Misþyrmdi tveggja ára dreng í tvo daga: Laus og kominn til Íslands

Kaj Anton Arnarsson, sem var í sumar dæmdur til 26 mánaða fangelsis­vistar fyrir að hafa misþyrmt tveggja ára dreng í tvo daga, hefur lokið afplánun í Noregi og er kominn til Íslands.

Kaj Anton
Kaj Anton Var fund­inn sekur um að hafa mis­þyrmt tveggja ára gömul dreng hrotta­lega fyrir rúmu ári síðan.

Kaj Anton Arnarsson, sem var dæmdur til 26 mánaða fangelsis­vistar í Stavangri í Noregi í júní fyrir að misþyrma tveggja ára gömlum íslenskum dreng, er nú laus úr haldi og kominn til Íslands, samkvæmt heimildum Stundarinnar.

Kaj misþyrmti drengnum hrotta­lega á heimili drengsins og í nágrenni þess í október fyrir rúmu ári síðan. Málið vakti mikinn óhug í Noregi og á Íslandi en einn aðstand­enda drengsins sem Stundin ræddi við í júní sagði 26 mánaða dóm Kaj Antons „hlægilegan“.

Hann er nú laus og samkvæmt heimildum Stundarinnar kominn til Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár