Kaj Anton ætlar að áfrýja: Gæti fengið þyngri dóm

Íslend­ing­ur­inn Kaj Anton Arn­ars­son, sem í gær fékk 26 mán­aða dóm fyrir að mis­þyrma barni tvo daga í röð, ætlar að áfrýja dómnum. Hann gæti fengið þyngri dóm ef fund­inn sekur.

Kaj Anton ætlar að áfrýja: Gæti fengið þyngri dóm
Ætlar „alla leið“ Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar ætlar Kaj Anton alla leið með mál sitt í rétt­ar­kerfi Noregs sem þýðir að á end­anum mun hæsti­réttur taka málið fyrir.

Dómstóll í Stavangri í Noregi dæmdi í gær Íslend­ing­inn Kaj Anton Arn­ars­son til 26 mán­aða fang­els­is­vistar. Það þótti sannað að Kaj Anton hafi mis­þyrmt tveggja ára íslenskum dreng hrotta­lega á heim­ili drengs­ins og fyrir utan það í októ­ber í fyrra. Kaj Anton hefur lýst yfir sak­leysi sínu en hann hefur setið í fang­elsi frá því hann var hand­tek­inn eða í um átta mán­uði.

Með glóðurauga
Með glóð­ur­auga Læknir sem gerði að sárum drengs­ins grét í vitna­stúkunni þegar ljós­myndir af áverk­unum voru sýndar dóm­ara máls­ins.

„Barnið hafi dottið tvisvar á sama stað, á sama þrös­k­uldi, tvo daga í röð.“

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar mun lög­fræð­ingur hans áfrýja dómnum í Stavangri en ekki liggur fyrir hvort milli­dóms­stigið í Noregi komi til með að taka málið til með­ferðar eða hvort það fari beint til hæsta­réttar þar í landi. Samkvæmt sömu heim­ildum gæti Kaj Anton, ef dóm­ur­inn yrði stað­festur, fengið þyngri dóm en aðstand­endur litla drengs­ins sem var mis­þyrmt sögðu refs­ing­una  „hlægi­lega“ í sam­tali við Stundina í gær.

Áverkarnir koma ekki heim og saman við frásögn Kaj Antons

Ekkert þeirra fékk að vera við dóms­upp­kvaðn­ingu, þess í stað fékk móðir drengs­ins sím­tal þar sem henni var tjáð að Kaj Anton hafi verið fund­inn sekur og þá upp­hæð sem dreng­ur­inn hafi fengið í miska­bætur.

Blaða­maður Stund­ar­innar hefur fjallað ítar­lega um málið frá því það kom upp í októ­ber í fyrra og meðal ann­ars greint frá for­sögu þess á vefnum. Samkvæmt dóms­skjölum eru upp­lýs­ingar sem fram komu í frétt­inni á pari við það sem fór fram í dóms­salnum. Þar hélt Kaj Anton því meðal ann­ars fram að barnið hafi dottið tvisvar, mögu­lega þrisvar. Það hafi gerst út frá ein­hverri teg­und elt­inga­leiks þar sem barnið hljóp undan Kaj Antoni. Barnið hafi dottið tvisvar á sama stað, á sama þrös­k­uldi, tvo daga í röð.

Áverk­arnir, sam­kvæmt læknum og starfs­fólki sjúkra­húss­ins sem bar vitni fyrir dómnum, komu ekki heim og saman við frá­sögn Kaj Antons en áverk­arnir sem barnið hlaut eru í lík­ingu við það sem börn á hans aldri hljóta í alvar­legum bílslysum.

Lengi að jafna sig
Lengi að jafna sig Dreng­ur­inn er enn að jafna sig and­lega eftir áverk­ana sem hann hlaut þegar hann var í pössun hjá Kaj Antoni þessa örlaga­ríku daga í októ­ber!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár