Sagan öll fyrir dómi: Sakaður um að misþyrma tveggja ára barni hrottalega

Aðal­meðferð í máli Kaj Antons Arnars­sonar, 24 ára Íslend­ings sem setið hefur í fangelsi í Stavanger frá því í október á síðasta ári, er lokið. Kaj Antoni er gefið að sök að hafa misþyrmt tveggja ára íslenskum dreng hrotta­lega tvo daga í röð á meðan móðir drengsins var við vinnu. Litli drengurinn átti að vera á leikskóla en var veikur þessa örlaga­ríku daga. Sagan öll hér á vefnum.

Ótrúverðugur
Ótrú­verð­ugur Sak­sókn­ar­inn í Stavangri segir skýr­ingar Kaj Antons á áverkum barns­ins ótrú­verð­ugar. Því eru læknar í Stavangri sam­mála en einn þeirra grét í vitna­stúkunni í síð­ustu viku.

Kaj Anton Arnarsson, 24 ára Íslend­ingur, bíður nú dóms í Stavangri í Noregi en honum er gefið að sök að hafa misþyrmt tveggja ára dreng hrotta­lega. Aðal­meðferð málsins hófst í Jæran Tingsrett, sem er dómstóllinn í Sandnes í Noregi, þann 1. júní og tók hún þrjá daga. Samkvæmt upplýsingum frá embætti saksóknara í Stavangri er búist við því að dómur falli í málinu eftir tvær vikur.

Blaða­maður Stundarinnar fjallaði ítarlega um málið þegar það kom upp í október í fyrra en það vakti mikinn óhug bæði hér á Íslandi og í Noregi. Forsaga málsins er sú að Kaj Anton og móðir drengsins hittust í byrjun október á síðasta ári í partíi í Reykjavík. Þau höfðu þekkst en út frá þessum hitting í partíinu hafi þau ákveðið að Kaj Anton myndi kíkja eftir nokkra daga í heimsókn til hennar þar sem hún bjó í Noregi. Móðir drengsins hafi síðan snúið aftur til Noregs og stuttu síðar hafi Kaj Anton komið í heimsókn. Heim­sóknin hafi fljótlega farið frá því að vera stutt dvöl yfir í það að Kaj Anton hafi ákveðið að flytja alveg til Noregs og finna sér vinnu.

Flúði á næsta bóndabæ

Kaj Anton dvaldi hjá móðurinni í smá tíma áður en hann réði sig til starfa á bóndabæ í Kristiansand, þar sem hann átti að sinna hinum ýmsu störfum. Samkvæmt upplýsingum Stundarinnar entist hann aðeins 29 klukku­tíma á bónda­bænum og hélt aftur til Lye. Bóndinn sem réð Kaj Anton til vinnu bar meðal annars vitni fyrir dómnum og sagði að annað starfs­fólk á bænum, meðal annars ung stúlka frá Danmörku, hefði kvartað undan Kaj Antoni. Hann hefði sýnt af sér ógnandi hegðun og fólk hefði verið hrætt við hann. Bóndinn hefði þó ekki orðið sjálfur vitni af þessari hegðun. Þegar þeir hafi unnið saman tveir hefði honum litist ágætlega á Kaj Anton.

„Kaj Anton útskýrir fyrir henni, líkt og hann gerði fyrir dómi í síðustu viku, að þeir hafi verið í einhverjum leik sem var þannig að Kaj Anton hljóp á eftir honum og var að hræða hann.“

Þá sagði bóndinn enn fremur að Kaj Anton hefði verið að hreykja sér af því við stúlkur á staðnum að hafa lamið mann og annan á Íslandi og væri ekki hræddur við neinn. Kvöldið sem hann yfirgaf bónda­bæinn hafi hann beðið um að fá að hringja en þegar því var neitað þá hafi Kaj Anton orðið mjög reiður og skellt hurðum með fúkyrða­flaumi.

Ung dönsk stúlka sem starfaði á sama stað flúði bónda­bæinn í öllum látunum og svaf á öðrum stað umrædda nótt.

Fangelsið í Stavangri
Fangelsið í Stavangri Kaj Anton er, samkvæmt heimildum Stundarinnar, byrjaður að vinna í fangelsinu en hann hefur setið inni í tæpa átta mánuði eða frá því málið kom upp í október.

Ætluðu að vera saman til lengri tíma

Frá bónda­bænum í Kristiansand lá leið hans til Lye, í sveitar­félaginu Time í Noregi. Þar bjó móðir drengsins ein ásamt syni sínum en heimili hennar var í um þriggja klukku­stunda aksturs­fjarlægð frá bónda­bænum. Samkvæmt heimildum Stundarinnar höfðu þau bæði verið á Íslandi vikuna áður en Kaj Anton fluttist búferlum til Noregs. Hún hafi þekkt til hans, en þarna vikuna áður hafi þau hist í partíi í Reykjavík og ákveðið, þegar til Noregs væri komið, að hittast.

Kaj Anton var spurður fyrir dómi hvort hann og móðirin hafi ætlað sér að eiga einhverja framtíð saman. Kaj Anton hafi svarað því játandi. Eftir því sem Stundin kemst næst var móðirin í sömu hugleiðingum; Kaj Anton virtist hafa snúið við blaðinu eftir afbrot á Íslandi þar sem hann hlaut meðal annars dóm fyrir líkams­árás.

Byrjaði í nýrri vinnu á leikskóla

Mánudaginn 19. október byrjaði móðir drengsins í nýrri vinnu. Hún hafði fengið vinnu á leikskóla ekki langt frá heimili sínu og vaknaði því með spennu­hnút í maganum þennan morgun. Hún fór með barnið sitt á leikskóla á meðan Kaj Anton var heima. Sama var uppi á teningnum á þriðjudeginum. Móðirin sótti vinnu, fór með barnið sitt á leikskóla og á meðan var Kaj Anton heima. Á miðvikudaginn vaknaði drengurinn hins vegar með flensu og var veikur. Þar sem móðirin var nýbyrjuð í nýrri vinnu bauðst Kaj Anton til þess að passa drenginn. Kaj Anton ætti sjálfur tvö börn og sagðist vita nákvæmlega hvað hann væri að gera. Móðirin sótti vinnu á miðvikudeginum, var mætt klukkan níu um morguninn og komin heim um miðjan dag. Ekkert amaði að drengnum þennan miðvikudag og borðuðu þau saman kvöldmat áður en allir lögðust til rekkju.

Með glóðurauga
Með glóðurauga Fyrir utan að vera handleggs­brotinn á tveimur stöðum þá var barnið marið út um allan líkama, með áverka á hrygg og með glóðurauga.

Hryllingurinn hófst á fimmtudeginum

Á fimmu­dagsmorgun var drengurinn enn með flensu. Kaj Anton mun hafa boðist til þess að passa hann aftur og þar sem allt hafi gengið vel á miðvikudeginum treysti móðir drengsins Kaj fyrir honum. Þegar móðirin snéri heim frá vinnu sá hún að drengurinn var rauður á enninu. Kaj Anton mun hafa útskýrt fyrir henni, líkt og hann gerði fyrir dómi í síðustu viku, að þeir hafi verið í einhverjum leik sem var þannig að Kaj Anton hljóp á eftir honum og var að hræða hann. Drengurinn hafi hlaupið undan honum, rekist í þröskuld og dottið fram fyrir sig. Kaj Anton bar einnig fyrir dómi að hann hafi huggað drenginn og komið honum síðan fyrir framan sjón­varpið þar sem hann hafi horft á teiknimyndir. Sjálfur segist Kaj Anton hafa farið í tölvuna. Þau ákváðu öll að hvíla sig þennan fimmtudags­eftirmiðdag. Þau hafi öll sofnað í einn eða tvo klukku­tíma.

Þeim ber saman um það, bæði Kaj Antoni og móður drengsins að þau hafi öll sofnað. Þegar þau vöknuðu þá ákvað móðirin að bregða sér út í búð. Kaj Anton hafi aftur boðist til þess að passa drenginn sem hann síðan gerði. Kaj Anton sagði að á þeim tíma­punkti hafi hann ákveðið að svæfa drenginn og að sá litli hafi sofnað, aftur, aðeins klukku­tíma eftir að drengurinn vaknaði með móður sinni eftir að hafa lagt sig í einn til tvo klukku­tíma.

Marið á hálsi
Marið á hálsi Þessi mynd var tekin á sjúkra­húsinu í Stavangri. Læknir sjúkra­hússins grét þegar hann lýsti áverkunum.

Var heitt í hendinni og svaf ekki alla nóttina

Þá sagði Kaj Anton að drengurinn hafi vaknað þegar móðir hans kom heim úr búðinni. Þau hafi fengið sér að borða og síðan hafi móðir drengsins ákveðið að svæfa hann. Hún bar fyrir dómi að drengurinn hafi átt erfitt með að sofna á fimmtudags­kvöldið. Hann hafi nánast vakið alla nóttina og hafi reynt óljóst að segja að honum hafi verið heitt í hendinni. Móðir drengsins segist ekki hafa spáð mikið í það, hann hafi verið veikur umræddan dag og tengdi hún þetta við veikindi hans.

„Hann hefur kannski dottið á steina eða eitthvað“

Á föstu­deginum, 23. október 2015, hafði móðir drengsins sofið yfir sig. Í algjörum flýti klæddi hún sig í og gerði sig tilbúna fyrir vinnu. Kaj Anton hafi boðist til þess að passa drenginn í þriðja skiptið og að hann hafi komið fram úr til þess að ná í drenginn sem grét og grét og stóð fyrir útidyra­hurðinni svo móðir hans kæmist ekki út. Þetta sagði Kaj Anton að væri ekki rétt. Hann sagði það óskiljanlegt, og þetta sagði hann fyrir dómi, að móðir drengsins hafi skilið hann einan eftir. Dómarinn í málinu sagði þá við Kaj Anton að drengurinn hafi ekki verið einn heima, Kaj Anton hafi verið hjá honum: „En ég var sofandi,“ svaraði hann.

Móðir drengsins segir hinsvegar að hún hefði aldrei komist út úr húsinu öðruvísi en að Kaj Anton hafi vaknað og tekið drenginn upp við útidyra­hurðina svo hún yfir höfuð myndi komast út.

Brotið klakabox og glóðurauga

Kaj Anton sagði einnig fyrir dómi að þeir hafi aftur farið í sama leik, sem hafi orðið til þess að drengurinn hafi hlotið sömu áverka og deginum áður. Leik sem virkaði þannig að Kaj Anton var að elta hann og drengurinn að hlaupa undan honum með þeim afleiðingum að drengurinn datt á sama stað, við sama þröskuld. Kaj Anton sendi móður drengsins skilaboð: Hann hafi meitt sig aðeins meira en deginum áður, væri samt hættur að gráta og að hann væri að horfa á sjón­varpið og allt væri í lagi. Kaj Anton hafi huggað drenginn og komið honum fyrir framan sjón­varpið. Á meðan hafi hann sjálfur farið í tölvuna.

„Drengurinn grét ekki neitt, var stökk­bólginn á höfðinu og virtist í losti. Hún hljóp í áttina til þeirra í algjöru áfalli.“

Í sönnunar­gögnum, sem lögð voru fyrir dómi, var meðal annars klakabox úr ísskáp móðurinnar. Kaj Anton hafði náð í klaka til þess að kæla höfuð drengsins. Klaka­boxið var hinsvegar brotið. Kaj Anton gaf þá skýringu að hann hafi egkki náð klökunum úr boxinu og því barið það í borðið til þess að fá þá til þess að losna. Hann hafi síðan kælt höfuðið á drengnum. Þrátt fyrir þetta sendi Kaj Anton móðurinni umrædd skilaboð þar sem hann taldi henni trú um að allt væri í lagi.

Einhvern tímann eftir hádegi þennan föstudag hafi Kaj Anton hins vegar ákveðið að fara með drenginn til móts við móður hans og gengið í átt að leik­skólanum. Hann hafi ákveðið að stytta sér leið og gengið með drenginn ákveðinn stíg í nágrenninu en á þessum stíg er að finna göngubrú. Kaj Anton hafi gengið á undan drengnum og þegar hann hafi litið við þá hafi hann séð hvar drengurinn lá á bakinu: „Hann hefur kannski dottið á steina eða eitthvað,“ sagði Kaj Anton fyrir dómi. Spurður af saksóknara hvort hann hafi séð hann detta sagði Kaj Anton að hann hafi ekki gert það. Barnið hefði legið á bakinu þegar hann hefði litið til baka. Hann hafi því ákveðið að halda á drengnum það sem eftir var af þessu rölti á leik­skólann.

Dómur eftir tvær vikur
Dómur eftir tvær vikur Aðal­meðferð málsins lauk á föstu­daginn. Samkvæmt upplýsingum sem Stundinni barst frá embætti saksóknara mun það taka um það bil tvær vikur að fá dóm í málið.

Starfsmaður leikskólans: Eitthvað hræðilegt hafði komið fyrir 

Í þann mund sem Kaj Anton kom með barnið fyrir utan leik­skólann steig móðir þess út af vinnu­staðnum. Hún leit í áttina til Kaj Antons og drengsins, sem þá var með húfu enda kalt í Noregi á þessum tíma, og sá að það var eitthvað mikið að. Drengurinn grét ekki neitt, var stökk­bólginn á höfðinu og virtist í losti. Hún hljóp í áttina til þeirra í algjöru áfalli. Önnur kona sem starfaði við leik­skólann var stödd úti á skólalóð þennan dag. Hún bar vitni fyrir dómi að hún hefði séð Kaj Anton og barnið og að hún hafi bæði séð og fengið það á tilfinninguna að eitthvað hræðilegt hefði komið fyrir.

Á sama tíma, sagði Kaj Anton fyrir dómi, að hann hafi í raun og veru ekki ætlað að fara með drenginn á leik­skólann heldur hafi þeir ætlað saman út í sjoppu þar sem Kaj Anton hafi ætlað að kaupa handa drengnum súkkulaði­stykki.

„Í tómu núðlu­umbúðunum voru hárflyksur frá drengnum.“

Móðir drengsins hringdi strax í norska vinkonu sína. Þessi norska vinkona og kærasti hennar, sem er af íslensku bergi brotinn, báru bæði vitni fyrir dómnum. Þau hafi keyrt til móts við móður drengsins og sótt þau þrjú. Leiðin hafi legið á lækna­vaktina í Klepp. Þar tók á móti þeim læknir sem var nýmættur á vakt. Sá læknir bar einnig vitni fyrir dómi í síðustu viku. Hann sagðist hafa tekið eftir alvarlegum áverkum á höfði drengsins. Móðir hans hafi gefið þær skýringar að hann hafi dottið tvisvar. Einu sinni í dag (föstudag) og einu sinni í gær (fimmtudag). Læknirinn sagði fyrir dómi að þær útskýringar hafi strax vakið athygli hans því 98 sentí­metra barn gæti ekki dottið fram fyrir sig með slíkum afleiðingum. Áverkar hans hafi verið í líkingu við það að barnið hafi lent í bílslysi.

Kaj Anton
Kaj Anton Hann sagði drenginn hafa fallið tvisvar, mögulega þrisvar sinnum, þegar þeir léku sér saman á meðan móðir drengsins var við vinnu í leikskóla í grendinni.

Á meðan reykti Kaj Anton sígarettu fyrir utan lækna­vaktina.

Áverkar barnsins í líkingu við það sem gerist í bílslysi

Sjúkra­bíll kom aðvífandi að Klepp. Læknirinn hafði pantað sjúkrabíl fyrir annan sjúkling á lækna­vaktinni en vegna þess hve alvarlegir áverkarnir voru þá ákvað hann að barnið skyldi flutt með flýti á sjúkra­húsið í Stavangri. Hann lét starfs­fólk þar vita að barnið sem væri á leiðinni hafi hugsanlega verið beitt ofbeldi. Útskýringar á áverkum þess stæðust engan veginn. Með sjúkra­bílnum fór móðir drengsins en með vinafólki móðurinnar fór Kaj Anton. Öll hittust þau á sjúkra­húsinu í Stavangri. Þar gekk starfs­fólk sjúkra­hússins á móðurina og Kaj Anton sem gaf þær skýringar að drengurinn hafi dottið tvisvar. Það hafi hins vegar ekki staðist. Áverkar barnsins líktust bílslysi, svo alvarlegir voru þeir. Kaj Anton hafði þó engan bíl til umráða. Ofbeldi gagnvart barninu virtist eina skýringin á áverkum þess.

„Ég átti bara erfitt með að trúa því að einhver gæti gert litlu barni svona ljóta hluti.“

Læknirinn á bráða­móttökunni í Stavangri grét í vitna­stúkunni þegar hann lýsti áverkum barnsins. Á sama tíma fékk dómarinn, og þeir sem viðstaddir voru aðal­meðferðina, að sjá myndir af áverkunum.

Þegar á bráða­vaktina var komið fór litli drengurinn að æla. Ældi meðal annars á móður sína. Hann hafði hlotið heila­hristing. Stuttu síðar kom önnur vinkona móðurinnar á sjúkra­húsið og bauðst til þess að keyra til Lye og sækja ný föt. Móðir barnsins tók vel í það. Kaj Anton fór með vinkonunni og keyrðu þau saman til Lye. Þar beið lögreglan eftir Kaj Anton.

Hárflyksur í tómum núðlupakka í ruslinu

Litli tveggja ára drengurinn var tvíhandleggsbrotinn með heila­hristing, marinn út um allan líkamann, ældi og ældi, grét stöðugt og á stóru svæði á höfði hans vantaði hársbút.

Lye í Noregi
Lye í Noregi Saksóknari segir Kaj Anton hafa misþyrmt barninu í bænum Lye, stutt frá Stavangri í Noregi.

Við tók viðamikil rannsókn lögreglu en þegar blaða­maður Stundarinnar ræddi við saksóknara málsins í október í fyrra þá sagði hann að allir tiltækir rannsóknar­lögreglu­menn yrðu fengnir í rann­sóknina og að það myndi hljóta algjöran forgang hjá embættinu. Saksóknari sagði lögreglu hafa ástæðu til að ætla að ofbeldið hafi átt sér stað bæði inni á heimili barnsins og fyrir utan það. Meira vildi Unni Byberg Malmin ekki tjá sig um málið enda rannsókn í fullum gangi. 

Eitt af því sem ekki hefur komið fram áður í fjöl­miðlum varðandi þetta óhugnarlega mál er það að við leit í húsi móðurinnar fundust umbúðir utan af núðlu­pakka. Í tómu núðlu­umbúðunum voru hárflyksur frá drengnum. Hárflyksur sem rifnuðu af barninu þegar það hlaut alvarlega áverka á höfði. Kaj Anton hafði engar skýringar á hárflyksunum en sagðist hafa eldað sér núðlur í kvöldmat kvöldið áður og því væru umbúðirnar í ruslinu.

Þá bar einnig móðir Kaj Antons vitni fyrir dómnum og sagði son sinn aldrei hafa sýnt af sér ógnandi hegðun í hennar viðurvist. Kaj Anton ætti sjálfur tvö börn sem væru á Íslandi og í hvert skipti sem hann hafi ætlað út að skemmta sér um helgar þá hefði eldri dóttir hans verið í pössun hjá henni. Það hafi sýnt að Kaj Anton væri ábyrgur. Hann væri hinsvegar ekki í miklu sambandi við yngra barnið „þar sem það væri enn svo ungt“. Þegar móðir Kaj Antons bar vitni um nákvæmlega þetta þá heyrðist hlátur í réttar­salnum. Sindri Kristjánsson, faðir unga barnsins sem hafði verið misþyrmt hrotta­lega, hló að vitnis­burðinum.

Sindri segir í samtali við Stundina að hann hafi hlegið í hálf­gerðri reiði: „Ég þekkti Kaj Anton frá fornu fari og fannst svo mikil hræsni felast í því sem hún sagði. Mamma hans Kaj var að sjálfsögðu þarna bara að reyna að verja strákinn sinn en mér fannst þetta frekar aumt. Ég var reiður mest megnis öll réttar­höldin. Ég átti bara erfitt með að trúa því að einhver gæti gert litlu barni svona ljóta hluti.“

Sjúkrahúsið í Stavangri
Sjúkra­húsið í Stavangri Drengurinn var fluttur með skyndi á sjúkra­húsið í Stavangri. Læknar og fagfólk áttu erfitt með sig í réttar­salnum í síðustu viku þegar ljós­myndir af áverkum drengsins voru sýndar.

Barnaverndaryfirvöld skárust í leikinn

Þegar litli drengurinn hafði jafnað sig á sjúkra­húsinu í Stavangri skárust barna­verndar­yfirvöld í Noregi í málið. Þau fluttu móðurina og litla drenginn til Bergen þar sem haft var eftirlit með drengnum og móður hans. Drengurinn hitti fagfólk, þar á meðal sérfræðinga, sem unnu með drengnum til þess að lágmarka skaðann sem orðið hafði af þessu áfalli. Sindri þakkar barna­verndar­yfirvöldum aðstoðina í málinu. Hann hafi búist við því að allt öðruvísi yrði tekið á málunum en í stað þess að hrifsa barnið af móðurinni og koma því fyrir í fóstri þá hafi fagfólk allan tímann staðið við hlið foreldranna og hjálpað þeim í gegnum þetta: „Ég er þeim ótrúlega þakklátur. Ég bjóst engan veginn við þessu og óttaðist í raun að ég fengi ekki að sjá hann aftur. Hausinn á manni fer náttúru­lega á fullt þegar maður lendir í svona og maður býst alltaf við því versta.“

„Honum líður ótrúlega vel miðað við það sem hann hefur gengið í gegnum.“

Sjálfur bar Sindri vitni í málinu. Hann var meðal annars spurður hvernig hann þekkti Kaj Anton. Sindri viðurkenndi fúslega að þekkja Kaj Anton frá því hann hafi sjálfur verið í neyslu: „Við vorum vinir fyrir löngu síðan og áttum það eitt sameiginlegt að neyta fíkniefna upp á dag. Leiðir okkar skildu hinsvegar. Eftir að ég eignaðist son minn þá tók ég bara stóra U-beygju í lífinu og sá að ég þurfti í mikil­vægari hlutum að snúast en að standa í þessu rugli.“ Þá var Sindri einnig spurður um samband sitt við barns­móður sína sem var ágætt á þeim tíma sem þetta mál kom upp.

Faðir drengsins
Faðir drengsins Sindri Kristjánsson segist hafa titrað af reiði þegar hann bar vitni fyrir dómi í síðustu viku. Hann reyndi að horfa í augu Kaj Antons sem leit alltaf undan.

Sindri segir í samtali við Stundina að samband þeirra sé gott í dag, þau ræði mikið saman og beri hag sonar þeirra fyrir brjósti. Sindri stundar vinnu og býr Noregi í dag, ekki langt frá heimili þeirra mæðgina, og er með son sinn aðra hverja helgi auk þess sem hann reynir að taka eins mikið af aukadögum og hann getur. Sonur hans búi samt sem áður dags daglega hjá móður sinni.

Hvernig líður drengnum í dag?

„Honum líður ótrúlega vel miðað við það sem hann hefur gengið í gegnum. Í fyrstu var hann mjög hræddur og öll læti urðu til þess að koma honum úr jafnvægi. Ef það var bankað á útidyra­hurðina þá hljóp hann í fangið á mér. Þarna hefur barna­verndar­nefndin hér í Noregi komið sterk inn. Þessi sálfræði­viðtöl sem við foreldrarnir höfum fengið, og strákurinn líka, hafa orðið til þess að við vitum betur hvernig á að kljást við svona áfall.“

Sindri segir að strákurinn sinn eigi erfitt með að sofa einn en að tíminn eigi vonandi eftir að laga það og lækna öll þau sár sem sonur hans hafi orðið fyrir, bæði andlega og líkamlega.


Eins og áður segir eru um það bil tvær vikur þar til dómur fellur í máli Kaj Antons. Samkvæmt upplýsingum frá embætti saksóknara er refsiramminn fyrir brot af þessu tagi sex ára fangelsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár