Formaður Heimdallar: „Þetta er ekkert lýðræðisform“

Albert Guð­munds­son tekur undir gagn­rýni sem birt­ist í pistli Gísla Gauta­sonar, sem gagn­rýnir mútur í kosn­ingum Heimdallar. Albert sigr­aði kosn­ing­arnar en seg­ist hafa viljað gera breyt­ingar á fram­kvæmd kosn­ing­anna. Hann neitar að hafa boðið mennta­skóla­nem­endum bjór.

Formaður Heimdallar: „Þetta er ekkert lýðræðisform“
Albert Guð­munds­son Nýkjör­inn for­maður Heimdallar, félag ungra Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík.

„Er það lýð­ræði ef allir kjósa með því að taka einn ugla sat á kvisti yfir kjör­seðl­inum? Er það lýð­ræði ef að sá vinnur sem getur gefið nógu mörgum far á kjör­stað? Er lýð­ræði keppni í hver getur hellt flesta tán­inga fulla?“ spyr Gísli Gautason sagn­fræði­nemi í harð­orðum pistil sem birtur var á Nútím­anum fyrr í dag, þar sem hann segir frá kosn­ingum Heimdallar, félags ungra Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, sem fóru fram í gær.

Gísli segir að kunn­ingi sinn úr mennta­skóla hafi haft sam­band við sig og spurt hvort hann væri ekki reiðu­bú­inn að hjálpa sér, kjósa sig og sitt fram­boð í kosn­ingum Heimdallar. Gísli gekkst við því og var skráður í Sjálf­stæð­is­flokk­inn án þess að sýna skil­ríki eða skrifa undir nokkurn pappír. Hann telur kosn­ing­arnar ein­kenn­ast af vin­sælda­kosn­ingum og spill­ingu.

„Þetta er gjör­sam­lega mein­gallað form á kosn­ingum og mjög óheil­brigt fyrir bæði félagið og flokk­inn.“

Formaður tekur undir

Nýkjör­inn for­maður Albert Guð­munds­son tekur undir gagn­rýni Gísla og segir hann núver­andi kosn­inga­fyr­ir­komu­lega mein­gallað. Hann segir að fram­boðin tvö hafi komið sér saman um annað fyr­ir­komu­lag en Valhöll hafi ekki tekið það í mál.

„Þetta er gjör­sam­lega mein­gallað form á kosn­ingum og mjög óheil­brigt fyrir bæði félagið og flokk­inn. Við vildum að þessu yrði þannig háttað að fólk kæmi á stað­inn og skráði sig þar í flokk­inn þannig að það yrði með­vit­aðra um að það væri að skrá sig í flokk­inn. En svo kom það í ljós á mánu­deg­inum að þau skiptu um skoðun upp í Valhöll og vildu hafa það þannig að fólk yrði skráð í flokk­inn áður en það kæmi á kjör­stað,“ segir Albert og bætir við að fram­boðin hafi samið um þetta áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár