Ráðherra ósáttur við val á ritstjóra staðreyndavaktar Vísindavefsins

Gunnar Bragi Sveins­son telur óheppi­legt að Þórólfur Matth­í­as­son stað­reynda­tékki Fram­sókn­ar­menn. Fram­sókn­ar­fólk og Þórólfur séu sjaldan „sam­mála um stað­reyndir“.

Ráðherra ósáttur við val á ritstjóra staðreyndavaktar Vísindavefsins

Gunnar Bragi Sveins­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra telur ekki heppi­legt að Þórólfur Matth­í­as­son háskóla­pró­fessor fram­kvæmi „stað­reynda­tékk“ á því sem fram­sókn­ar­menn hafa til mál­anna að leggja.

Þórólfur mun sjá um fag­lega rit­stjórn svara á Vís­inda­vefnum, ásamt Jóni Gunnari Þor­steins­syni, þar sem staðin verður „stað­reynda­vakt“ vegna Alþing­is­kosn­ing­anna 2016. 

Kjarninn kynnti í dag að fjöl­mið­ill­inn myndi birta svör Vís­inda­vefs­ins og einnig halda úti sinni eigin stað­reynda­vakt.

Land­bún­að­ar­ráð­herra er ósáttur við val Vís­inda­vefs Háskóla Íslands. Gunnari Braga finnst Stað­reynda­vaktin frá­bært fram­tak. Hins vegar hafi Fram­sókn­ar­fólk og Þórólfur sjaldan eða ein­hvern tíma „verið sam­mála um stað­reyndir, í land­bún­aði, Icesave eða hvað annað.“ Þetta segir Gunnar Bragi á Facebook-síðu sinni og deilir innslagi úr frétta­tíma Stöðvar 2 þar sem Þórólfur tjáði sig um skuld­bind­ingar Íslands í Icesave mál­inu. Innslagið er frá 6. des­em­ber árið 2010 þegar mikil óvissa ríkti um Icesave sam­komu­lagið en Þórólfur spáði því meðal ann­ars að krónan myndi hrynja og lífs­kjör versna ef Íslend­ingar myndu neita að borga Icesave. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu