Ásmundur Einar skipar þrjá nýja skrifstofustjóra

Félags- og barna­mála­ráð­herra hefur skipað þrjá nýja skrif­stofu­stjóra til starfa í ráðu­neyt­inu.

Erna Kristín Blöndal, Gunnhildur Gunnarsdóttir og Bjarnheiður Gautadóttir
Erna Kristín Blöndal, Gunn­hildur Gunn­ars­dóttir og Bjarn­heiður Gauta­dóttir Mynd: Félagsmálaráðuneytið

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, hefur skipað þrjá nýja skrif­stofu­stjóra til starfa í ráðu­neyt­inu. Ernu Kristínu Blöndal yfir skrif­stofu barna- og fjöl­skyldu­mála, Gunn­hildi Gunn­ars­dóttur yfir skrif­stofu hús­næðis- og líf­eyr­is­mála og Bjarn­heiði Gauta­dóttur yfir skrif­stofu vinnu­mark­aðar og starfsend­ur­hæf­ingar. Þetta kemur fram í frétt félags­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Ákvörðun ráð­herra er í sam­ræmi við mat sér­stakrar hæfn­is­nefndar sem skipuð var til að meta hæfi umsækj­enda, segir í frétt­inni. Skipað er í emb­ætti skrif­stofu­stjóra til fimm ára í sam­ræmi við lög um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins.

Erna Kristín Blöndal nýr skrif­stofu­stjóri barna- og fjöl­skyldu­mála tekur við emb­ætti 1. maí næst­kom­andi. Hún er með BA- og meistara­gráðu í lög­fræði frá Háskóla Íslands og stundar dokt­ors­nám í lög­fræði á sviði mann­rétt­inda­mála við sama skóla. Erna Kristín hefur víð­tæka reynslu af opin­berri stjórn­sýslu og stjórn­un­ar­störfum. Hún starf­aði sem lög­fræð­ingur og verk­efna­stjóri hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu (nú dóms­mála­ráðu­neyt­inu) frá 2009 til 2016. Frá 2014 var hún sér­fræð­ingur þverpóli­tískrar þing­manna­nefndar um end­ur­skoðun útlend­inga­laga og fram­kvæmda­stjóri nor­rænnar stofn­unar um fólks­flutn­inga frá 2016-2018. Síð­ast­liðið ár hefur hún starfað sem verk­efna­stjóri hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu og leitt vinnu sem lýtur að end­ur­skoðun barna­vernd­ar­laga og inn­leið­ingu á snemmtækri íhlutun.

Gunn­hildur Gunn­ars­dóttir nýr skrif­stofu­stjóri hús­næðis- og líf­eyr­is­mála tekur við emb­ætti 1. júní næst­kom­andi. Hún er með emb­ætt­is­próf í lög­fræði frá Háskóla Íslands frá árinu 1992 og hlaut rétt­indi til að starfa sem hér­aðs­dóms­lög­maður árið 1995. Gunn­hildur hefur mikla reynslu af stjórnun og starfs­manna­haldi ásamt víð­tækri þekk­ingu á sviði opin­berrar stjórn­sýslu. Hún gegndi stjórn­ar­störfum hjá Íbúða­lána­sjóði á árum 1999 til 2016 og var lengst af fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs. Gunn­hildur hefur að und­an­förnu gengt starfi lög­fræð­ings hjá Gæða- og eft­ir­lits­stofnun félags­þjón­ustu og barna­verndar.

Bjarn­heiður Gauta­dóttir hefur frá jan­úar 2019 verið stað­geng­ill setts skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu lífs­kjara og vinnu­mála og verið settur skrif­stofu­stjóri á skrif­stofu vinnu­mark­aðar og starfsend­ur­hæf­ingar frá febr­úar 2019. Hún verður form­lega sett í emb­ætti 1. maí næst­kom­andi. Bjarn­heiður er með emb­ætt­is­próf í lög­fræði frá Háskóla Íslands frá árinu 2006. Hún hefur starfað sem sér­fræð­ingur á sviði vinnu­mark­aðs­mála í félags­mála­ráðu­neyt­inu (áður vel­ferð­ar­ráðu­neytið/félags- og trygg­inga­mála­ráðu­neytið) frá 2006. Bjarn­heiður hefur meðal ann­ars haft umsjón með inn­leið­ingu til­skip­ana frá Evr­ópu­sam­band­inu og leitt nefndir og vinnu­hópa í tengslum við gerð laga­frum­varpa og reglu­gerða í sam­vinnu við hags­muna­að­ila. Eins tekið þátt í starfi nor­rænnar nefndar á sviði vinnu­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár