Flugfreyjur Icelandair skikkaðar í háa hæla

Strangar reglur ríkja um útlit og klæða­burð starfs­manna hjá Icelandair en mis­mun­andi kröfur eru gerðar eftir því hvaða stöðu fólk gegnir. Flug­freyjur eiga að mæta til vinnu í háum hælum og vera með vara­lit alla vakt­ina. Læknir segir of mikla notkun á hæla­skóm geta verið heilsu­spill­andi og flug­freyja seg­ist oft hafa óskað þess að hafa val um að klæð­ast lág­botna skóm eftir erf­iða vakt.

Flug­freyjum Icelandair er skylt að mæta til vinnu í hæla­skóm. Hælarnir mega ekki vera lægri en fjórir sentí­metrar eða hærri en tíu sentí­metrar. Sýnt hefur verið fram á að stöðug notkun á hæla­skóm geti verið heilsu­spill­andi, auk þess sem konur eiga mis­auð­velt með að ganga á háum hælum og það getur valdið verkjum. Flug­freyja, sem Stundin ræddi við, seg­ist margoft hafa þurft að fara úr skónum og setja fæt­urna á kalt eld­hús­gólfið í vél­inni til þess að lina verki. Hún er ósátt við að hafa ekki val um að klæð­ast flat­botna skóm. „Ég væri til í að hafa val um það þegar ég er þreytt eða ekki í stuði til þess að ganga á háum hælum,“ segir hún. „Í gegnum tíð­ina hef ég oft óskað þess að geta gengið út úr flug­vél­inni í flat­botna skóm, í stað þess að þurfa að fara á háum hælum út úr vél­inni eftir erfitt flug, í gegnum flug­stöð­ina og inn í rútu,“ þar sem henni er loks heim­ilt að fara úr hæla­skónum.

Aukið álag á fæturna 

Rann­sóknir hafa sýnt fram á að háir hælar geta valdið marg­vís­legum kvillum. Spurn­inga­könnun meðal með­lima Samtaka banda­rískra bækl­un­ar­lækna frá árinu 2014 leiddi í ljós að háir hælar væru langal­geng­asta orsök fóta­verkja hjá konum. Hælaskór valda því að kálfar og vöðvar í mjöðmum og baki spenn­ast upp til að vega upp á móti skekkj­unni á lík­ams­stöð­unni sem þeir valda. Þannig geta þeir valdið því að vöðvar stytt­ast, hásin herð­ist og hreyfi­geta ökk­lans minnkar, með auknum líkum á meinum. Aðrar rann­sóknir sýna fram á að háir hælar leggja aukið álag á hné­skelj­arnar, auk þess sem gera má ráð fyrir því að 5 sentí­metra hæla­skór auki álag á tábergið um 57% og 7,5 sentí­metra háir hælar auki álagið um 76%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár