Brim-bræður rjúfa fjárhagsleg tengsl sín

Bræð­urnir Guð­mundur og Hjálmar Þór Krist­jáns­synir hafa átt í við­skiptum að und­an­förnu sem hafa rofið fjár­hags­leg tengsl þeirra. Saman halda félög sem þeir stýra, og eiga að uppi­stöðu, á yfir 17 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur keypti nýverið 33,3 pró­sent hlut KG fisk­verk­unar í eign­ar­halds­fé­lag­inu Kristján Guð­munds­son ehf., sem átti 37 pró­sent í Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur.

[links]Eftir þau kaup á Hjálmar Þór Krist­jáns­son ekki neinn hlut í Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur og mun hverfa úr öllum stjórn­un­ar­störfum í félag­inu. Í orð­send­ingu sem Kjarn­anum barst frá Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur segir að þar með séu „rofin fjár­hags­leg tengsl á milli bræðr­anna Guð­mundar og Hjálmars Krist­jáns­sona. Eign­ar­hald félaga þeirra bræðra á hlutafé í Brimi hf. er aðskilið.“

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er þar af leið­andi að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, sem er einnig for­stjóri Brims. Eign­ar­hlutur félags­ins í Brim er nú 36,13 pró­sent. Auk þess eiga tvö tengd félög þess hlut, þar af á FISK-Seafood eign­ar­halds­fé­lag, í 100 pró­sent eigu Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, 10,05 pró­sent hlut. Samtals á þessi sam­staða Guð­mundar Krist­jáns­sonar því nú 46,26 pró­sent í sjáv­ar­út­vegs­ris­anum.

Félag Hjálmars Þór Krist­jáns­sonar, KG Fisk­verkun á Rifi, er líka á meðal stærstu eig­enda Brims, með 6,5 pró­sent eign­ar­hlut.

[adspot]Þeir bræður eru ekki skil­greindir sem fjár­hags­lega tengdir og því nær eign­ar­hlutur sam­stæðu Guð­mundar Krist­jáns­sonar ekki yfir þau 50 pró­sent mörk sem þarf til að hann telj­ist tengdur aðili í skiln­ingi laga um hámarks­út­hlutun á afla­hlut­deild.

Kvóti yfir löglegu hámarki

Brim er það sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem heldur á mestum kvóta, en félagið fór yfir hámark sem lög heim­ila í kvóta, í króka­aflsa­hlut­deild í þorski, í nóv­em­ber þegar stjórn þess sam­þykkti samn­inga um kaup á tveimur sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækjum í Hafn­­ar­­firði, Fisk­vinnsl­unni Kambi og Grá­brók. Hjálmar Krist­jáns­son átti 39 pró­sent í Kambi og allt hlutafé í Grábrók. Brim var því að kaupa eignir af bróður for­stjóra síns. Sam­an­lagt kaup­verð nam rúm­­lega þremur millj­­örðum króna.

Stærsti eig­andi Brim er Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, sem á um 46,26 pró­­sent hlut í því félagi eftir að hafa selt stóran hlut til KG Fisk­verk­unar fyrir skemmstu. Það félag KG Fisk­verkun, var 1. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn með um eitt pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Auk þess var félagið Ögur­vík með 1,3 pró­­sent afla­hlut­­deild.

Eftir áður­nefnda upp­skipt­ingu er Guð­mundur aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur auk þess sem systir hans, Sigurrós Krist­jáns­dóttir, á minni hlut í félag­inu. Hjálmar á hins vegar KG Fisk­verkun nú einn.

Sam­an­lagður kvóti þess­­ara þriggja félaga (Brims, Ögur­víkur og Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur), sem eru ekki skil­­greind sem tengd, var 15,6 pró­­sent í byrjun sept­­em­ber síð­­ast­lið­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár