Páll Magnússon snýr aftur og tekur við Sprengisandi

Páll Magnússon fordæmdi áður framgöngu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og milljarða­afskriftir vegna fjölmiðla­veldisins 365. Fyrsti Sprengi­sandur Páls er á sunnu­daginn en Sigurjón M. Egilsson heldur stefi þáttarins á Hringbraut.

Snýr aftur
Snýr aftur Páll Magn­ús­son mun taka við útvarps­þætt­inum Sprengi­andi á Bylgj­unni um helg­ina. Þar með yfir­gefur hann Hring­braut Mynd: Pressphotos

Páll Magnússon fyrr­verandi útvarps­stjóri er nýr stjórn­andi útvarps­þáttarins Sprengi­sands á Bylgjunni. Páll kemur í stað Sigurjóns M. Egils­sonar sem tók boði Hringbrautar um að verða með bæði útvarps- og sjónvarps­þátt á þeirri stöð. Páll yfirgefur Hringbraut til að fara aftur í sitt gamla vígi. 

Talsverð ólga varð vegna brott­hvarfs Sigurjóns en upphaf­lega var hugmynd hans að fara með þáttinn Sprengi­sand yfur. Það varð þó ekki þar sem fjölmiðla­samsteypan 365 á nafnið. Aftur á móti tók Sigurjón stef þáttarins með sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár