Mynd: Kristinn Magnússon

Píratar í herkví

Víð­tækrar óánægju gætir innan raða Pírata með vinnu­brögð og fram­göngu Birgittu Jóns­dóttur, þing­manns flokks­ins. Flokks­menn segja hana snið­ganga innri verk­ferla með ólýð­ræð­is­legum hætti. Þá taki hún sér leið­toga­hlut­verk í flokki sem gangi út á leið­toga­leysi. Ástandið innan hreyf­ing­ar­innar er eld­fimara en margir vilja vera láta. Stundin ræddi við á annan tug Pírata sem gegna trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn.

Átök og orða­hnipp­ingar for­ystu­fólks Pírata síð­ustu daga hafa varla farið fram hjá les­endum. Deilur þessar, sem hafa sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar kraumað undir niðri með einum eða öðrum hætti mán­uðum saman, sprungu fyrst út fyrir allra augum í umræðum á Pírata­spjall­inu í síð­ustu viku. Þar gagn­rýndi Erna Ýr Öldu­dóttir, for­maður fram­kvæmda­ráðs Pírata, Birgittu Jóns­dóttur harka­lega með eft­ir­far­andi orðum: „Það er gjör­sam­lega óþol­andi að þing­maður láti end­ur­tekið titla sig sem leið­toga eða for­mann eða kaptein flokks­ins án þess að vera það. Koma svo með yfir­lýs­ingar í fjöl­miðlum um hitt eða þetta án þess að hafa til þess umboð frá félags­mönnum. Svona sólóplay og röng fram­setn­ing á sann­leik­anum er óheið­ar­leg, bæði gagn­vart flokknum, félags­mönnum, kjós­endum og þeim reglum og ferlum sem Píratar not­ast við.“  

Stundin hefur rætt við á annan tug ein­stak­linga sem gegna trún­að­ar­störfum fyrir Pírata. Þeir sam­mæl­ast margir hverjir um það að Erna Ýr hafi haft nokkuð til síns máls, þó að hún hefði mátt setja gagn­rýni sína fram með mild­ari hætti. Samkvæmt hug­mynda­fræði Pírata á að ríkja flatt skipu­lag í flokknum þar sem eng­inn er for­maður. Lög kveða hins vegar á um að flokk­ur­inn sé með for­mann, vara­for­mann og rit­ara og hafa þing­menn­irnir látið þessi hlut­verk ganga á milli sín. Heim­ildir Stund­ar­innar herma að það 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fylgi stjórnmálaflokka

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár