Les bréfin frá freku köllunum og hugsa: Já, ég gerði rétt

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir ákvað að fara sjálf í end­ur­menntun í stað þess að segja öðrum að gera það. Nú býður hún sig fram fyrir nýtt stjórn­mála­afl og seg­ist enga sam­leið eiga lengur með Sjálf­stæð­is­flokknum: „Ég átti erfitt með að sætta mig við litlar sem engar kerf­is­breyt­ingar.“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir var þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins í 14 ár, gegndi vara­for­manns­hlut­verki í flokknum og var mennta­mála­ráð­herra á miklum örlaga­tímum. Eins og frægt er orðið lét hún af vara­for­mennsku og vék tíma­bundið af þingi árið 2010 í kjöl­far umfjöll­unar og umræðu umkúlúlán eig­in­manns hennar hjá Kaup­þingi. Þor­gerður gaf ekki kost á sér til frek­ari starfa á Alþingi árið 2013 en var ráðin til Samtaka atvinnu­lífs­ins sem for­stöðu­maður nýs mennta- og nýsköp­un­ar­sviðs. Nú sæk­ist hún aftur eftir þing­sæti en fyrir nýjan flokk: Viðreisn. Stundin ræddi við hana um skiln­að­inn við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, bréfin frá freku köll­unum, upp­gang öfga­afla í Evrópu, það hvort tals­mönnum fyr­ir­tækja­rek­enda sé treystandi til að standa vörð um almanna­hags­muni á Alþingi og hvort búrku­bann geti sam­ræmst kröf­unni um frjáls­lyndi.

Fór sjálf í endurmenntun

Hvernig leggst í þig að vera aftur á leið í stjórn­málin? 

„Það leggst vel í mig að vera komin aftur í póli­tík­ina. Ég við­ur­kenni alveg að hafa saknað stjórn­mál­anna þótt margir hvái og finn­ist það skrýtið. En mér finn­ast stjórn­málin heill­andi þrátt fyrir ýmsar skugga­hliðar þeirra og þegar horft er yfir flokk­ana sem nú bjóða fram er ljóst að það er gott fólk í þeim öllum. Mig langar að fá tæki­færi til að vinna með þessu fólki og ég held að nú sé ein­stakt tæki­færi í stjórn­mál­unum, bæði til að stokka upp og líka til að sýna meiri aga og meiri sam­vinnu, skapa frið í stað þess að heyja stríð. Annars er engin spurn­ing að það var rétt ákvörðun að hvíla mig á þessu í nokkur ár. Ég þurfti á sjálfs­rýni að halda. Í stað þess að kalla eftir því að aðrir færu í end­ur­menntun gerði ég það bara sjálf og hafði gott af því. Í milli­tíð­inni hef ég unnið mikið með full­orð­ins­fræðslu og símenntun, ég hef kynnst fyr­ir­tækj­unum og verka­lýðs­hreyf­ing­unni og séð að sem betur fer liggja hags­mun­irnir meira saman en hitt, það er fleira sem sam­einar en sundrar. Og það er ótrú­legt hvað hægt er að gera þegar fólk vinnur saman.“

Hefur þín sýn á stjórn­málin breyst í grund­vall­ar­at­riðum þau ár sem þú hefur staðið utan þings? 

„Það má segja að ákveðnar hug­myndir og hug­mynda­fræði hafi skerpst enn frekar. En grunn­hug­sjónin um frjálst opið sam­fé­lag sem tryggir öllum jafnan rétt til mennt­unar og vel­ferðar er sú sama. Nú þegar ég kem inn aftur, þá kallar það á gagn­rýni og annað sem getur verið erfitt en þetta er eitt­hvað sem ég þarf bara að taka. Svo er dýr­mætt frelsi fólgið í því að það sé ekki alltaf ein­hver sem leggur hönd­ina á öxl­ina á manni og segir: „Þor­gerður Katrín, svona höfum við alltaf gert þetta og þessu er ekki hægt að breyta.“ Þetta gildir til dæmis um auð­linda­málin. Ég tal­aði ekki sér­stak­lega fyrir mark­aðs­leið þegar ég var á þingi, en ég hef alltaf verið þeirrar skoð­unar að greiða eigi fyrir aðgang­inn að okkar sam­eig­in­legu auð­lindum, bæði í sjáv­ar­út­vegi og ann­ars staðar. Fyrsta grein fisk­veiði­stjórn­un­ar­lag­anna um sam­eign þjóð­ar­innar er grund­vall­ar­laga­grein. Sú leið sem hingað til hefur verið farin í sjáv­ar­út­vegs­málum hefur byggt upp öfl­uga atvinnu­grein en ekki stuðlað að sátt, hana vantar og það þarf að laga. Þeir stjórn­mála­flokkar sem skilja þetta ekki dæma sig að ein­hverju leyti úr leik.“

Og tel­urðu að sú útfærsla upp­boðs­leiðar sem Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, hefur talað fyrir sé besta leiðin til að tryggja almenn­ingi aukna hlut­deild í auð­lind­arent­unni sem skap­ast í sjáv­ar­út­vegi? 

„Já, bæði þarf að huga að nýliðun í sjáv­ar­út­veg­inum en ekki síður að almenn­ingur fái aukna hlut­deild í auð­lind­arent­unni. Það hefur sýnt sig að núver­andi fyr­ir­komu­lag felur í sér ákveðið óör­yggi fyrir atvinnu­grein­ina því það er háð duttl­ungum stjórn­mál­anna hve hátt auð­linda­gjaldið er hverju sinni. Þá er hætt við því að þetta fari bara eftir því hvernig kaupin ger­ast á eyr­inni í stjórn­mál­unum. Það er miklu eðli­legra að mark­að­ur­inn sjálfur ráði verð­inu; þá er það hátt þegar eft­ir­spurnin er mikil og lægra þegar hún er minni. Þetta er heil­brigð­ari nálgun en sú sem nú ræður för og hún mun skila meiri tekjum í rík­is­sjóð. Við í Viðreisn viljum ræða umbætur í sjáv­ar­út­vegi af yfir­vegun. Við viljum ekki stilla útgerð­ar­mönnum upp sem and­stæð­ingum þeirra sem vilja breyt­ingar. Það er þeirra hagur að fá stöð­ug­leika til langs tíma í grein­ina og þeir hljóta að átta sig á því að þeir verða að taka þátt í því að breyta kerf­inu.“

En er ekki leiðin ykkar ósköp svipuð þeirri sem Sam­fylk­ingin tal­aði alltaf fyrir, sem­sagt fyrn­ing­ar­leið­inni? 

„Sam­fylk­ingin tal­aði fyrir ekki ósvip­aðri leið og lagði fram þing­mál strax eftir hrun og svo aftur nokkrum árum seinna. Ég er hins vegar þeirrar skoð­unar að þegar mikið upp­nám er í þjóð­fé­lag­inu megi ekki breyta og koll­varpa öllu í ein­hverri geðs­hrær­ingu. Fólk nær ekki yfir­vegun og yfir­sýn yfir málin þegar allt er í upp­námi, og mér fannst kjör­tíma­bil vinstri stjórn­ar­innar ekki heppi­legur tími til að fara í slíkar breyt­ingar. Enda voru önnur risa­mál á dag­skrá hennar. Nú er hins vegar lag og mik­il­vægt að vinna að þessum breyt­ingum sem fyrst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár