Þegar rökkva tekur Þessir ungu menn kveiktu eld þegar rökkva tók og hófu und­ir­bún­ing kvöld­mál­tíðar. Mynd: Jón Bjarki

Kakkalakkarnir í frumskóginum

Þúsundir ein­stak­linga halda til í flótta­manna­búðum við Erma­sundið sem hefur verið lýst sem þeim verstu í heimi. Þrátt fyrir bág­bornar aðstæður í „frum­skóg­inum“ eins og búð­irnar eru kall­aðar hefur íbú­unum tek­ist að byggja upp sam­fé­lag sem þeir til­heyra. Þar til nýlega mátti finna ýmsa þjón­ustu í þorp­inu, svo sem bóka­söfn, menn­ing­ar­mið­stöðvar, veit­inga­staði, moskur, kaffi­hús og kirkjur. Frönsk yfir­völd rifu hins vegar niður stóran hluta búð­anna og óvissa ríkir um fram­haldið.

Vind­ur­inn gnauðar og bland­ast takt­föstum hávaða frá olíu­raf­stöðv­unum sem keyra á fullum snún­ingi utan við mis­reisu­lega spýtna­kofa og tæt­ings­leg tjöld. Megn bruna­lykt liggur í loft­inu og sest í föt þeirra sem ganga fram og aftur leðju­fullan veg­inn, fram hjá versl­unum, veit­inga­stöðum og kaffi­húsum á borð við „Kabul Café“ og „Hamid Karzai Rastor­ant“. Ungur afganskur maður stendur kapp­dúð­aður í einni dyra­gætt­inni og veifar hel­bláum vísi­fingri. Honum virð­ist ljóst að þennan fingur þurfi að höggva af og sýnir það æðru­laus á fingra­máli. Í fjarska má sjá hópa svart­klæddra óeirð­ar­lög­reglu­manna standa vörð um skurð­gröfur sem eru að jafna hrör­leg híbýli við jörðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Evrópumál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár