Mynd: Shutterstock

Frá sameiningu til sundrungar

Molenbeek er 90 þús­und manna bæj­ar­fé­lag nærri mið­kjarna Brussel en þar er mikið atvinnu­leysi. Hópar innan hverf­is­ins eru taldir tengj­ast hryðju­verk­unum sem framin voru í París í nóv­em­ber og jan­úar á síð­asta ári, auk nokk­urra ann­arra hryðju­verka innan Evrópu.

Alls eru 32 látnir í kjöl­far hryðju­verk­anna í Brussel í gær og á þriðja hund­rað slas­aðir. Fórn­ar­lömb árásanna komu frá minnst 40 löndum, en sjálfs­morðsárás­irnar fóru fram á flug­vell­inum og á Maalbeek jarð­lest­ar­stöð­inni í mið­borg Brussel.

Hinna látnu verður minnst með mín­útu þögn í Brussel í dag, auk þess sem þriggja daga þjóð­ar­sorg hefur verið lýst yfir í Belgíu vegna árásanna þar sem fánar blakta í hálfa stöng. Hæsta við­bún­að­ar­stig er í gildi í Belgíu og víðar í Evrópu. 

Viða­miklar lög­reglu­að­gerðir hafa staðið yfir í Belgíu í alla nótt og í morgun og hús­leitir hafa verið gerðar á fjöl­mörgum stöðum vegna hryðju­verka­árásanna. Lögregla hefur borið kennsl á þrjá menn sem sáust ganga inn á flug­völl­inn. 

Bræð­urnir Khalid og Ibrahim El Bak-raoui sprengdu sig í loft upp í árásinni á flug­vell­inum. Áður höfðu þeir kom­ist í kast við lögin sem smá­glæpa­menn. Talið er að þeir hafi tengst Salah Abdeslam, sem er tal­inn höf­uð­paur­inn í árásum íslamskra rík­is­ins í París í nóv­em­ber, þar sem 130 lét­ust. Hann var hand­tek­inn í Brussel á föstu­dag. 

Þriðja manns­ins, Najim Laachraoui, er enn leitað en hann er tal­inn sprengju­sér­fræð­ingur íslamskra rík­is­ins, sem hefur lýst ábyrgð á árásinni. Þá er talið að hann hafi einnig komið að und­ir­bún­ingi hryðju­verk­anna í París og verið náinn sam­starfs­maður Salah. 

„Salah Abdeslam fædd­ist 1989 í Belgíu. For­eldrar hans fluttu til lands­ins frá smá­bænum Bouyafar í Marokkó og komu sér fyrir í Brussel. Salah ólst þar upp og fátt benti til þess að hann væri strang­trú­aður múslimi. Hann rak bar í Molenbeek ásamt bróður sínum Brahim, var fastakúnni á homma­bar þar sem hann bæði drakk og neytti vímu­efna. Salah var smá­krimmi og aðal­á­huga­mál hans Playstation-tölvan sem hann átti.“

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í grein sem Snæbjörn Brynjars­son skrif­aði fyrr á árinu þar sem hann rakti sögu hryðju­verku­verka­manna og skoðar tengsl þeirra við París og Brussel, en talið er að um 500 manns hafi farið Belgíu til að berj­ast í Sýrlandi en um 184 hafa snúið til baka. 

Í kjöl­far atburð­anna í gær end­ur­birtum við grein Snæ­björns, sem birt­ist fyrst í 14. tölu­blaði Stund­ar­innar og á vefnum þann 7. jan­úar. 

Hryðjuverkamenn í Brussel
Hryðju­verka­menn í Brussel Árás­ar­menn­irnir sem sprengdu sig í loft upp í sjálfs­morðs­sprengju­árás í flug­stöð­inni við Zaventem flug­völl­inn í gær hafa verið nafn­greindir. Hér er skjá­skot úr eft­ir­lits­mynda­vélum.

Í dag er ár síðan skotárásin á Charlie Hebdo átti sér stað þann 7. jan­úar 2015. Þetta hefur verið við­burða­ríkt ár í franskri póli­tík, með auknum upp­gangi þjóð­fylk­ing­ar­innar og sveiflu­kenndu fylgi hjá sós­íal­ískum for­seta sem hefur fært sig lengra til hægri.

Þann 7. jan­úar 2015 réð­ust tveir bræður inn á rit­stjórn­ar­skrif­stofu Charlie Hebdo, myrtu ell­efu manns og særðu jafn­marga. Á leið­inni út lentu þeir, Chérif og Said Kouachi, í skot­bar­daga við lög­reglu með þeim afleið­ingum að einn lög­reglu­maður lét lífið.

Sama dag var skokk­ari særður í skotárás í suð­ur­hluta Parísar, en síðar átti eftir að koma í ljós að þar var að verki gam­all kunn­ingi bræðr­anna úr fang­elsi, Amedy Coulibaly. Sami maður skaut lög­reglu­konu degi síðar og tók svo loks mat­vöru­verslun í gísl­ingu. Fjórir við­skipta­vinir létu lífið í mat­vöru­versl­un­inni sem sér­hæfði sig í kos­her-mat (mat sem upp­fyllir trú­ar­á­kvæði gyð­ing­dóms). Amedy gerði þá kröfu að Kouachi bræður fengju að kom­ast óáreittir úr landi en á þessum tíma­punkti, 9. jan­úar, voru bræð­urnir sjálfir búnir að taka skilta­verk­smiðju í gísl­ingu. Þeir komu hlaup­andi úr verk­smiðj­unni með vél­byssur á lofti og voru skotnir þann dag. Martröð­inni virt­ist lokið.

Vettvangur árásarinnar
Vett­vangur árás­ar­innar Skrif­stofur Charlie Hebdo þar sem níu manns létu lífið í hryðju­verka­árás Kouachi-bræðra.

Charlie Hebdo lifir enn

Margir með­lima í rit­stjórn Charlie Hebdo voru þjóð­þekktir ein­stak­lingar, grínistar og mest­ölu­bóka­höf­undar, sumir starf­andi frá stofnun blaðs­ins á sjötta ára­tugnum. Frönsk skop­mynda­hefð er öfl­ugri en víða ann­ars staðar, Charlie Hebdo var til dæmis ekki eina blaðið sem sér­hæfði sig í póli­tískum skop­myndum, annað blað sem heldur út öfl­ugri skop­mynda­út­gáfu (og rann­sókn­ar­blaða­mennsku) er le Canard Enchaine sem hefur verið rekið frá árinu 1915 og kemur út í sjöhund­ruð þús­und ein­tökum viku­lega.

Fyrsta blað Charlie topp­aði þó öll met eftir skotárás­ina þegar það seld­ist í nærri sjö milljón ein­tökum á sex tungu­málum. Upplag blaðs­ins er vana­lega mun minna, um sex­tíu þús­und ein­tök mán­að­ar­lega, sem ein­göngu eru gefin út á frönsku.

Kvöldið 7. jan­úar er talið að um hund­rað þús­und manns víðs vegar um Frakk­land hafi hist á torgum til að minn­ast þeirra sem féllu í árásinni. Sú tala átti eftir að hækka tals­vert næstu daga en í göng­unni 11. jan­úar tóku lík­ast til um þrjár millj­ónir manna þátt með einum eða öðrum hætti. Þjóð­ar­leið­togar hvaðanæva að mættu til að ganga við hlið for­set­ans Francois Hollande sem þótti standa sig vel í við­brögðum við árásinni.

Málfrelsi og hatursorðræða

Je suis Charlie varð á svip­stundu vin­sælasta slag­orð í heimi. Á Íslandi nýtti pírata­þing­mað­ur­inn Helgi Hrafn Gunn­ars­son tæki­færið til að afnema guð­lastslögin. Með­byr­inn var slíkur inni á Alþingi og í þjóð­fé­lag­inu öllu að jafn­vel þjóð­kirkjan lagði blessun sína yfir afnám lag­anna. Charlie Hebdo fékk hin við­ur­kenndu PEN verð­laun fyrir bar­áttu sína fyrir mál­frelsi en voru á sama tíma harka­lega gagn­rýndir í New Yorker og fleiri blöðum fyrir að hvetja til andúðar á minni­hluta­hópum.

Margir verj­enda Charlie hafa bent á að tíma­ritið hæð­ist jafnt að öllum trú­ar­brögðum, en í Frakk­landi er sterk hefð fyrir slíku háði. Bar­áttu­sam­tök gegn ras­isma hafa jafn­vel unnið með teiknurum blaðs­ins sem flestir þykja afar frjáls­lyndir.

En á sama tíma og talað var um að árásin á Charlie hefði verið árás á mál­frelsi var grínist­inn Dieu­donné M'bala M'bala kærður fyrir að skrifa á Twitter að honum liði eins og hann væri Charlie Coulibaly. Dieu­donné sem ætt­aður er frá Kamerún, hóf feril sinn með sam­starfi við grínist­ann og gyð­ing­inn Élie Semoun. Hann hefur þrátt fyrir það verið ásak­aður um gyð­inga­hatur, meðal ann­ars fyrir grín­at­riði þar sem hann líkti land­nemum í Ísrael við nas­ista. Dieu­donné var um langt skeið and­stæð­ingur Jean Marie Le Pen en á síð­ustu árum hafa þeir orðið vinir og banda­menn, en afneitun Dieu­donné á hel­för­inni hefur orðið til þess að hann var dæmdur fyrir hat­ursá­róður 2008.

Annar maður var dæmdur til fjög­urra ára fang­elsis fyrir að segj­ast styðja árás­ina á Charlie Hebdo, en franskir fjöl­miðlar voru fullir af sögum um krakka í úthverfum sem neit­uðu að taka þátt í mín­útu­þögn til að syrgja Charlie Hebdo stuttu eftir árás­ina. Það reynd­ist erfitt að stað­festa margar af þessum greinum, en eitt fræg­asta til­vikið var þegar átta ára drengur í borg­inni Nice neit­aði að taka þátt í þögn­inni með þeim afleið­ingum að faðir hans var kall­aður í lög­reglu­yf­ir­heyrslu.

Skammlífar vinsældir forsetans

Það hefur ríkt stjórn­málakrísa í Frakk­landi lengi og hún opin­ber­að­ist í kosn­ingum síð­ast­lið­inn des­em­ber þegar öfga­hægri­flokk­ur­inn Front National náði góðri kosn­ingu í bæði fyrri og seinni hluta fylk­is­stjórn­ar­kosn­inga. Nicolas Sarkozy var óvin­sæl­asti for­seti í sögu lands­ins frá því kann­anir hófust þar til arf­taki hans Hollande tók við og bætti met hans í skoð­ana­könn­unum. Það er því ljóst að Frakkar almennt van­treysta stjórn­mála­stétt­inni og liðnir eru þeir tímar sem for­seti tald­ist sam­ein­ing­ar­tákn. Háar atvinnu­leysis­tölur og vand­ræða­legur fram­hjá­haldsskandall hafa einnig gert Francois Hollande erfitt fyrir. Hollande er fyrsti for­seti í sögu lands­ins án for­seta­frúar eftir að sam­býl­is­kona hans Valerié Trierweiler yfir­gaf hann, en þótt margir (þar á meðal Valerié sjálf) hafi gagn­rýnt það emb­ætti sem úrelt og hall­æris­legt fyr­ir­bæri, ætti eng­inn að van­meta hversu stórt hlut­verk góður maki getur spilað í að afla stjórn­mála­fólki vin­sælda.

Í kjöl­far hryðju­verk­anna í jan­úar juk­ust þó vin­sældir for­set­ans. Frökkum þótti hann standa sig vel þegar hann leiddi þjóð­ar­leið­toga á göngu um París, en þegar athöfnum og örygg­is­ráð­stöf­unum lauk seig hann hægt en örugg­lega aftur á sama stað í könn­unum. Einungis þrettán pró­sent Frakka voru ánægðir með störf hans og margir eru farnir að gera ráð fyrir því að næstu for­seta­kosn­ingar verði á milli Sarkozy (eða íhalds­manns úr flokki hans) og Marine Le Pen. Það væri reið­ar­slag fyrir sós­í­alista og end­ur­tekn­ing á sög­unni 2002 þegar Jean Marie Le Pen og Chirac tók­ust á í seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna.

Hollande tókst ekki að auka vin­sældir sínar þótt hann færði sig yfir miðj­una og til hægri. Í byrjun sept­em­ber lýsti hann yfir áætlun um að lækka tekju­skatta og hefja sprengju­árásir yfir Sýrlandi. Þrátt fyrir vand­ræða­gang á meðal hægri­manna út af inn­an­flokks­deilum skrap­aði fylgi for­set­ans enn botn­inn.

Þjóðarleiðtogar sameinast
Þjóð­ar­leið­togar sam­ein­ast For­set­inn brást hratt og örugg­lega við hryðju­verk­unum í París. Frakkar virt­ust vera ánægðir með við­brögðin eftir árás­irnar á Charlie Hebdo og þá ekki síst þegar hann leiddi þjóð­ar­leið­toga á göngu um París.

Föstudagurinn þrettándi

Þrett­ánda nóv­em­ber 2015 áttu sér stað enn hrika­legri fjöldamorð. Tilraun var gerð til að sprengja áhorf­endur á lands­leik Frakk­lands og Þýska­lands í Stade de France. Líklega var mark­mið hryðju­verka­mann­anna að sprengja sjálfan for­set­ann í beinni útsend­ingu þar sem hann sat í stúku sinni. Stuttu síðar voru áhorf­endur á rokktón­leikum í tón­leika­hús­inu Bataclan strá­felldir í skotárás, auk veit­inga­húsa­gesta vítt og breitt um Par­ís­ar­borg.

For­set­inn var fljótur á stað­inn og í þetta sinn var orð­ræða hans mun her­skárri. „Við erum í stríði, Frakk­land er í stríði,“ sagði hann í sjón­varps­mynda­vélar, og stuttu síðar var búið að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í land­inu. Landamæra­eft­ir­lit var hert og þús­undir her­manna kall­aðir út á götur, og því neyð­ar­á­standi hefur enn ekki verið aflýst. Í versl­un­ar­mið­stöðvum eru vopna­leit­ar­hlið, skóla­töskur eru skoð­aðar við inn­gang mennta­stofn­ana og her­lið er á varð­bergi á helstu túrista­stöðum. Reyndar hefur her­lið gætt sam­komu­húsa og skóla franskra gyð­inga síðan Charlie Hebdo skotárásin átti sér stað, og hefur engin breyt­ing orðið þar á.

Stjórnarskrárbreytingar

Francois Hollande hefur frá því að seinni hryðju­verka­árás­irnar áttu sér stað lagt tvær breyt­ing­ar­til­lögur fram á stjórn­ar­skránni.

Ein gengur út á að for­seti muni ekki þurfa að leita til þings­ins til að fram­lengja neyð­ar­á­stand. Önnur gengur út á að hægt verði að aft­ur­kalla rík­is­borg­ara­rétt þeirra sem tengj­ast hryðju­verka­árásum með einum eða öðrum hætti, hafi þeir einnig rík­is­borg­ara­rétt ann­ars staðar. Umræðan um „dechéance nationale“ hefur vakið miklar til­finn­ingar. Margir Frakkar sem hafa tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt hafa stigið fram og talað um að gangi þessi til­laga í gegn muni þeir líta á sig sem ann­ars flokks rík­is­borg­ara. Hryðju­verka­menn sem ein­ungis hafa franskan rík­is­borg­ara­rétt munu halda sínum. Gagn­rýnendur hafa einnig bent á að þótt gjörðin hafi tákn­rænt vægi þá hafi hún lít­inn sem engan fæl­ing­ar­mátt; hryðju­verka­menn­irnir ein­fald­lega líti ekki á sig sem Frakka. Tvær teg­undir rík­is­borg­ara­réttar geti ein­ungis gert afstöðu þeirra sem nú þegar upp­lifi sig úti­lok­aða enn frekar afhuga frönsku sam­fé­lagi.

Décheance nationale er þó með vin­sælli til­lögum for­set­ans þótt hún hafi klofið flokk hans. Meiri­hluti Frakka, sér í lagi þeirra sem hall­ast til hægri styðja aft­ur­köllun rík­is­borg­ara­réttar og gagn­rýnin hefur aðal­lega komið frá vinstri. Þó eru ekki allir póli­tíkusar á hægri hlið­inni stuðn­ings­menn. Borg­ar­stjóri Bordeaux, Alain Juppé, sem er lík­legur for­seta­fram­bjóð­andi hægri manna, hefur gagn­rýnt til­lög­una fyrir að vera ópraktíska.

Táknrænar grafir

Inn í þessar umræðu um eðli fransks rík­is­borg­ara­rétt bland­ast gamlar milli­ríkja­deilur. Franska ríkið gerði til­raun til að senda Amedy Coulibaly til greftr­unar í Malí en stjórn­völd þar í landi höfn­uðu því að taka við lík­ama hryðju­verka­manns­ins. Amedy var fæddur og alinn upp í Frakk­landi og hafði engar teng­ingar við landið aðrar en þær að hafa átt for­feður þar, en frönsk yfir­völd hafa áður reynt að fá fallna hryðju­verka­menn grafna þar sem þeir eiga ættir að rekja frekar en inn­an­lands. Nið­ur­staðan var sú að Coulibaly end­aði í ómerktri gröf inn­an­lands líkt og Kouachi bræður. Mikil örygg­is­gæsla fór fram í kringum greftr­un­ina til að hindra að leiði bræðr­anna tveggja yrðu að píla­grímsmið­stöð fyrir aðdá­endur þeirra.

Eig­in­kona Coulibaly er enn ófundin. Hayat Boumeddiene flúði Frakk­land og var slóð hennar síð­ast rekin til Sýrlands 10. jan­úar 2015, en talið er að hún hafi skipu­lagt ódæð­is­verkin ásamt eig­in­manni sínum.

Forseti í leit að fylgi

Fylgi for­set­ans hefur sveifl­ast mikið til á árinu og eins og oft þá eykst það þegar hörm­ungar dynja á en dalar svo aftur. Það voru Francois Hollande lík­ast til mikil von­brigði að þrátt fyrir vel heppn­aða ráð­stefnu í lofts­lags­málum tap­aði flokkur hans miklu fylgi. Það er þó ekki bein­línis hægt að tala um hægri­sveiflu þegar fylgi hinna hefð­bundnu íhalds­flokka hefur heldur ekki auk­ist, frekar væri hægt að tala um þjóð­ern­is­sveiflu. Sós­í­alistum gekk vel í Bretagne sem áður kaus til hægri, en það er ekki síst því að þakka að for­set­inn hefur stutt vel við kennslu á bretónsku, og tekið inn fleiri stjórn­mála­menn þaðan í rík­is­stjórn en fyrri for­setar hafa gert.

Á Korsíku hins vegar unnu hvorki þjóð­fylk­ing, sós­í­alistar né íhalds­menn sigur heldur sjálf­stæð­is­sinnar. Í báðum fylkjum eyj­ar­innar eru stjórn­mála­menn sem tala fyrir annað hvort sjálf­stæði eða auknu sjálf­ræði í meiri­hluta en óeirðir brut­ust út stuttu eftir kosn­ingar þar sem þjóð­ern­is­sinnar brenndu mosku í Ajaccio stærstu borg Korsíku.

Áhrifa skotárásanna 7. jan­úar og 13. nóv­em­ber mun gæta lengi í franskri og alþjóð­legri póli­tík. Frakk­land hefur stór­aukið stríðs­rekstur sinn í Mið-Aust­ur­löndum, sér í lagi sprengju­árásir yfir Sýrlandi, en Francois Hollande var langt frá því að vera óvirkur for­seti á alþjóða­vett­vangi. Í valda­tíð hans hafa Frakkar tekið þátt í sprengju­árásum yfir Líbýu til að binda enda á valda­tíð Gaddaffi og sent her­lið til að berj­ast gegn ísla­mistum í Malí. Inn­an­lands tal­aði Hollande fyrir sam­stöðu og skiln­ingi milli menn­ing­ar­hópa, en eftir þrett­ánda nóv­em­ber hefur hann fært sig lengra til hægri. Fram til þessa hafa íhalds­menn á borð við Sarkozy keppst um and-íslamska fylgið við þjóð­fylk­ing­una en mögu­lega verður núna breyt­ing á því. Forysta sós­í­alista hyggur á land­vinn­inga í þeim fylkjum sem þjóð­fylk­ing Le Pen vann kosn­inga­sigra sína í byrjun des­em­ber. 

Allir vegir liggja til Molenbeek

Molenbeek er 90 þús­und manna bæj­ar­fé­lag nærri mið­kjarna Brussel en þar er mikið atvinnu­leysi. Hópar innan hverf­is­ins eru taldir tengj­ast hryðju­verk­unum sem framin voru í París í nóv­em­ber og jan­úar á síð­asta ári, auk nokk­urra ann­arra hryðju­verka innan Evrópu. Um það bil 500 manns hafa farið frá Belgíu til að berj­ast í Sýrlandi og um 184 hafa snúið til baka.

Það vakti athygli að Kouachi bræður ferð­uð­ust til Brussel til að kaupa vopnin fyrir Charlie Hebdo skotárás­ina, en fimmtu­dag­inn 15. jan­úar hand­tók belgíska lög­reglan tólf manns vegna gruns um að tengj­ast skipu­lagn­ingu á hryðju­verkum, þar af sex í Molenbeek.

Molenbeek átti síðar eftir að verða alræmt sem heima­hverfi skipu­leggj­enda árásanna 13. nóv­em­ber. Bæj­ar­fé­lagið er hluti af Brussel og liggur í göngu­fjar­lægð frá gamla miðbæ borg­ar­innar. Þetta hverfi var með öfl­ugan iðnað og stundum nefnt litla Manchester sökum þess, en á sjötta og sjö­unda ára­tugnum hvatti belgíska ríkið inn­flytj­endur frá Marokkó og Alsír til að flytja til Belgíu. Fjöl­margir Marokkó- og Alsír­búar bitu á agnið um belgíska draum­inn og komu til að vinna í kola­námum og verk­smiðjum smá­rík­is­ins. Efna­hags­upp­gangur var mik­ill og ómögu­legt var að finna belgíska rík­is­borg­ara eða Evr­ópu­búa sem vildu sinna stör­f­unum, að minnsta kosti ekki á því kaupi sem bauðst, en stuttu eftir að sam­komu­lag náð­ist milli Marokkó og Belgíu um vinnu­afls­flutn­inga hófst olíu­krísan og belgískur iðn­aður hrundi.

Í dag er litla Manchester stundum upp­nefnt litla Marokkó en atvinnu­leysi er um 40% þar. Þrátt fyrir við­ur­nefnið eru Belgar af marokkóskum upp­runa ein­ungis lít­ill hluti íbúa. Einn fjórði þeirra sem búa í þessu 90 þús­und manna bæj­ar­fé­lagi eru múslimar, en þó er það orðið frægt fyrir rót­tækar moskur og sem upp­eld­is­stöð Abdel­hamid Abaaoud og Salah Abdeslam.

Gengur laus
Gengur laus Salah Abdeslam ólst upp í Brussel og fátt benti til þess að hann væri strang­trú­aður múslimi. Hann ætl­aði að taka þátt í hryðju­verka­árásinni í París í nóv­em­ber með æsku­vini sínum en guggn­aði og flúði af vett­vangi. Hann gengur enn laus.

Hryðjuverkamaðurinn sem hætti við

Salah Abdeslam fædd­ist 1989 í Belgíu. For­eldrar hans fluttu til lands­ins frá smá­bænum Bouyafar í Marokkó og komu sér fyrir í Brussel. Salah ólst þar upp og fátt benti til þess að hann væri strang­trú­aður múslimi. Hann rak bar í Molenbeek ásamt bróður sínum Brahim, var fastakúnni á homma­bar þar sem hann bæði drakk og neytti vímu­efna. Salah var smá­krimmi og aðal­á­huga­mál hans Playstation-tölvan sem hann átti. Hann og æsku­vinur hans Abdel­hamid Abaaoud voru hand­teknir 2010 fyrir inn­brot í bíla­kjall­ara.

Salah fór til Parísar 11. nóv­em­ber ásamt Abdel­hamid, bróður sínum Brahim og fleirum. Í hót­el­her­bergi, sem þeir deildu og var bókað á nafni Salah, fund­ust DNA-sýni úr þeim, flöskur og sprautu­nálar. Salah virð­ist hafa ætlað sér að taka þátt í árásinni á Stade De France. Bróðir hans Brahim lét lífið þegar hryðju­verka­menn­irnir gerðu til­raun til að kom­ast inn á íþrótta­leik­vang­inn og sprengja sig í beinni útsend­ingu. Áhorf­endur á vell­inum og heima í stofu heyrðu hvell­ina í sprengju­belt­unum en Salah guggn­aði á því og flúði.

Æskuvinur Salah
Æsku­vinur Salah Abdel­hamid Abaaoud var dæmdur fyrir barns­rán þegar hann tók litla bróður sinn, sem þá var ein­ungis þrettán ára gam­all, með sér til Sýrlands til að berj­ast með Íslamska rík­inu. Hann lét lífið í hryðju­verka­árásinni í París.

Sprengju­beltið sem hann bar á sér fannst í rusla­fötu í Montrouge í suð­ur­hluta Parísar. Lögregla náði að rekja far­síma hans að sama stað, en eftir það hefur Salah einnig losað sig við hann. Salah fékk far sem putta­ferða­langur og var bíll­inn stöðv­aður af lög­reglu á leið sinni frá París til Brussel þrisvar sinnum. Það varð Salah hins vegar til bjargar að á þessum tíma var ekki búið að tengja hann við árás­ina og lýsa eftir honum, en dag­inn eftir hryðju­verka­árás­ina var hann kom­inn aftur í heima­hverfi sitt Molenbeek á flótta undan lög­reglu, og lík­ast til einnig fyrr­ver­andi félögum sínum sem kunnu honum litlar þakkir fyrir að flýja á ögur­stundu.

„Áhorf­endur á vell­inum og heima í stofu heyrðu hvell­ina í sprengju­belt­unum en Salah guggn­aði á því og flúði.“

Höfuðpaurinn

Þann 24. maí 2014 fyrir framan gyð­inga­safnið í Brussel skaut grímu­klæddur karl­maður fjóra ferða­menn til bana. Fjórum dögum síðar var fransk-alsírski mað­ur­inn Mehdi Nemmouche hand­tek­inn í Marseille í Frakk­landi fyrir þann glæp. Rannsókn á sím­notkun hans sýndi að hann átti í sam­skiptum við Abdel­hamid Abaaoud sem þá var nýkom­inn aftur frá Sýrlandi. Abaaoud hafði verið dæmdur fyrir barns­rán því hann tók litla bróður sinn, Younes, sem þá var ein­ungis þrettán ára gam­all, með sér til Sýrlands að því er virð­ist til að berj­ast með Íslamska rík­inu.

Blaða­menn­irnir Étienne Huver og Guillaume Lhot­ellier heim­sóttu sýr­lensk-tyrk­nesku landa­mærin og fengu þar myndir og mynd­bönd sem sýndu Abaaoud taka þátt í stríð­inu. Í einu mynd­band­inu hlóð Abaaoud líkum um borð í trukk og á Ahmedin að hafa sagt í mynda­vél­ina: „Áður hentum við sjó­skíðum, mót­or­hjólum, fjór­hjólum, og fylltum hús­bíla af gjöfum til að taka til Marokkó. Núna, lof sé guði, guði að þakka, hendum við villu­trú­ar­fólki og heið­ingjum sem berj­ast gegn okkur.“

Abaaoud var bendl­aður við fjögur af sex til­ræðum sem frönsk stjórn­völd töldu sig hafa komið í veg fyrir árið 2015, þar á meðal skotárás­ina í Thalys-lest­inni sem gekk milli Brussel og Parísar í apríl 2015. Eftir heim­kom­una til Molenbeek virð­ist hann hafa orðið milli­göngu­maður, tengiliður milli ólíkra vina­hópa öfga­manna. Í júlí var gerð til­raun til að hand­taka hann í Verviers í Belgíu en hann var dæmdur til 20 ára fang­els­is­vistar fyrir þátt­töku í hryðju­verkum. Abdel­hamid fór huldu höfði og tókst að kom­ast hjá hand­töku á meðan hann, að öllum lík­indum, skipu­lagði hryðju­verka­árás­ina 13. nóv­em­ber.

Fórnarlambanna minnst
Fórn­ar­lambanna minnst Kvöldið 7. jan­úar er talið að um hund­rað þús­und manns víðs vegar um Frakk­land hafi hist á torgum til að minn­ast þeirra sem féllu í árásinni. Sú tala átti eftir að hækka tals­vert næstu daga en í göng­unni 11. jan­úar tóku lík­ast til um þrjár millj­ónir manna þátt með einum eða öðrum hætti.

Skotbardaginn í St. Denis

Eftir fjöldamorðin á Bataclan hélt Abdel­hamid Abaaoud sig í París. Hann gisti í húsi í miðbæ St. Denis, úthverfis í norð­an­verðri París, ásamt fylg­is­mönnum sínum. Snemma morg­uns þann 18. nóv­em­ber réðst sér­sveit lög­reglu á blokk­ina. Fimm þús­und byssu­kúlum var hleypt af í skot­bar­dag­anum þar sem Abdel­hamid lést ásamt tveimur fylg­is­mönnum, þar með talið ungri konu sem sprengdi sjálfa sig. Einn veg­far­andi og fimm lög­reglu­menn létu lífið, auk þess sem fleiri særð­ust.

Eftir þessa lög­reglu­að­gerð var talið að allir þeir sem komu með beinum hætti að hryðju­verka­árásinni hefðu verið hand­sam­aðir að und­an­skildum Salah Abdeslam. Lög­reglan í Belgíu reyndi án árang­urs að ná Salah þann 16. des­em­ber í Brussel, en her­lög voru sett á borg­ina, allar búðir lok­aðar, sam­komur bann­aðar og útgöngu­banni lýst yfir. Þrátt fyrir hert eft­ir­lit og fjöl­margar lög­reglu­að­gerðir hefur enn ekki tek­ist að hand­sama hann. Lögregla virð­ist telja að hann hafi gist hjá vini sínum Ayoub Bazarouj í Molenbeek stuttu eftir komu sína, það virð­ast DNA-sönn­un­ar­gögn að minnsta kosti benda til. Einnig virð­ist Salah hafa hitt gamla félaga á kaffi­húsum stuttu eftir komu sína til Brussel og rakið sögu sína fyrir þeim.

Salah er enn ófund­inn og ekki hægt að úti­loka að hann sé enn í Belgíu, eða að hann hafi flúið annað. Þessi ára­mót var flug­elda­sýn­ingum aflýst og her­lið var með fullan við­búnað vegna gruns um yfir­vof­andi hryðju­verka­árás, sem teng­ist honum þó ekki beint, það ríkir mikið spennustig enn í Brussel, sem og París þar sem neyð­ar­á­standi hefur enn ekki verið aflétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár