Frambjóðendur Heimdallar fóru með rangt mál í fjölmiðlum

Bæði Albert Guð­munds­son, nýkjör­inn for­maður Heimdallar, og mót­fram­bjóð­andi hans, Hörður Guð­munds­son, full­yrtu að þeir hefðu ekki boðið mennta­skóla­nemum bjór. Skjáskot af Facebook sýna fram á annað.

Frambjóðendur Heimdallar fóru með rangt mál í fjölmiðlum
Opinn bar Mynd úr veislu Harðar.

Ekki verður betur séð en báðir fram­bjóð­endur til kosn­inga Heimdallar hafi farið með rangt mál í fjöl­miðlum í síð­ustu viku. Svo fór að fram­boðið sem Albert Guð­munds­son leiddi sigr­aði með 312 atkvæðum meðan fram­boð Harðar Guð­munds­sonar hlaut 306 atkvæði. Í frétt Morg­un­blaðs­ins á fimmtu­dag neit­uðu báðir fram­bjóð­endur því stað­fast­lega að fram­boð þeirra hefðu sent skila­boð til fram­halds­skóla­nema þar sem boðið var upp á bjór í skiptum fyrir atkvæði. Hvorugur kann­að­ist við að hafa boðið fram­hald­s­kóla­nem­endum áfengi. Bæði skjá­skot af stöðu­færslum og myndum á Facebook sýna að fram­bjóð­endur fóru ekki með rétt mál.

Misskilningur og skortur á samskiptum

Annars vegar hefur Stundin undir höndum skjá­skot af stöðu­upp­færslu þar sem með­fram­bjóð­andi Alberts, Steinar Ingi Kolbeins, býður nem­endum Mennta­skól­ans við Sund bjór í skiptum fyrir atkvæði. „Okkur vantar aðstoð allra til­tækra MSinga núna og viljum í stað­inn bjóða öllum MSingum í að mæta saman upp í kosn­inga­mið­stöð (Ármúla 4) á morgun kl. 17 í frían ham­borg­ara og bjór, förum saman upp í Valhöll, kjósum list­ann hans Alberts og komum svo aftur upp í kosn­inga­mið­stöð og þá er MS kosn­ingap­artý með yfir­drifið nóg af fríum bjór eins lengi og við viljum,“ segir meðal ann­ars í færslu Steinars Inga.

Skjáskot
Skjáskot Hér má sjá stöðu­færslu Steinars Inga Kolbeins.
 

Í sam­tali við Stundina segir Albert að mis­skiln­ingur og skortur á sam­skiptum hafi orðið til þess að Steinar Ingi hafi farið fram með þessa stöðu­upp­færslu. „Við vissum af þessu og þetta var vissu­lega mis­skiln­ingur sem hafði gerst á milli okkar,“ segir Albert. Hann seg­ist þó ekki hafa blekkt fjöl­miðla þar sem hann hafi ekki vitað af stöðu­færslu með­fram­bjóð­anda síns. „Það voru ein­hver mis­tök og hugs­un­ar­leysi hjá þeim að setja þetta í status. Það var engin áætlun um það að draga fólk og hella það fullt á þriðju­degi,“ segir Albert.

Ræðumaður Ísland býður bjór

Það er þó ljóst að mikið magn áfengis var keypt fyrir veislu fram­boðs Alberts sem haldin var helg­ina fyrir kosn­ingar. „Bjórinn var að detta í hús. Þetta er rosa mik­ill bjór en ég er sann­færð um að við klárum hann,“ skrif­aði Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir, nýkjör­inn vara­for­maður Heimdallar, á við­burð­ar­síðu fram­boðs síns síð­asta föstu­dag. Óvíst er hvort gestir í þeirri veislu hafi verið undir lög­aldri.

Nýkjörinn formaður
Nýkjör­inn for­maður Albert Guð­munds­son er for­maður Heimdallar.
 

Fyrr­nefnt skjá­skot af stöðu­færslu Steinars Inga Kolbeins sýnir þó skýrt að fram­boð hans smal­aði nemum Mennta­skól­ans við Sund með lof­orði um bjór í skiptum fyrir atkvæði. Þess má geta að Steinar Ingi hefur keppt fyrir hönd skól­ans í Morfís, mælsku og rök­ræðu­keppni fram­halds­skól­anna, og var hann val­inn ræðu­maður Íslands fyrr á þessu ári.  

Í sam­tali við Stundina í síð­ust viku við­ur­kenndi Albert fús­lega að boðið hefði verið upp á áfengi í sinni kosn­ing­ar­mið­stöð. Hann þvertók þó fyrir að mennta­skóla­nem­endum hafi verið boðið upp á áfengi. Hann sagði að lög­reglan hefði mætt í veisl­una til að kanna hvort mennta­skóla­nem­endum væri boðið upp á bjór.

Nóg af bjór
Nóg af bjór Hér má sjá Albert Guð­munds­son, nýkjör­inn for­mann Heimdallar, bera bjór­kassa.
 

DV greindi frá því síð­asta mið­viku­dag að móðir 16 ára drengs hefði til­kynnt lög­reglu að sonur sinn hafi fengið boð um að kjósa og fá svo bjór frá öðru fram­boð­inu. DV birti tölvu­póst sem Leifur Ingi Vil­mund­ar­son, kennslu­stjóri Mennta­skól­ans við Sund, sendi á for­eldra vegna máls­ins: „Eitthvað hefur borið á því að hringt hafi verið í nem­endur MS vegna kosn­inga [Heimdallar] sem eru í kvöld. Ég hef talað við nem­enda­fé­lagið og ítrekað að það sé ekki í boði fyrir nem­endur á vegum SMS að nota aðstöðu sína til að smala í kosn­ingu hjá SUS (15-35 ára mega greiða atkvæði). Ekki er vitað með vissu hverjir voru að hringja út en því miður virð­ast skila­boðin hafa snú­ist um að bjór sé í boði á staðnum, ég er búinn að hafa sam­band við SUS varð­andi þetta. Þeir full­yrða að allt verði gert til að tryggja að allt fari lög­lega fram í kvöld.“

„Náttúrulega veitingar í boði“

Hvað hitt fram­boðið varðar sýna fjöl­margar myndir úr veislu í kosn­ing­ar­mið­stöð þess að umtals­vert magn áfengis var á boðstólum. Mynd­irnar sýna enn fremur minnst þrjár stúlkur undir lög­aldri hafa áfengi um hönd. Á einni mynd má sjá Hörð sjálfan með bjór í hönd en hann er ekki orð­inn tví­tugur. Rétt er að taka fram að mynd­irnar eru úr veislu sem haldin var helg­ina fyrir kosn­ingar en ekki sjálfan kosn­inga­dag­inn. Það breytir þó ekki því að Hörður full­yrti í við­tali við Morg­un­blaðið að hans fram­boð hafi ekki boðið mennta­skóla­nem­endum upp á bjór.

Hörður Guðmundsson
Hörður Guð­munds­son Fram­bjóð­and­inn er í bláu peys­unni. Hann er ekki orðin tví­tugur.
 

Líkt og fyrr segir full­yrti Hörður að sitt fram­boð hafi ekki boðið mennta­skóla­nemum bjór. „Við vorum ekki með neitt þannig í gangi. Þetta á ekki að snú­ast um að gefa mennta­skólakrökkum áfengi og ég held að báðir ein­stak­lingar hafi vandað sig mjög við þetta. Það voru nátt­úru­lega veit­ingar í boði á mis­mun­andi stöðum en ég held að báðir aðilar hafi passað upp á það að það væri ekki áfengi í boði fyrir fólk undir lög­aldri. [...] Þeir mennta­skólakrakkar sem komu að þessu mín megin voru aðal­lega krakkar á loka­ári Versl­un­ar­skól­ans og á fyrstu árunum í háskóla. En það var ekki sér­lega mikið okkar megin, að gefa bjór,“ er haft eftir Herði í frétt Morg­un­blaðs­ins. Myndir úr veisl­unni segja þó allt aðra sögu en ekki verður betur séð en það hafi verið opin bar í veisl­unni. Minnst þrjár 18 ára mennta­skóla­stúlkur eru merktar inn á mynd­irnar – tagg­aðar - með ýmist bjór eða hvítvín um hönd.

Í stuttu sam­tali við Stundina sagð­ist Hörður ekki hafa tíma til að svara spurn­ingum þar sem hann væri í hádeg­is­verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár