Besti tím­inn „Þetta hefur verið besti tími lífs míns,“ segir Martin Delius og bætir við að hann hafi gaman af því að hakka „hel­vítis kerfið“. Mynd: Jón Bjarki

Ris og fall þýskra Pírata

Píratar uxu á tíma­bili hraðar en nokkur stjórn­mála­hreyf­ing Þýska­lands en þeir voru líka fljótir að missa flugið. Martin Delius, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri þing­flokks þýskra Pírata, útskýrir hvað fór afvega hjá flokknum og miðlar af reynslu sinni til íslenskra Pírata.

Þýska Píratap­artýið var stofnað árið 2006, um einu og hálfu ári eftir að slík stjórn­mála­hreyf­ing varð fyrst til í Svíþjóð. Í fyrstu var um litla gras­rót­ar­hreyf­ingu að ræða sem barð­ist fyrir auknu upp­lýs­inga­frelsi og gegn hvers kyns rit­skoðun á ver­ald­ar­vefnum. Segja má að flokk­ur­inn hafi fyrst kom­ist á blað árið 2009 þegar hann náði þrjú pró­sent fylgi í almennum kosn­ingum til þings. Það var svo tveimur árum síðar, eða árið 2011, sem Píratar í Þýska­landi unnu stór­sigur þegar þeir fengu fimmtán mann­eskjur kjörnar inn á þing með 8,9 pró­sent kosn­ingu í höf­uð­borg lands­ins, Berlín. Ári seinna vann flokk­ur­inn enn frek­ari sigra víðar í Þýska­landi. Þessi öri vöxtur hins nýja stjórn­mála­afls var algjört eins­dæmi í seinni tíma stjórn­mála­sögu Þýska­lands og fram­tíðin virt­ist björt.

Það fór hins vegar fljót­lega að fjara undan hjá þýskum Pírötum. Inn­an­flokks­deilur birt­ust fyrir allra augum á spjall­borðum flokks­ins og fjöl­miðlar tóku til við að fjalla um hver átökin á fætur öðrum. Oftar en ekki var verið að takast á um per­sónur frekar en póli­tík og skít­kast flokks­með­lima í garð hver ann­ars gat verið gróft og rætið. Hreyf­ingin klofn­aði smám saman í smærri ein­ingar þar sem hver höndin var upp á móti annarri. Árið 2014 var Píratap­artýið, sem hafði birst mörgum Þjóð­verjum sem ferskur vindur inn í þýska póli­tík, ekki svipur hjá sjón og fjöl­margir þing­menn flokks­ins höfðu til að mynda sagt sig úr flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fylgi stjórnmálaflokka

Píratar í herkví
Úttekt

Píratar í her­kví

Víð­tækrar óánægju gætir innan raða Pírata með vinnu­brögð og fram­göngu Birgittu Jóns­dóttur, þing­manns flokks­ins. Flokks­menn segja hana snið­ganga innri verk­ferla með ólýð­ræð­is­legum hætti. Þá taki hún sér leið­toga­hlut­verk í flokki sem gangi út á leið­toga­leysi. Ástandið innan hreyf­ing­ar­innar er eld­fimara en margir vilja vera láta. Stundin ræddi við á annan tug Pírata sem gegna trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár