millj­arða króna. Afla­heim­ild­irnar fóru að mestu end­ur­gjalds­laust til stór­út­gerða.

Mikill hagnaður á fáum árum

Í Sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­gagna­grunni Deloitte ­sem kynntur var á Sjá­v­­­ar­út­­­vegs­deg­inum 2021 sem fór fram í nóv­em­ber í fyrra kom fram að hagn­aður fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafi verið 181 millj­arður króna frá byrjun árs 2016 og út árið 2020.

Bók­fært eigið fé íslensks sjáv­ar­út­vegs hafði aldrei verið meira en það var í lok árs 2020, þegar það var 325 millj­arðar króna. Þar er um að ræða hreinar eignir þegar búið er að greiða arð út úr geir­anum og gera upp öll opin­ber gjöld. Alls jókst bók­fært eigið fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja um 28 millj­arða króna milli áranna 2019 og 2020 og um 104 millj­arða króna frá árinu 2014 til loka árs 2020.

Í ljósi þess að afla­verð­mæti var meira árið 2020 en það var 2019, og enn meira árið 2021 en það var 2020, þá má ætla að hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hafi vænkast enn meira á síð­ustu tveimur árum. Vís­bend­ingar um það sáust til að mynda í árs­upp­gjöri Brim, eins stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækis lands­ins sem skráð er á markað. Það hagn­að­ist um 11,3 millj­arða króna í fyrra sem er mikil aukn­ing frá þeim 4,7 millj­arða króna hagn­aði sem félagið sýndi á árinu 2020. Efna­hagur þess styrkt­ist mikið milli ára, tekjur voru 58,3 millj­arðar króna og eigið fé félags­ins var 58,8 millj­arðar króna í lok árs. Eig­in­fjár­hlut­fallið jókst úr 44 í 50 pró­sent milli ára. Brim greiddi alls um átta pró­sent af hagn­aði sínum í veiði­gjöld, eða rúm­lega 900 millj­ónir króna.

Meira í arð en opinber gjöld

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins greiddu sér 21,5 millj­arða króna í arð á árinu 2020. Á sama tíma greiddu félögin 17,4 millj­arða króna í bein opin­ber gjöld. Inni í þeirri tölu eru veiði­gjöld (4,8 millj­arðar króna), tekju­skattur (7,3 millj­arðar króna) og áætlað trygg­inga­gjald (5,3 millj­arðar króna).

Þetta er í eina skiptið á tíma­bil­inu 2016 til 2020 sem sjáv­ar­út­veg­ur­inn greiddi minna í opin­ber gjöld en hann tók út í arð­greiðsl­ur. Raunar hefur geir­inn ein­ungis einu sinni greitt jafn lítið í bein opin­ber gjöld innan árs á því tíma­bili og hann gerði 2020, en það var árið 2017 þegar heild­ar­greiðslur hans í opin­ber gjöld voru 15,8 millj­arðar króna.

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur að sama skapi aldrei greitt sér jafn háa upp­hæð út í arð og hann gerði á árinu 2020, vegna frammi­stöðu árs­ins 2019. Inni í þeirri tölu, 21,5 millj­arðar króna, eru um tíu millj­arða króna arð­greiðslur dótt­ur­fé­laga Sam­herja til móð­ur­fé­lags­ins en það greiddi sjálft ekki út arð.

Heild­ararð­greiðslur út úr sjáv­ar­út­vegi frá byrjun árs 2016 og út árið 2020 námu 70,5 millj­örðum króna. Á sama tíma greiddi geir­inn 35,9 millj­arða króna í veiði­gjöld, eða rétt rúm­lega 50 pró­sent af þeirri upp­hæð sem eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja fengu í arð.

Samþjöppun aukist hratt

Mikil sam­­­þjöppun hefur átt sér stað í sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegi á Íslandi á und­an­­­förnum ára­tug­um, eftir að fram­­­sal kvóta var gefið frjálst og sér­­­stak­­­lega eftir að heim­ilt var að veð­­­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­­­ar­­­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Haustið 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins með sam­an­lagt á 53 pró­sent af úthlut­uðum kvóta, en Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber að það hlut­fall væri þá komið upp í rúm­lega 67 pró­sent.

Sam­an­lagt halda fjórar blokkir: Þær sem kenndar eru við Sam­herja, Brim, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfé­lagið á rúm­lega 60 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár