Forstöðumenn gagnrýna áherslu stjórnvalda á einkarekna læknisþjónustu á kostnað opinbera kerfisins

Stjórn­endur Land­spít­al­ans og Sjúkra­húss­ins á Akureyri og land­læknir hafa gagn­rýnt síaukin fjár­fram­lög hins opin­bera vegna þjón­ustu sem einka­reknar lækna­stofur og lækn­inga­fyr­ir­tæki veita meðan sjúkra­hús­unum er skor­inn þröngur stakkur. Gert er ráð fyrir 2 millj­arða auka­fram­lagi til heil­brigð­is­þjón­ustu utan sjúkra­húsa á næsta ári „einkum vegna samn­ings við sér­greina­lækna“.

Forstöðumenn gagnrýna áherslu stjórnvalda á einkarekna læknisþjónustu á kostnað opinbera kerfisins

Stjórn­endur Sjúkra­húss­ins á Akureyri undr­ast hve mis­jafn­lega er tekið á fjár­mögnun magnaukn­ingar hjá sér­fræði­læknum ann­ars vegar og fjár­mögnun auk­inna umsvifa í rekstri sjúkra­hús­þjón­ustu hins vegar í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Með þessu sé verið að skapa ójafn­vægi milli greiðslu­kerf­anna.

Þetta er í takt við yfir­lýs­ingar frá stjórn­endum Land­spít­al­ans um að sú for­gangs­röðun sem birt­ist í áætl­un­inni bendi til þess að rík­is­stjórnin vilji kynda undir þeirri þróun að heil­brigð­is­þjón­usta fær­ist frá sjúkra­húsum og til veit­enda utan sjúkra­húsa, svo sem til einka­stofa sér­fræði­lækna og einka­rek­inna lækn­inga­fyr­ir­tækja.

Land­læknir hefur að sama skapi kallað eftir end­ur­skoðun á samn­ingi Sjúkra­trygg­inga við sér­fræði­lækna og bent á að útgjöld rík­is­ins til einka­rekst­urs hafa auk­ist um 40 pró­sent á síð­ast­liðnum árum en umtals­vert minna til opin­bers rekst­urs. Gert er ráð fyrir 2 millj­arða auka­fjár­veit­ingu til heil­brigð­is­þjón­ustu utan sjúkra­húsa á næsta ári vegna „áætl­aðra útgjalda ýmissa liða sjúkra­trygg­inga á árinu 2017 umfram for­sendur fjárlaga, einkum vegna samn­ings við sérgreina­lækna“ að því er fram kemur í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. 

Aukning framlaga ekki í takt við þörf

Fram­kvæmda­stjórn Sjúkra­húss­ins á Akureyri skil­aði nefnda­sviði Alþingis umsögn um fjár­mála­á­ætl­un­ina í gær. Þar er gagn­rýnt hve tak­mörkuð raunaukn­ing verður á fram­lögum til að mæta þörf fyrir aukna þjón­ustu og upp­bygg­ingu sjúkra­hús­þjón­ust­unnar á næstu árum.

Þegar tekið er til­lit til þátta á borð við breytta ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar, fjölgun sjúk­linga og skurða­að­gerða og aukn­ingu í komum á dag- og göngu­deildir, telja stjórn­endur spít­al­ans að árlegur við­bót­ar­kostn­aður vegna rekstrar Sjúkra­húss­ins á Akureyri nemi um 370 millj­ónum króna. Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er hins vegar ein­ungis gert ráð fyrir 338 millj­óna raunaukn­ingu til allrar sjúkra­hús­þjón­ustu á Íslandi milli áranna 2017 og 2018.

Bjarni Jónasson, for­stjóri Sjúkra­húss­ins á Akureyri, segir í svari við tölvu­pósti Stund­ar­innar um málið að þetta feli ekki í sér að skorið verði niður í þjón­ustu frá því sem nú er. Hins vegar bendi upp­hæð­irnar sem fram koma í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til þess að ekki verði hægt að koma með ásætt­an­legum hætti til móts við þær áskor­anir sem framundan eru í sjúkra­hús­þjón­ust­unni. 

Áhersla lögð á starfsemi utan spítala

Stjórn­endur Sjúkra­húss­ins á Akureyri og Land­spít­al­ans eiga það sam­eig­in­legt að gagn­rýna harð­lega þá áherslu sem lögð er á fjár­veit­ingar til þjón­ustu utan sjúkra­húsa í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Aukn­ingin til þess mála­efna­sviðs er marg­föld á við það sem bætt er við rekstr­ar­grund­völl sjúkra­hús­anna.

Þann 20. apríl síð­ast­lið­inn sendi land­læknir út frétta­til­kynn­ingu þar sem hann sagði að túlkun heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins á heil­brigð­is­lögum opn­aði á auk­inn einka­rekstur og einka­væð­ingu í íslensku heil­brigð­is­kerfi og vand­séð væri hvernig heil­brigð­is­yf­ir­völd gætu haft stjórn á því hvert opin­ber heil­brigðis­út­gjöld rynnu.

Í við­tali við Stöð 2 kall­aði hann eftir end­ur­skoðun á samn­ingi Sjúkra­trygg­inga við sér­fræði­lækna. 

Nokkrum dögum síðar skil­aði svo Rík­is­end­ur­skoðun Alþingi skýrslu um heilsu­gæslu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem fram kemur að vegna erf­ið­leika heilsu­gæslu­kerf­is­ins við að veita nauð­syn­lega þjón­ustu leiti óæski­lega mik­ill fjöldi sjúk­linga til einka­stofa sér­fræði­lækna. Í skýrsl­unni er jafn­framt vaktin athygli á því að hætta sé á hags­muna­á­rekstrum vegna nýs fjár­mögn­un­ar­kerfis heilsu­gæslu­stöðva á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Ein af þeim breyt­ingum sem þá átti sér stað var að í hvert sinn sem skjól­stæð­ingur til­tek­innar heilsu­gæslu­stöðvar leitar annað í heil­brigð­is­kerf­inu dregst fjár­veit­ing til hennar saman. Sem dæmi má nefna að ef ein­stak­lingur leitar á Lækna­vakt­ina drag­ast 4.260 kr. frá ráð­stöf­un­arfé þeirrar heilsu­gæslu­stöðvar sem hann er skráður á. Um leið aukast tekjur Lækna­vakt­ar­innar. Þetta vekur spurn­ingu um hags­muna­á­rekstra þegar heim­il­is­læknar innan Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru einnig starfs­menn og hlut­hafar í Lækna­vakt­inni ehf,“ segir í skýrsl­unni.

Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar kemur fram að bregð­ast þurfi við við­var­andi hækkun á gjalda­lið sérfræði­lækna­þjónustu hjá Sjúkra­trygg­ingum Íslands og und­irbúa nýjan samn­ing við sérgreina­lækna.

Stjórnarherrar telja einkarekstur og arðgreiðslur af hinu góða

Í umsögn Land­spít­al­ans um áætl­unin er bent á að samn­ingur Sjúkra­trygg­inga við sér­greina­lækna hafi verið nefndur sem skóla­bók­ar­dæmi um óskil­greind og ótak­mörkuð kaup á þjón­ustu fyrir almannafé. „Samt er sífellt bætt við fjár­fram­lög til þessa, jafn­vel á fjár­auka­lögum enda virð­ist lítil sem engin stjórn sé á þessum útgjöldum. Ef litið er til rekstrar á mið­lægri stjórn­sýslu SÍ sést svipað mynstur - end­ur­tek­inn halli og sívax­andi kostn­aður við rekstur, m.a. 33% hækkun rík­is­fram­laga bara milli áranna 2014 og 2015. Og enn á að bæta í,“ segir í umsögn­inni.

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í apríl spurði Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra um afstöðu hans til tvö­falds heil­brigð­is­kerfis. Hann svar­aði á þá leið að Sjúkra­trygg­ingar Íslands hefðu borgað marg­vís­lega starf­semi einka­lækna, einka­rek­inna lækna­stöðva, að hluta til á móti sjúk­lingum.

„Ég veit ekki annað en mjög margir sjúk­lingar hafi fengið góðan bata þar. Þetta hefur stytt biðlista. Ég tel að það sé jákvætt fyrir sjúk­linga.“ Þá sagði hann að fara þyrfti vel með fjár­mun­ina sem rynnu til heil­brigð­is­mála. „Ég held að við getum verið sam­mála um það að hér á landi hefur verið einka­rekstur í heil­brigð­is­kerfi um langa hríð. Hann hefur að stórum hluta verið borg­aður af opin­beru fé. Ég held að það sé sjúk­lingum til góðs að hér séu fleiri aðilar sem geta læknað þá.“ 

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, innti svo Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra eftir afstöðu hans til arð­greiðslna úr einka­rek­inni heil­brigð­is­þjón­ustu fyrr í vik­unni. „Það er bara sjálf­sagður og eðli­legur hluti af einka­rekstri almennt að ef menn skila ein­hverjum afgangi geti þeir greitt sér út arð,“ svar­aði hann. „Ég sé ekki ástæðu til þess að gera athuga­semdir við það að menn sem reka einka­fyr­ir­tæki á heil­brigð­is­svið­inu greiði sér út arð ef þeir skila afgangi í rekstri sínum, sama með hvaða hætti það er gert. Það á ekki bara við á þessu sviði heldur á svo mörgum öðrum sviðum þar sem ríkið hefur ákveðið að standa undir fjár­mögnun við­kom­andi opin­berrar þjón­ustu að skil­yrði geta skap­ast til þess að það verði ein­hver afgangur í rekstr­inum.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár