Forsíðumynd Nýs Lífs hluti af auglýsingaherferð Lindex

Eina­kvið­tal við leikkon­una Siennu Miller kom til í gegnum Lindex, fyr­ir­tæki sem leik­konan mærir í við­tal­inu. For­síðu­myndin er úr aug­lýs­inga­her­ferð fyr­ir­tæk­is­ins, en þess er hvergi getið í blað­inu. Fram­kvæmda­stjóri Birtings þver­tekur fyrir að um kost­aða umfjöllun sé að ræða en svarar ekki spurn­ingum blaða­manns.

Forsíðumynd Nýs Lífs hluti af auglýsingaherferð Lindex

For­síðu­við­tal Nýs Lífs við stór­stjörn­una Siennu Miller varð til fyrir milli­göngu tískuris­ans Lindex, án þess að þess sé getið í blað­inu. Rit­stjóri verst fregna, en slík birt­ing gæti hæg­lega flokk­ast sem dul­búin aug­lýs­ing sem er brot á fjöl­miðla­lögum. 

Í nýjasta tölu­blaði Nýs Lífs prýðir stór­stjarnan Sienna Miller for­síðu undir yfir­skrift­inni „Femínisti með sterkar skoð­anir.” Það er blaða­mað­ur­inn Anna Brynja Bald­urs­dóttir sem tekur við­talið við leikkon­una, en þess skal getið að fundur þeirra fór fram í upp­hafi árs. Í inn­gangi að við­tali tekur blaða­maður fram að við­tals­stað­ur­inn sé í London, í „stúdíó” hvar mynda­tökur, á leikkon­unni, fyrir aug­lýs­inga­her­ferð Lindex var í gangi. 

„Við­tals­stað­ur­inn er í stúdíó í norð­ur­hluta London. Þegar þangað er komið tekur við skrán­ing­ar­ferli,” segir í við­tal­inu. Þegar inn var komið lýsir blaða­mað­ur­inn, Anna Brynja fyrstu kynnum af við­mæl­anda sínum, Sienna. „Hún seg­ist vera dálítið þreytt eftir anna­saman dag í mynda­tökum fyrir Lindex her­ferð og spyr hvort að það sé ekki kom­inn tími á einn góðan kaffi­bolla.”

Athygli vekur að allt myndefni af leikkon­unni í Nýju Lífi er úr téðri her­ferð, sem hrundið var af stað einmitt fyrir fáeinum dögum, á sama tíma og við­talið var birt, mörgum vikum eftir að það var tekið. Þetta stað­festir rit­stjór­inn Erna Hreins­dóttir meðal ann­ars í leið­ara blaðs­ins.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár