„Þessi manneskja var aldrei ráðin til starfa“

Adolf Ingi Erlings­son, eig­andi Radio Iceland, sagði meintum starfs­manni að troða reikn­ingi á ótil­greindan stað. Segist ekk­ert vita um fram­tíð­ina.

„Þessi manneskja var aldrei ráðin til starfa“
Útvarps­stjór­inn Adolf Ingi Erlings­son, eig­andi Radio Iceland, á í harðri deilu við mein­tan starfs­mann. Mynd: Radio Iceland

„Þessi mann­eskja hefur aldrei verið ráðin til starfa á Radio Iceland. Meira vil ég ekki segja um það mál,“ segir Adolf Ingi Erlings­son, eig­andi Radio Iceland, í sam­tali við Stundina. Í Frétta­blað­inu í dag er sagt frá ásök­unum sem Wiktoria Joanna Ginter fer fram með á hendur Adolfi.

Wiktora lýsir því að hún hafi starfað launa­laust á útvarps­stöð­inni síðan í apríl. Hún hefur kraf­ist tveggja millj­óna króna fyrir vinnu­fram­lag sitt. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar mun hún hafa fengið laun á móti atvinnu­leys­is­bótum fyrir að sinna einu og öðru á útvarps­stöð­inni. Ágrein­ing­ur­inn liggur í því hvort hún eigi að fá meira. 

Tilkynnt var um fyr­ir­hug­aða sölu fyr­ir­tæk­is­ins fyrir nokkru. Síðan rof­aði til í rekstr­inum. Wiktoria segir að þá hafi hún viljað fá laun fyrir störf sín en var svarað með skæt­ingi á borð við það hvað hún hafi verið að reykja.

Þá hafi hann sagt henni að troða reikn­ingnum á ótil­greindan stað. Þá segir Wiktoria að ekki hafi feng­ist svör við ítrek­uðum spurn­ingum um fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins. Adolf vill ekki svara ávirð­ing­unum efn­is­lega. Hann seg­ist heldur engu geta svarað um fram­tíð stöðv­ar­innar.

„Ég á ekki krist­alskúlu og veit ekk­ert um fram­tíð­ina“

„Þetta er nýr fjöl­mið­ill sem þarf að berj­ast á mark­aðnum eins og aðrir. Ég á ekki krist­alskúlu og veit ekk­ert um fram­tíð­ina,“ segir Adolf Ingi.

„Það komu aldrei skýr svör við neinu,“ sagði Wiktora við Frétta­blaðið í dag. „Ég sat heima og sá þá skyndi­lega til­kynn­ingu á Facebook um að stöð­inni ætti að loka á mið­nætti. Mér þótti það mjög skrítið vegna þess að þeir létu ekki neinn starfs­mann­anna vita.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár