Fyrrverandi starfsmaður gæludýrabúðar: „Þetta var eins og í hryllingsmynd“

Íris Lea Þor­steins­dóttir hætti að vinna í gælu­dýra­versl­un­inni Dýra­rík­inu þar sem henni mis­bauð aðstæður dýr­anna. Hún birtir fjölda mynda úr bak­her­bergi versl­un­ar­innar máli sínu til stuðn­ings. Næst­ráð­andi í versl­un­inni segir mynd­irnar blekkj­andi.

Fyrrverandi starfsmaður gæludýrabúðar: „Þetta var eins og í hryllingsmynd“
Særð mús „Ég sá rosa­lega mikið slæmt þarna,“ segir fyrr­ver­andi starfs­maður Dýra­rík­is­ins.

Fyrr­ver­andi starfs­maður gælu­dýra­versl­unar, Íris Lea Þor­steins­dóttir, birtir myndir á Facebook-hópnum Hunda­sam­fé­lagið þar sem sjá má hrika­lega aðstæður dýra í bak­her­bergi dýr­búð­ar­innar Dýra­rík­is­ins.

Íris segir með­ferð­ina á dýr­unum vera eins og í hryll­ings­mynd. Búr séu bæði allt of smá og ekki þrifin, með þeim afleið­ingum að dýrin þjá­ist af ýmsum kvillum. Hún segir að dýrum sé lógað með að setja þau í gamla súrgúrku­krukku með klór­ó­formi. Íris hefur til­kynnt búð­ina til Mat­væla­stofn­unar.

Íris Lea Þorsteinsdóttir
Íris Lea Þor­steins­dóttir „Ég sá rosa­lega mikið slæmt þarna og ég bara tár­ast við að hugsa um það,“ segir Íris Lea.
 

„Ég sá rosa­lega mikið slæmt þarna og ég bara tár­ast við að hugsa um það. Þetta var bara hræði­legt. Þarna voru dýr sem voru rosa­lega veik og ég mátti ekki þrífa búrin, dýr sem voru sveppa­sýk­ingu á fót­unum og áttu erfitt með að anda því þau voru að anda inn þvagi. Búrin voru það mygluð að það lá við að það væru sveppir að vaxa. Við vorum með búr sem voru jafn­lítil og skó­kassi. Dýrin voru kannski með sex unga. Búrin eru svo léleg að fæturnir á dýr­unum voru rosa­lega oft að klemm­ast. Ég var að fara með þau á mínum tíma til dýra­læknis og borg­aði það með mínum eigin pen­ingum,“ segir Íris. 

Dýrunum lógað í krukku

Íris segir að nær öll búr í bak­her­berg­inu henti dýr­unum mjög illa. „Dýrin voru að missa skottin og tærnar. Þetta var hræði­legt. Það voru alls konar sveppa­sýk­ingar,“ segir hún. 

„Hann sagði mér að horfa ekki á krukk­una.“

Íris lýsir aðferðum við að lóga dýr­unum. „Þegar eig­and­inn lóg­aði dýr­unum not­aði hann bara stóra gler­krukku. Þetta var gömul krukka sem var mygluð og klístruð. Hann var með klór­ó­form og hann hellti því í botn­inn og skellti dýr­unum í botn­inn og lok­aði krukk­unni, þau sofn­uðu og köfn­uðu að lokum hægt og rólega því það komst ekk­ert súr­efni í krukk­una. Hann sagði mér að horfa ekki á krukk­una. Þetta var ógeðs­lega skítugt, þetta var eins og í hryll­ings­mynd,“ segir Íris. Hún segir dýr svo sem páfa­gaukar og hamstrar hafi end­aði í krukk­unni.

Telur myndirnar blekkjandi

Eigandi búð­ar­innar er Gunnar Vil­helms­son. Stundin ræddi við Viktor Burkna Pálsson, starfs­mann Dýra­rík­is­ins og næst­ráð­anda í versl­un­inni. Hann segir aðstæður dýr­anna, utan frá­vika, vera eðli­legar. Hann kann­að­ist við mynd­birt­ingar úr dýra­búð­ina á sam­fé­lags­miðlum. „Ég myndi segja að þessar myndir séu blekkj­andi, í raun og veru. Að sjálf­sögðu getur komið upp eitt­hvað sem þarf að þrífa sem situr á hak­anum og þá eru teknar myndir. Það sorg­lega við þetta er að mann­eskj­unnar sem sjá um að þrífa þetta og löbbuðu svo héðan út í fússi eru að birta þetta. Ég myndi segja að við værum að hugsa vel um dýrin,“ segir Burkni. Líkt og fyrr segir er eig­andi Dýra­rík­is­ins Gunnar Vil­helms­son. Hann birtir mynd­bönd á Youtube og má sjá eitt þeirra hér fyrir neðan.

„Ég myndi segja að við værum að hugsa vel um dýrin“

Íris seg­ist hins vegar hafa grát­beðið um að fá að þrífa búrin en verið neitað um það. „Eig­and­inn var að breyta til, setja parket á gólfið og þá var dýr­unum ekk­ert sinnt, því það var svo mikil vinna í búð­inni. Hann sagði að búðin gengi fyrir. Ég sagði á móti að það væru dýr að deyja vegna þess að það væri ekki verið að sinna þeim. Ég spurði hvort ég mætti fara og þrífa búrin. Ég þurfti að laum­ast á bak við og þrífa búin,“ segir Íris.

Lögfræðingur telur eftirliti ábótavant

Einn þeirra sem vakið hefur athygli á myndum úr dýra­búð­inni er Árni Stefán Árnason lög­maður. Um er ræða myndir sem annar starfs­maður, sem vill ekki koma fram undir nafni, tók í bak­her­bergjum dýra­búð­ar­innar.. „Ég glöggvaði mig fljót­lega á því að þarna var verið fara með sann­indi og mátti til með að koma því á fram­færi og vekja athygli á því hvernig ástandið er í þessum atvinnu­rekstri og hve eft­ir­liti sé ábóta­vant. Mín sér­fræði­þekk­ing er á þessu sviði og tel ég það ekki á milli mála að þarna eru um refsi­vert athæfi að ræða,“ segir Árni. Hann seg­ist hafa til­kynnt málið sjálfur til MAST í morgun.

Mjög alvarleg vanhirða á dýrunum

Stundin hafði sam­band við Hall­gerði Hauks­dóttur, for­mann Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands. Hún segir að sam­tök­unum hafi borist ábend­ingar vegna Dýra­rík­is­ins í dag og í gær. „Maður hefur velt fyrir sér aðstæðum í dýra­búðum en þetta er alltaf á bak­við. Ef við hefðum vitað hversu slæmt þetta væri þá hefðum við verið búin fyrir löngu að tala við MAST. Ég segi fólki að tala við MAST því það hefur stjórn­sýslu­legt vald til að bregð­ast við þessu, ekki við. Okkar mat er að miðað við þá stöðu sem er uppi þegar þessar myndir eru teknar þá sé þetta ótækt og mjög alvar­leg van­hirða á dýr­unum,“ segir Hall­gerður.

Myglaður músaskítur
Myglaður músa­skítur Íris bendir á langur tími þarf að líða á milli þrifa til að mygla komi á skít­inn.
 

Slæmar aðstæður í búri naggríss
Slæmar aðstæður í búri naggríss Meira virð­ist vera af skít en sagi í búr­inu.
 

Missti skotið
Missti skotið „Dýrin voru að missa skotin og tærnar,“ segir Íris.
 

Krukkan
Krukkan Í þess­ari krukku var smærri dýrum lógað.
 

Bakherbergið
Bak­her­bergið Búrum er staflað í bak­her­bergi búð­ar­innar.
 

 

Fuglabúr
Fuglabúr Drit þekur botn fugla­búrs­ins.
 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár