Vísindi staðfesta ávinning af hugleiðslu

Vís­inda­menn hafa und­an­farna ára­tugi upp­götvað sífellt meira um hinn gríð­ar­lega and­lega og lík­am­lega ávinn­ing sem hlýst af því að stunda hug­leiðslu.

Vísindi staðfesta ávinning af hugleiðslu
Tian Tan Buddha-styttan í Hong Kong Sýnir prins­inn Sidd­hartha Gautama, betur þekktan undir nafn­inu Búdda, í hug­leiðslu. Styttan er 34 metra há, ein sú stærsta í heimi. Mynd: Wilfredo R. Rodriguez H.

Hug­leiðsla er mörg þús­und ára gömul aðferð við að friða hug­ann. Svo gömul reyndar að sumir vís­inda­menn hafa leitt að því líkum að hug­leiðsla hafi jafn­vel átt þátt í líf­fræði­legri þróun mann­skepn­unnar.

Flest trú­ar­brögð hafa fléttað hug­leiðsl­una ræki­lega inn í dag­legt líf sinna með­lima. Bænir, mön­trur og aðrar athafnir innan trú­ar­bragð­anna eru oftar en ekki bland­aðar með ein­hverjum hlutum hug­leiðsl­unnar.

Engin þörf er hins vegar á því að aðhyll­ast trú­ar­brögð til þess að geta stundað hug­leiðslu og eru þess fjöl­mörg dæmi að ver­ald­legar mann­eskjur, jafn­vel and­snúnar trú­ar­brögðum, geti stundað hana sér til góðs. En hverjar eru þessar ákjós­an­legu afleið­ingar þess að stunda hug­leiðslu?

1. Heilinn og líðan

 

Æfingar í núvitund slá á þunglyndi

Rannsókn sem gerð var í fimm skólum í Belgíu á um 400 nem­endum á aldr­inum 13–20 ára leiddi í ljós að „nem­endur sem tóku þátt í hug­leiðslu­nám­skeiði innan skól­ans sögð­ust upp­lifa minna þung­lyndi, kvíða og stress í allt að hálft ár eftir að nám­skeið­inu lauk. Einnig voru nem­end­urnir ólík­legri til þess að þróa með sér önnur ein­kenni þung­lyndis.“

Önnur rann­sókn, sem gerð var við Kali­forníu-háskóla á sjúk­lingum sem höfðu þjáðst af þung­lyndi sýndi fram á að hug­leiðsla minnk­aði nið­ur­rifs­hugs­anir og óupp­byggi­legar skoð­anir. 

Enn önnur rann­sókn sem birt­ist í Scientific American-tíma­rit­inu benti til þess að hug­leiðsla gæti verið jafn árang­urs­rík í að með­höndla þung­lyndi og með­ferð með þung­lynd­is­lyfjum. 

Heim­ildir: ScienceDaily, Link Springer, Jama Network

 

Þunglyndi
Þung­lyndi er algengur og gríð­ar­lega hamlandi sjúk­dómur.

Hugleiðsla hjálpar til við meðferð á þunglyndi óléttra kvenna

Konur í áhættu­með­göngu sem tóku þátt í tíu vikna jóga­þjálfun í núvit­und sáu umtals­verða fækkun í ein­kennum þung­lyndis, sam­kvæmt rann­sókn Michigan-háskóla. Hinar vænt­an­legu mæður sýndu einnig fram á aukna teng­ingu við ófædd börn sín. Nið­ur­stöð­urnar voru birtar í tíma­rit­inu Complementary Ther­apies in Clinical Practice. 

Heimild: Medical News Today

 

Ólétta
Ólétta getur dregið upp and­lega kvilla hjá mörgum konum.

Hugleiðsla slær á kvíðaröskun, streitu og eykur tilfinningalegt jafnvægi

Rannsókn Wisconsin-Madison-háskóla benti til þess að opin-með­vit­und hug­leiðsla minnk­aði teng­ingar í þeim hluta heil­ans sem teng­ist kvíða og stressi. Þeir sem hug­leiddu voru færir um að „fara frá einni stund yfir í aðra í straumi áreitis sem þeir voru látnir upp­lifa og voru ólík­legri til að fest­ast í einu áreiti“. Hug­leiðsla sem ein­blínir á opna með­vit­und gengur út á að upp­lifa og fylgj­ast með án þess að þurfa að bregð­ast við áreiti. Er hún notuð til þess að bera kennsl á eðli mynstra í til­finn­ingum og hegð­unum. 

Heim­ildir: The Journal of Alt­ernative and Complementary Medicine, Jama Network, NCBI, Wiley Online Library, The American Journal of Psychiatry, ScienceDirect, American Psychological Association, American Psychosomtic Medicine Journal , Medical News Today

 

Kvíði
Kvíði getur verið mikið mein þegar hann verður sjúk­legur.

Hugleiðsla minnkar einkenni felmtursröskunar (kvíðaröskunar)

Í rann­sókn sem birt var í tíma­rit­inu American Journal of Psychiatry voru 22 sjúk­lingar, sem greindir höfðu verið með kvíða­röskun og felmt­urs­röskun, látnir hug­leiða í þrjá mán­uði ásamt kennslu í slökun. Nið­ur­stöð­urnar voru þær að 20 sjúk­ling­anna fundu fyrir umtals­vert minni kvíða og streitu og voru þær breyt­ingar stað­festar í eft­ir­fylgni. 

Heimild: American Journal of Psychiatry

 

Slökun
Slökun sem fæst í gegnum hug­leiðslu virð­ist gagn­ast fólki sem glímir við mik­inn kvíða.

Hugleiðsla eykur þéttingu gráa efnis heilans

Hópur vís­inda­manna við Harvard-háskóla, sem sér­hæfa sig í tauga­vís­indum, gerðu til­raun þar sem 16 ein­stak­lingar fóru í gegnum 8 vikna nám­skeið í núvit­und. Þar voru þeir leiddir í gegnum hug­leiðslu og látnir beita núvit­und í sínu dag­lega lífi. Hluti af nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar voru sneið­mynda­tökur. Sýndu þær fram á að þétt­ing gráa efnis í heil­anum hafði auk­ist á þeim svæðum þar sem lær­dómur og minni, stjórn til­finn­inga og upp­lifun af sjálf­inu er að finna. Önnur rann­sókn sýndi fram á stærri dreka (e. Hippocampal, svæði við miðju heil­ans) og meira magn af gráu efni í fram­heila hjá fólki sem hafði stundað hug­leiðslu lengi. 

Heim­ildir: Psychiatry Research Neuroimaging, ScienceDirect

 

Gráa efnið
Gráa efnið og hvíta efnið eru helstu vefir heil­ans og mæn­unnar.

Hugleiðsla eykur gríðarlega viðbragðsflýti heilans og getur minnkað svefnþörf

Rannsókn sem fór fram við Háskól­ann í Kentucky próf­aði ein­stak­linga í fjórum mis­mun­andi atriðum og rann­sak­aði áhrif þeirra á svefn. Fyrsti hóp­ur­inn breytti engu, annar hóp­ur­inn var lát­inn taka blund yfir dag­inn, þriðji hóp­ur­inn stund­aði hug­leiðslu og fjórði hóp­ur­inn var sviptur svefni og lát­inn hug­leiða.

Þátt­tak­endur skipt­ust í þrjá hópa; fólk sem aldrei hafði hug­leitt, fólk sem hafði ein­hverja reynslu af hug­leiðslu og að lokum ein­stak­lingar sem stund­uðu og höfðu mikla reynslu af hug­leiðslu. Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru að hug­leiðsla hefði, í það minnsta til skamms tíma, jákvæð áhrif á svefn, jafn­vel hjá fólki með enga reynslu af hug­leiðslu. Einnig var sýnt fram á að fólk sem hefði mikla reynslu af hug­leiðslu þurfti umtals­vert minni svefn heldur en það fólk sem stund­aði enga hug­leiðslu. Enn er þó verið að rann­saka hvort hug­leiðsla geti komið í stað svefn­tíma eða hvort hægt sé að vinna upp svefnskuld með þeirri ástundun. 

Heim­ildir: NCBI, DoctorsOnTM, Time Magazine

 

Svefn
Svefn er ein tíma­frekasta athöfn mann­skepn­unnar.

Hugleiðsla til lengri tíma eykur færni heilans í því að senda frá sér gamma-bylgjur

Í rann­sókn á tíbeskum búdda­munkum, sem gerð var af tauga­sér­fræð­ingnum Richard Davidson frá Háskól­anum í Wisconsin, var sýnt fram á að fólk með lág­marks reynslu af hug­leiðslu sýndi fram á örlitla aukn­ingu í gamma-virkni, en flestir munkar „höfðu gríð­ar­lega aukna virkni, svo mikla að tauga­vís­inda­menn hafa ekki séð annað eins“. 

Heimild: The Wall Street Journal

 

Heilinn
Heilinn er tal­inn starfa á fimm bylgju­tíðnum, þar af er minnst vitað um virkni gamma.

Hugleiðsla dregur úr misnotkun áfengis og fíkniefna

Fíklum og alkó­hólistum hefur lengi verið ráð­lagt að prófa ástundun hug­leiðslu til þess að draga úr þrá­hyggju­kenndri hugsun. Rann­sóknir sem gerðar voru á föngum sem áttu við fíkni­vanda að stríða virt­ust benda til þess að hug­leiðsla gæti dregið veru­lega úr áfengis- og fíkni­efna­neyslu.

Heimild: Journal Of Alt­ernative and Complementary Medicine

Neysla
Neysla og afleið­ingar hennar eru bæði gríð­ar­lega íþyngj­andi fyrir ein­stak­linga sem og sam­fé­lagið í heild.

2. Hugur og virkni

 

Hugleiðsla eykur athyglisgáfu, einbeitingu og hæfileikann til að vinna undir álagi

Könnun sem Katherine MacLean frá Háskól­anum í Kali­forníu bendir til þess að eftir þjálfun í hug­leiðslu væru við­fangs­efnin hennar fær­ari í að halda ein­beit­ingu, sér­stak­lega við verk­efni sem þeim fannst leið­in­leg og ein­kenn­ast af end­ur­tekn­ingu.

Önnur rann­sókn benti til þess að aðeins 20 mín­útna hug­leiðsla á dag væri nóg til þess að nem­endur stæðu sig umtals­vert betur í prófum sem mældu greind, í sumum til­fellum allt að tíu sinnum betri en hóp­ur­inn sem ekki hug­leiddi. Þeir stóðu sig einnig betur í verk­efnum þar sem vinna þurfti úr upp­lýs­ingum sem voru hönnuð til þess að ýta undir stress sem fylgir skilum á verk­efnum.

Þá voru jafn­vel vís­bend­ingar um að hug­leið­endur væru með þykk­ari fra­menn­is­börk og hægra eyja­blað í heila, og einnig að hug­leiðsla gæti dregið úr líkum á greind­ar­tapi á efri árum.

Heim­ildir: Time Magazine, NCBI, Link Springer

Guðinn Atlas
Guðinn Atlas var undir tölu­verðu álagi með heim­inn á herðum sér.

Hugleiðsla auðveldar úrvinnslu úr upplýsingum og ákvarðanatöku

Eileen Luders, aðstoð­ar­pró­fessor við Kali­forníu-háskóla í Los Angeles, hefur ásamt sam­starfs­fólki sínu kom­ist að því að fólk sem stundað hefur hug­leiðslu lengi er með fleiri fell­ingar í heil­anum (krump­urnar sem gera heil­anum kleift að vinna hraðar úr upp­lýs­ingum) heldur en fólk sem stundar enga hug­leiðslu. Vís­inda­menn telja að fell­ing­arnar séu ábyrgar fyrir því að heil­inn sé betri í að vinna úr upp­lýs­ingum, taka ákvarð­anir, mynda minn­ingar og halda athygli.

Heimild: UCLA Newsroom

 

Krumpur
Krumpur og fell­ingar eru jákvæðar, sér­stak­lega ef stað­settar á heil­anum.

Hugleiðsla auðveldar þér að takast á við sársauka

Við Háskól­ann í Montreal voru 13 Zen-meist­arar og 13 sam­bæri­legir ein­stak­lingar, sem ekki stund­uðu hug­leiðslu, látnir upp­lifa sama sárs­auka­fulla hit­ann á meðan fylgst var með heila­starf­semi þeirra í MRI-heilaskanna. Nið­ur­stöð­urnar voru þær að Zen-meist­ar­arnir upp­lifðu minni sárs­auka. Reyndar sögð­ust þeir hafa upp­lifað minni sárs­auka heldur en heilas­kann­inn benti til þess að þeir væru að ganga í gegnum. Þannig að þrátt fyrir að heil­inn hafi verið að fá sömu skila­boð um sárs­auka og hinir þátt­tak­end­urnir, þá upp­lifðu þeir hann ekki eins mik­inn.

Heim­ildir: Time Magazine, NCBI, David Lynch Foundation

Sársauki
Sársauki kom ólíkt fram á heilaskönnum eftir því hvort ein­tak­ling­arnir stund­uðu hug­leiðslu eða ekki.

Hugleiðsla er meira verkjastillandi en morfín

Í til­raun sem var fram­kvæmd af Wake Forest Baptist Medical Centre sátu 15 heil­brigðir ein­stak­lingar, sem höfðu enga reynslu af hug­leiðslu, látnir sitja fjóra 20 mín­útna tíma þar sem þeim var kennd hug­leiðsla með því að ein­beita sér að önd­un­inni. Bæði fyrir og eftir hug­leiðslu­kennsl­una var heili þátt­tak­enda skann­aður með sneið­mynda­töku á meðan þeir voru látnir upp­lifa sárs­auka.

Dr. Fadel Zeidan, sem leiddi rann­sókn­ina, sagði: „Þetta er fyrsta rann­sóknin sem sýnir fram á að rétt rúm­lega klukku­stundar kennsla í hug­leiðslu geti bæði minnkað upp­lifun­ina af sárs­auka umtals­vert og einnig sárs­auka­virkni heil­ans. (...) Við sáum tölu­verð áhrif – um 40% minnkun á sárs­auka­upp­lifun og 57% minnkun í óþæg­indum vegna sárs­auka. Hug­leiðslan olli meiri minnkun í sárs­auka heldur en mor­fín eða önnur verkja­still­andi lyf, sem venju­lega minnka sárs­auka um 25%.“

Heimild: Huffington Post

Morfín
Morfín er unnið úr ópíum sem er unnið úr poppy-jurt­inni fal­legu.

Með hugleiðslu má hafa hemil á ADHD (athyglisbrest og ofvirkni)

Í könnun sem gerð var á 50 full­orðnum ein­stak­lingum með ADHD var hóp­ur­inn lát­inn und­ir­gang­ast MBCT (Mind­ful­ness-based cognitive ther­apy) [e. Huglæga atferl­is­með­ferð byggða á núvit­und]. Var mæl­an­leg minnkun í ofvirkni, minni hvat­vísi og auk­inn hæfi­leiki í að „fram­kvæma-með-með­vit­und“. Alls sögð­ust rann­sak­endur sjá merki um minnkun í öllum ein­kennum rösk­un­ar­innar.

Heim­ildir: Clinical Neuroph­ysi­ology Journal, DoctorsOnTM

ADHD
ADHD í full­orðnum og börnum er ekki fylli­lega rann­sakað fyr­ir­brigði, en hug­leiðsla virð­ist slá á ein­kennin.

Hugleiðsla eykur hæfileikann til að halda athygli þrátt fyrir truflanir

Rannsókn sem Emory-háskól­inn í Atlanta gerði benti til þess að þátt­tak­endur með reynslu af hug­leiðslu væru með fleiri teng­ingar í þeim hluta heil­ans sem geymir athygl­is­gáf­una. Þessar tauga­teng­ingar eru taldar hafa tölu­vert um þróun ýmissa hug­rænna hæfi­leika að segja, eins og að halda athygli og að úti­loka allt sem truflar ein­beit­ingu.

Enn­fremur sagði í nið­ur­stöð­unum að ávinn­ing væri einnig að sjá í dag­legu lífi fólks, sem bendir til þess að hug­leiðslan hafi jákvæð áhrif á ein­beit­ingu almennt.

Heimild: Fronti­ers Journal

Einbeiting
Ein­beit­ing er ekki auð­veldur áfanga­staður í dag­legu amstri nútíma­fólks.
 

Hugleiðsla kemur í veg fyrir að fólk hlaði á sig of mörgum verkefnum

Það er lífseig goð­sögn að fólk sem tekur að sér fjölda verk­efna í einu afkasti meira, auk þess sem það orsakar streitu. Að skipta á milli verk­efna er erfitt fyrir heil­ann og lætur fólki líða eins og stöðugt sé verið að trufla það, auk þess sem fólk verður óánægð­ara meðan á vinn­unni stendur.

Í rann­sókn sem var fram­kvæmd af Washington-háskóla og Arizona-háskóla var starfs­fólki í mannauðs­stjórnun gert að sækja 8 vikna nám­skeið í ann­að­hvort núvit­undar-hug­leiðslu eða afslöpp­un­ar­tækni. Þeim var svo úthlutað streitu­vald­andi prófi þar sem þau þurftu að vinna fjölda verk­efna á sama tíma, bæði fyrir og eftir nám­skeiðin. Starfs­fólkið sem hafði lært hug­leiðslu upp­lifði minni streitu og sýndi fram á betra minni í próf­unum heldur en sam­an­burð­ar­hóp­ur­inn. Þeir skiptu einnig sjaldnar á milli verk­efna og sýndu meiri ein­beit­ingu þegar unnið var að hverju og einu verki.

Heimild: ACM Digital Library

Of mörg verkefni
Of mörg verk­efni valda streitu og óham­ingju.

Hugleiðsla bætir orkunýtingu heilans

Þegar heil­inn þarf að taka eftir tveimur hlutum í röð, með hálfrar sek­úndu milli­bili, missir hann oft af seinni hlutnum. Þetta er kallað „athyglis-eyða“.

Í til­raun sem gerð var við Kali­forníu-háskóla var röð handa­hófs­kenndra talna látin birt­ast á tölvu­skjá, hver talan á eftir annarri. Í hverri lotu birt­ust ein eða tvær tölur á skjánum, eða þá að hann var auður. Að því loknu voru þátt­tak­endur beðnir um að skrifa niður töl­urnar sem þeir sáu.

Þátt­tak­endur sem höfðu stundað hug­leiðslu í þrjá mán­uði höfðu tals­vert betri stjórn á athygli sinni og sýndu meiri eft­ir­tekt. Heili þeirra þurfti einnig minni orku til þess að vinna verk­efnið og var með mun minni athyglis-eyðu.

Heimild: PLOS Biology

Orkusparnað
Orku­sparnað til handa heil­anum má finna í gegnum hug­leiðslu, en heil­inn er einmitt orku­frekasta líf­færið.

Hugleiðsla býr þig undir að takast á við streituvalda

Rannsókn sem fram­kvæmd var af All India Institute of Medical Sciences á 32 full­orðnum ein­stak­lingum, sem aldrei höfðu hug­leitt, sýndi fram á að ef hug­leitt var fyrir atburði sem valda streitu voru nei­kvæð áhrif streit­unnar umtals­vert minni.

Heimild: The Journal of Alt­ernative and Complementary Medicine

Baden Powell
Baden Powell stofn­andi skáta­hreyf­ing­ar­innar, hvatti liðs­menn sína til að vera ávallt við­búna, jafn­vel undir streitu­valda.

Hugleiðsla eykur meðvitund um ómiðvitaðan huga þinn

Rannsókn sem gerð var við Háskól­ann í Sussex í Bret­landi komst að þeirri nið­ur­stöðu að fólk sem stundar hug­leiðslu bíður lengur eftir að hafa upp­lifað ómeð­vit­aðar hvatir áður en brugð­ist er við þeim. Einnig er það fólk minna mót­tæki­legt fyrir dáleiðslu.

Heimild: New Scientist

 

Undirmeðvitundin
Und­ir­með­vit­undin er dul­ar­fullt fyr­ir­brigði.

Hugleiðsla eykur sköpunargleði

Rannsókn við Leiden-háskól­ann í Hollandi sýndi fram að að ástundun opin-með­vit­und hug­leiðslu (þar sem fylgst er með til­ver­unni án þess að bregð­ast við) hefur jákvæð áhrif á sköpun og fjöl­breytta hugsun. Þátt­tak­endur sem höfðu stundað hug­leiðslu stóðu sig betur í verk­efnum þar sem þeir voru beðnir um að koma með skap­andi nýjar hug­myndir.

Heimild: The Journal of Alt­ernative and Complementary Medicine

 

Skapandi
Skapandi hugs­anir virð­ast þríf­ast vel í hug­leið­andi ein­stak­lingum.

3. Líkami og heilsa

 

Hugleiðsla minnkar líkurnar á hjartasjúkdómum og heilablóðföllum

Samkvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni deyr fleira fólk úr hjarta­sjúk­dómum á heims­vísu en úr nokkrum öðrum sjúk­dómum. 

Í könnun sem birt var árið 2012 var hóp rúm­lega 200 ein­stak­linga í áhættu­hóp boðið að ann­að­hvort sækja nám­skeið sem kenndi bætt matar­æði og hreyf­ingu eða sækja nám­skeið í hug­leiðslu. Á næstu fimm árum fylgd­ust rann­sak­endur með þátt­tak­endum og komust að því að 48% minni líkur voru á hjarta­á­föllum og heila­blóð­föllum hjá þeim sem sátu hug­leiðslu­nám­skeiðið.

Rann­sak­endur sögðu hug­leiðsl­una „minnka umtals­vert lík­urnar á and­láti, hjarta­á­föllum og heila­blóð­föllum í sjúk­lingum sem áttu við slag­æða­sjúk­dóma að stríða. Breyt­ing­arnar tengd­ust meðal ann­ars lægri blóð­þrýst­ingi og minni streitu.“

Heim­ildir: Time Magazine, American Heart Association, HealthCentral

 

Lífið
Lífið gæti orðið lengra með meira and­legu jafn­vægi.

Hugleiðsla hefur áhrif á genin sem stýra streitu og ónæmiskerfinu

Í rann­sókn sem Harvard Medical School gerði var sýnt fram á að eftir ástundun jóga og hug­leiðslu voru þátt­tak­endur með meiri orku­fram­leiðslu, orku­nýt­ingu og þol í hvat­berum sem stýra ónæm­is­kerf­inu. Þetta hafði svo í för með sér öfl­ugra ónæm­is­kerfi og meira við­nám við streitu.

Heim­ildir: Bloomberg, NCBI, American Psychosomatic Medicine Journal, Journal of International Society of Psychoneuroendocrinology

 

Ónæmiskerfið
Ónæm­is­kerfið og hvat­berar þess virð­ast njóta góðs af hug­leiðslu.

Hugleiðsla lækkar blóðþrýsting

Klínískar rann­sóknir hafa sýnt fram á að ástundun Zen-hug­leiðslu minnkar streitu og lækkar blóð­þrýst­ing. Aðrar rann­sóknir hafa skilað svip­uðum nið­ur­stöðum, þar sem allt að ⅔ þátt­tak­enda með of háan blóð­þrýst­ing voru með umtals­vert lægri blóð­þrýst­ing eftir þrjá mán­uði af hug­leiðslu. Var í kjöl­farið hægt að draga tölu­vert úr lyfja­gjöf hjá þeim ein­stak­lingum. Þetta er talin afleið­ing þess að afslöpp­unin veldur myndun nit­uroxíð, sem opnar æðarnar meira.

Heim­ildir: The Journal of Alt­ernative and Complimentary Medicine, NPR News

Blóðþrýstingur
Blóð­þrýst­ingur lækkar við hug­leiðslu, sem veldur myndun nit­uroxíðs, sem víkkar æðarnar.

Hugleiðsla slær á bólgusjúkdóma

Rannsókn sem fram­kvæmd var í Frakk­landi og Spáni við UW-Madison Waisman Centre bendir til þess að ástundun hug­leiðslu valdi bæði genat­ískum- og sam­einda­breyt­ingum á þátt­tak­endum sínum. Tóku rann­sak­endur eftir fækkun gena sem eru lík­legri til að valda bólgum, sem svo veldur sneggri lík­am­legri bata í kjöl­far streitu­vald­andi ástands.

Heim­ildir: Uni­versity of Winsconsin Madison, HealthCentral,  Medical News Today

 

Gen
Gen hafa tals­vert, ef ekki allt, um útlit, hegðun og ástand lík­ama okkar að gera.

Hugleiðsla getur komið í veg fyrir asma, gigt og bólgur í meltingarfærum

Í rann­sóknum sem gerðar voru af tauga­sér­fræð­ingum við Háskól­ann í Wisconsin-Madison var þátt­tak­endum skipt í tvo hópa og þeim kynntar ólíkar aðferðir við að takast á við streitu. Annar hóp­ur­inn lærði hug­leiðslu á meðan hinn hóp­ur­inn sat nám­skeið í nær­ing­ar­fræðum, lík­ams­rækt og tón­listar-þerapíu. Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru að hug­leiðsla væri umtals­vert betri í að takast á við og koma í veg fyrir sjúk­dóma sem geta verið afleið­ingar streitu, til dæmis gigt, maga­bólgur og asma, heldur en aðrar aðferðir sem bæta eiga and­lega vel­ferð.

Heimild: Medical News Today

 

Streita
Streita getur valdið ýmsum lík­am­legum kvillum.

Hugleiðsla hjálpar til við að takast á við fyrirtíðarspennu og tíðahvörf

Tugir rann­sókna sem birst hafa í fjölda vís­inda­rita benda allar til þess að hug­leiðsla geti slegið á sárs­auka og ein­kenni sem fylgja fyr­ir­tíð­ar­spennu og tíða­hvörfum.

Heimild: The Journal of Alt­ernative and Complementary Medicine

Tíðahvörf
Tíða­hvörf Ásamt fyr­ir­tíð­ar­spennu leggj­ast tíða­hvörf þungt á margar konur.

Núvitundar-hugleiðsla dregur úr líkum á Alzheimer og ótímabærum dauða

Nið­ur­stöður rann­sóknar sem birt var í vefrit­inu Brain, Behavior and Immunity benda til þess að 30 mín­útna hug­leiðsla á dag dragi veru­lega úr ein­mana­leika, minnki lík­urnar á hjarta­sjúk­dómum, þung­lyndi, Alzheimers og ótíma­bærum dauða.

Heimild: HealthCentral

 

Alzheimer
Alzheimer er ill­vígur og ógn­vekj­andi sjúk­dómur.

Hugleiðsla hjálpar sjúklingum með vefjagigt

Í rann­sókn sem birt­ist í tíma­rit­inu PubMed gengu 11 sjúk­lingar með vefja­gigt í gegnum 8 vikna þjálfun í hug­leiðslu. Nið­ur­stöður rann­sak­enda voru að umtals­verð bæt­ing hefði verið á almennri heilsu þátt­tak­enda. Einkenni eins og stífni, kvíði og þung­lyndi höfðu öll minnkað. Einnig var mikil aukn­ing á dögum þar sem þátt­tak­endum „leið vel“ auk þess sem dögum þar sem þeir misstu úr vinnu vegna veik­ind­anna fækk­aði.

Heim­ildir: NCBI (1), NCBI (2), Psychotherapy and Psychosomatics Journal

 

Vefjagigt
Vefja­gigt leggst bæði á lík­ama og sál.

Hugleiðsla róar hjartslátt og öndun

Í rann­sókn sem birt­ist í Korean Association of Genuine Traditional Medicine var sýnt fram á að fólk sem var látið stunda hug­leiðslu hafði umtals­vert rólegri hjart­slátt og önd­un­ar­tíðni í allt að 8 mán­uði eftir að þjálfun­inni í hug­leiðslu lauk.

Heimild: KoreaScience

 

Hjartað
Hjartað virð­ist slá hægar með rólegri huga.

Hugleiðsla gæti jafnvel hjálpað til við að takast á við HIV

Eitilfrum­urnar, eða ein­fald­lega CD4 T frumur, eru „heili“ ónæm­is­kerf­is­ins og sam­hæfa aðgerðir þess þegar lík­am­anum er ógnað. Það eru einmitt frum­urnar sem HIV leggst hvað harð­ast gegn, vírus­inn skæði sem veldur eyðni og um 40 millj­ónir manna um heim allan þjást af. Vírusinn tætir smám saman í sundur allar CD4 T frum­urnar og veikir þannig ónæm­is­kerfið.

En ónæm­is­kerfi eyðni­sjúk­linga stendur frammi fyrir öðrum óvini á sama tíma – streitu, sem getur hraðað eyð­ingu CD4 T frumna. Vís­inda­menn við Kali­forníu-háskól­ann í Los Angeles hafa nú birt þær nið­ur­stöður að ástundun hug­leiðslu hafi stöðvað eyð­ingu CD4 T frumna í HIV-sjúk­lingum sem þjást af streitu, og þannig hægt á fram­göngu sjúk­dóms­ins.

Vís­inda­menn­irnir settu af stað átta vikna kennslu í hug­leiðslu sem hafði það mark­mið að draga úr streitu. Þeir próf­uðu þessar mis­mun­andi aðferðir svo á 48 full­orðnum ein­stak­lingum sem voru bæði undir mik­illi streitu og með eyðni. Þeir ein­stak­lingar sem tóku þátt í átta vikna kennsl­unni sýndu enga hnignun í fjölda CD4 T frumna, sem bendir til þess að þjálfun í hug­leiðslu geti stöðvað hrörnun þeirra frumna. Aftur á móti sýndi hóp­ur­inn sem borið var saman við, sem hafði enga hug­leiðslu stundað, umtals­verða hnignun í CD4 T frá því mæl­ingar hófust, sem er dæmi­gerð fyrir þróun sjúk­dóms­ins.  

Heimild: ScienceDaily

 

HIV
HIV Hér er litað grænt, á víð og dreif um eitilfrumu. Myndin er tekin í raf­einda­smá­sjá.

Hugleiðsla gæti gert þér kleift að lifa lengur

Telomeres eru sá hluti litn­inga sem ákvarðar hvernig frumur eld­ast. Þrátt fyrir að rann­sóknir séu ekki afger­andi enn, þá eru vissar nið­ur­stöður sem benda til þess að „ákveðnar teg­undir hug­leiðslu geti haft jákvæð áhrif á líf­tíma telomere í litn­ingum, og þar með frumna, með því að draga úr streitu og streitu­völdum. Auk þess eykur hug­leiðslan jákvætt hug­ar­far og veldur horm­óna­breyt­ingum sem geta enn bætt líf­tíma telomere í litn­ingum.“

Heimild: Wiley Online Library

 

IDDQD
IDDQD var svindlkóði þar sem menn voru ódrep­andi í tölvu­leiknum DOOM.

Hugleiðsla getur slegið á sóríasis

Andleg streita getur orsakað bólgur í lík­am­anum. Þegar stutt kennsla í hug­leiðslu var spiluð fyrir sjúk­linga á meðan þeir voru í með­ferð með útfjólu­bláum geislum varð það til þess að sór­í­asis-útbrot þeirra minnk­uðu meira en í sam­bæri­legum hópum þar sem engin hug­leiðsla var notuð.

Heim­ildir: NCBI (1, 2).

 

Útfjólublátt ljós
Útfjólu­blátt ljós hefur betri virkni á sór­í­asis ef hug­leitt er sam­hliða með­ferð.

 

4. Sambönd

 

Hugleiðsla eykur samkennd og jákvæðni í samböndum

Í búddískum hefðum stundar fólk metta, hug­leiðslu sem gengur út á ást og sam­kennd. Þar ein­beitir sá sem hug­leiðir sér að því að þróa með sér vel­vild og samúð í garð allra lif­andi vera. Samkvæmt rann­sókn Emory-háskóla geta slíkar æfingar aukið hæfi­leika fólks til þess að finna til sam­kenndar með öðru fólki með því að lesa í and­lit­stján­ingu þeirra.

Önnur rann­sókn bendir til þess að hinar jákvæðu til­finn­ingar sem verða til með því að hlúa að sam­kennd hafi aðrar áhuga­verðar afleið­ingar í för með sér, til dæmis meiri kær­leik í eigin garð, að sam­þykkja sjálfan sig, sækja sér frekar hjálp og jákvæð­ari sam­bönd við annað fólk. Auk þess eykur það þá til­finn­ingu hjá við­kom­andi að hann sé hæfur til að lifa sínu lífi.

Heim­ildir: ScienceDaily, NCBI, PLOS One

 

Sambönd
Sambönd njóta góðs af samúð og sam­kennd sem eykst með hug­leiðslu.

Hugleiðsla dregur úr félagslegri einangrun

Í rann­sókn sem birt­ist í American Psychological Association, áttu ein­stak­lingar sem höfðu aðeins stundað nokkrar mín­útur af hug­leiðslu auð­veld­ara með að finna fyrir félags­legri teng­ingu við nýja ein­stak­linga. Nið­ur­stöð­urnar benda til þess að aðferð­ina mætti nota til þess að auka jákvæðar félags­legar til­finn­ingar hjá fólki og draga þannig úr félags­legri ein­angrun.

Heimild: American Psychological Association

 

Robinson Crusoe
Robinson Crusoe hefði eflaust þótt ein­veran bæri­legri hefði hann haft und­ir­stöðu­þekk­ingu á hug­leiðslu.

Hugleiðsla dregur úr einmanaleik

Könnun Carnegie Mellon-háskóla bendir til þess að þjálfun í hug­leiðslu sé mjög gagn­leg til að draga úr til­finn­ing­unni fyrir ein­mana­leik, sem svo dregur úr lík­unum á þung­lyndi, sjúk­dómum og öðrum afleið­ingum nei­kvæðra til­finn­inga. Hug­leiðsla dregur einnig úr þörf­inni til að borða vegna nei­kvæðra til­finn­inga, sem minnkar svo lík­urnar á þyngd­ar­aukn­ingu.

Heim­ildir: ScienceDirect, DoctorsOnTM

 

5. Annað

Aðrar áhuga­verðar stað­reyndir um hug­leiðslu:

  • Að segja OM hljóðið (alda­gömul mantra) fyrir skurð­að­gerð hjálpar til við und­ir­bún­ing og bata í kjöl­far hennar. (Heimild: Time)

  • Þeir sem hug­leiða geta haft áhrif á raun­veru­leik­ann í kringum okkur, á sviði skammta­fræð­innar. (Heimild: Collective Evolution)

  • Því hefur verið haldið fram að æfingar í hug­leiðslu geti bætt kyn­lífið. (Heim­ildir: Pshychology Today, Clare Josa ,  Mindful)

  • Dregur úr for­dómum. (Heimild: Sage Journals)

 

Om Mani Padme Hum
Om Mani Padme Hum Mantran er hér rist í kletta­vegg í Tíbet, en sé hún kyrjuð fyrir skurð­að­gerð getur það hraðað bat­anum.

6. Niðurstaða

Ýmislegt virð­ist því benda til þess að vís­indin séu nú að stað­festa reynslu þeirra millj­óna sem hug­leiða á hverjum degi; að hug­leiðsla bæti heils­una, komi í veg fyrir sjúk­dóma, auki ham­ingju og bæti frammi­stöðu í nán­ast hvaða verk­efni sem er, and­legu eða lík­am­legu.

 

Ýtarefni, ef þú hefur áhuga:

Veftíma­ritið Healt­hline velur á hverju ári bestu smá­forritin til að hug­leiða í gegnum. Hér er listi þeirra fyrir árið 2016.

Mörgum þykir best að byrja að hug­leiða með svo­kall­aðri leiddri hug­leiðslu, og er þá vef­ur­inn og smá­forritið Headspace góð leið til að hefj­ast handa.

Vefurinn A Life of Productivity er með fína kynn­ingu á því hvernig gott sé að hefja hug­leiðslu.

Vefsíðan WikiHow er að sjálf­sögðu með stutta leið­sögn á því hvernig skuli hug­leiða.

Vef­svæðið Live and Dare er hér með ágætis yfir­lit um hinar ýmsu mis­mun­andi teg­undir hug­leiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár