Reiður svínabóndi: „Það er verið að heimfæra þrjár, fjórar myndir á fjögur þúsund gyltur“

Rauðir básar eru skýrasta vís­bend­ing um hvaða svínabú á Íslandi hefur farið verst með dýr sín. Slíka bása má meðal ann­ars finna á búum Stjörnu­gríss. Eigandi og fram­kvæmda­stjóri Stjörnu­grís, Geir Gunnar Geirsson, er ævar­eiður vegna umfjöll­unar Rík­is­út­varps­ins um dýra­níð á svína­búum.

Reiður svínabóndi: „Það er verið að heimfæra þrjár, fjórar myndir á fjögur þúsund gyltur“
Fram­kvæmda­stjóri Stjörnu­grís Geir Gunnar Geirsson er ekki ánægður með umfjöllun RÚV. Mynd: Skessuhorn

Rauðir básar eru skýrasta vís­bend­ing um hvaða svínabú á Íslandi hefur farið verst með dýr sín. Myndir sem koma fram í skýrslu Mat­væla­stofn­unnar hafa valdið upp­námi, en þar má sjá dýr í níð­þröngum básum og með legu­sár. Þessir básar eru frá danska fyr­ir­tæk­inu Egebjerg og eru fremur sjald­gæfir á Íslandi. Að sögn fyrr­ver­andi starfs­manns er Stjörnu­grís eitt þeirra fyr­ir­tækja sem notar bása frá þessu fyr­ir­tæki. Stjórnu­grís er með stærstu fyr­ir­tækjum á Íslandi í svína­rækt og þess geta að allt svína­kjöt í versl­unum Bónus kemur frá félag­inu.

„Þessi rann­sókn­ar­blaða­mennska er farin að ganga út í öfgar.“

Stundin ræddi við Geir Gunnar Geirsson, fram­kvæmda­stjóra og einn eig­anda Stjörnu­grís, og segir hann það rétt að fyr­ir­tækið noti bása frá Egebjerg en þver­tekur þó fyrir að nokk­urt dýra­níð hafi átt sér stað á svína­búum Stjörnu­gríss. Hann segir félag sitt ekki vera það eina á Íslandi sem noti bása frá Egebjerg. „Við erum með Egebjerg og líka Funki. Þessi rann­sókn­ar­blaða­mennska er farin að ganga út í öfgar. Þið ættuð bara að tala við MAST. Þeir birta þessar myndir og eru eft­ir­lits­að­ilar. Þeir eru eig­endur þess­ara mynda og eiga að tjá sig um þær,“ segir Geir Gunnar.

„Eitt í við­bót: það er 3.800 gyltur í land­inu og þetta eru myndir teknar fyrir einu og hálfu ári síðan. Ef þetta var ekki lagað við eft­ir­litið þá hefur þetta verið lagað strax á eftir. Það er verið að heim­færa þrjár, fjórar myndir á fjögur þús­und gyltur og alla svín­rækt­un­ina, eins og þetta sé allt í tómu vol­æði og dýra­níði. Það er svipað eins og að taka eina mynd af hor­uðu hrossi út í haga sem er illa farið með og heim­færa það á alla hrossa­bændur. Þetta er eins og ef einn hunda­eig­andi fer illa með hund þá séu allir hunda­eig­endur dýra­níð­ingar og drullu­sokkar,“ segir Geir Gunnar.

Umræðan þoli ekki sannleikann

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár