Fasteignaverð í Vestmannaeyjum hefur hækkað um 70 prósent frá bankahruni

Fasteigna­verð í Vestmanna­eyjum hefur hækkað um 70 prósent frá banka­hruni. Á sama tíma hefur verðið á Akureyri og Akranesi hækkað um ca. 15 prósent. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Lands­bankans. Þar segir að mikil tenging við sjávar­útveg og sterkt og stöðugt atvinnulif skýri mikinn hluta af þeirri þróun sem átt hefur sér stað í Vestmanna­eyjum. „Kaup­máttur, atvinnu- og tekjustig hefur jafnan mikil áhrif á fasteigna­verð og þessar tölur staðfesta það“.

Verðið hefur hins vegar lækkað um 6,5 prósent í Árborg og um 5,4 prósent í Reykja­nesbæ.

Langhæsta fasteignarverðið í höfuðborginni


Fast­eigna­verð er sem fyrr lang­hæst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það hefur einnig hækkað mikið að und­an­förnu. Alls hefur fast­eigna­verð á svæð­inu hækkað um 10,8 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum.

Meðaltal af verði fjölbýlis og sérbýlis sýnir að fermetra­verð fasteigna á Akureyri var um 70 prósent af verðinu í Reykjavík í lok ársins 2014. Fermetra­verðið í hinum bæjunum sem úttekt Hagsjárinnar náði til er töluvert lægra, eða ríflega helmingur þess sem gerist í Reykjavík. Árið 2008 var fasteigna­verð í Eyjum [...] töluvert lægra en í þeim bæjum sem hér er miðað við, en vegna mikillar hækkunar frá þeim tíma, er það orðið svipað. Þetta er sannarlega mikil breyting frá því sem var“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár