Þróunarkenningin er rökrétt og Guð var enginn töframaður

Hinar alþekktu og víðtækt samþykktu skýringar á þróun lífsins, það er þróunar­kenning Darwins og kenningin um stóra hvell (big bang), eiga við rök að styðjast og full­gildar. Þessu hélt Francis páfi fram í ræðu í gær. Yfir­lýsing sem þessi þykir sæta nokkrum tíðindum, ekki síst þar sem ýmsir æðstu prestar og leiðtogar kaþólsku kirkjunnar á heimsvísu hafa aldrei samþykkt þessar vísinda­legu skýringar á mann­lífinu. Texti trúar­ritanna er tekinn bókstaf­lega af mörgum þeirra og hélt Benedikt XVI páfi því stað­fastlega fram að Guð hefði skapað heiminn á sex dögum, og samþykkti aldrei kenningar vísindanna, í það minnsta ekki opinber­lega.

Francis páfi sagði að fólki hætti til að sjá Guð fyrir sér sem töframann með sprota en reyndin væri allt önnur. Guð hefði skapað manninn og leyft þróun hans að verða í samræmi við lögmál vísindanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár