Forseti Gambíu neitar að viðurkenna úrslit kosninga sem hann tapaði

Einn þaul­setn­asti þjóð­ar­leið­togi heims, Yahya Jammeh, neitar að við­ur­kenna úrslit for­seta­kosn­inga sem hann tap­aði fyrir stuttu. And­stæð­ingur hans og sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna, Adama Barrow, hefur ákallað for­set­ann að segja taf­ar­laust af sér og seg­ist ótt­ast um öryggi sitt.

Forseti Gambíu neitar að viðurkenna úrslit kosninga sem hann tapaði
Jammeh Eftir 22 ár á valda­stóli ætlar að reyn­ast for­set­anum erfitt að láta af völdum.

Hinn umdeildi for­seti Gambíu, Yahya Jammeh, hefur neitað að við­ur­kenna úrslit for­seta­kosn­inga lands­ins, þar sem hann tap­aði fyrir fyrr­ver­andi örygg­is­verð­inum, Adama Barrow. Jammeh hefur verið for­seti lands­ins í 22 ár og hefur á þeim tíma ítrekað verið gagn­rýndur af mann­rétt­inda­sam­tökum fyrir til­raunir til að þagga niður í fjöl­miðlum og fyrir að beita and­stæð­inga sína í stjórn­málum harð­ræði.

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna fund­aði um ástandið síð­ast­lið­inn mánu­dag og var þar tekin ákvörðun um að senda alþjóð­lega samn­inga­menn til höf­uð­borg­ar­innar, Banjul, til þess að reyna að miðla málum. Sendi­herra Banda­ríkj­anna hjá SÞ, Samantha Power, sagði ástandið „hættu­legt“ og benti þar meðal ann­ars á fregnir þess efnis að sumir yfir­menn hers­ins í land­inu væru mjög hlið­hollir Jammeh og jafn­vel lík­legir til þess að grípa til vopna ef svo færi. „Mátt­ur­inn til þess að koma Gambíu í frið­sælt horf er í höndum Jammeh for­seta,“ sagði hún við frétta­fólk að fund­inum loknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár