Ófærð á Kjalarnesi: „Ágætis hviður, ég hef þó alveg séð það verra”

Óveður geisar um landið. Afleitt ferða­veður á Suður- og Vest­ur­landi. Færðin verst við Hafn­ar­fjall og á Kjal­ar­nesi þar sem veg­inum var lokað

Ófærð á Kjalarnesi: „Ágætis hviður, ég hef þó alveg séð það verra”

Óveður geisar um landið en verst lætur undir Hafn­ar­fjalli og á Kjal­ar­nesi. Óli Þór Árnason, veð­ur­fræð­ingur, segir storm­inn ekki stór­mál á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem gróður og bygg­ingar skýli gegn vindi. „Verst er á þessum frægu svæðum, Hafn­ar­fjalli og Kjal­ar­nesi,” segir hann. Aðallega beri að var­ast þar sem keyrðar eru langar vega­lengdir en ferða­veður er afleitt um allt suður- og vest­ur­land. Þar er skaf­renn­ingur og 15 til 18 metrar á sek­úndu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu