Framíkall um kosningar í apríl 2017 vakti hneykslan

Stjórnar­þingmenn eru ekki allir á sama máli og forysta ríkis­stjórnarinnar um tíma­setningu kosninga. Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknar­flokksins, hvatti til þess að kosningarnar yrðu haldnar í apríl 2017 í framí­kalli á Alþingi í dag.

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknar­flokksins, hvatti til þess í framí­kalli á Alþingi í dag að þing­kosningar yrðu haldnar í apríl 2017. Skömmu áður höfðu bæði forsætis­ráðherra og fjármála- og efnahags­ráðherra gefið fyrirheit um að kosið yrði í haust. Þingmenn stjórnar­andstöðunnar hneyksluðust á ummælum Þorsteins, en sjálfur tók hann ekki til máls í umræðunum.

„Þingmaður Framsóknar­flokksins, Þorsteinn Sæmundsson, kallaði hér af aftasta bekknum fram í að kosningar gætu verið í apríl 2017,“ sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar. „Þing­maðurinn er fulltrúi Framsóknar­flokksins í forsætis­nefnd og það vekur auðvitað enn á ný þær spurningar hvort það sé raun­verulega fyrirætlun ríkis­stjórnarinnar að drepa málum á dreif og reyna að fresta kosningum fyrst fram á haustið og síðan fram á vorið og hvort yfir­lýsing fjármála­ráðherra um að kosið verði í haust og það verði ekki síðasta þingið á þessu kjör­tímabili haldi eða haldi ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár