„Galið“ að ræða ekki við Sjálfstæðisflokk og „fávitaskapur“ að úthúða Óttarri Proppé

Karl Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, seg­ist hafa fengið „illt í mag­ann" yfir umræðu um ákvörðun Óttarrs Proppé um að fara í form­legar við­ræður um rík­is­stjórn­ar­myndun með Sjálf­stæð­is­flokknum og Viðreisn.

„Galið“ að ræða ekki við Sjálfstæðisflokk og „fávitaskapur“ að úthúða Óttarri Proppé
Óttarr Proppé Formaður Bjartrar fram­tíðar tók saman við Viðreisn eftir kosn­ingar.

Karl Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Besta flokks­ins og stjórn­ar­maður og fram­bjóð­andi Bjartrar fram­tíðar, segir að hann fái „illt í mag­ann“ yfir umræðu um Óttarr Proppé, for­mann Bjartrar fram­tíðar, eftir að Óttarr ákvað að ganga til form­legra við­ræðna um myndun rík­is­stjórnar með Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn.

Karl birti færslu á Facebook í kvöld til varnar Óttarri og mann­kostum hans. 

„Það sem mér svíður hins vegar alveg ofboðs­lega um þessar mundir er hvernig fólk leyfir sér að tala um Óttar bara vegna þess að hann leyfir sér að kanna mögu­leik­ann á sam­starfi með þeim sem fengu stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið frá for­set­anum. Orð­bragðið sem er notað víða er svo ósmekk­legt að ég fæ bara illt í mag­ann og er skapi næst fara í þá rassíu að henda sumum út af vina­list­anum mínum.“

Karl tekur ekki dæmi um orð­bragð í garð Óttarrs.

Björt fram­tíð er í odda­stöðu við myndun rík­is­stjórnar eftir að flokkar hafa úti­okað hver annan. Flokk­ur­inn hafði rætt við Pírata, Sam­fylk­ingu og Vinstri græna um myndun banda­lags fyrir kosn­ingar og var lögð fram vilja­yf­ir­lýs­ing um sam­starf í kjöl­far þess. Eftir kosn­ingar til­kynnti Óttarr Proppé að Björt fram­tíð færi með Viðreisn á fund Bjarna Bene­dikts­sonar og að flokk­arnir tveir yrðu sam­stíga í við­ræðum um myndun mögu­legrar rík­is­stjórnar.

Rík­is­stjórn miðju­flokks­ins Bjartrar fram­tíðar með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokki yrði sú fyrsta í sög­unni með tvo hægri flokkka og má gera ráð fyrir því að hún yrði hægri­s­inn­að­asta rík­is­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar. Karl seg­ist hafa skiln­ing á því að Björt fram­tíð vinni nú að myndun hægri stjórnar. 

„Í mínum huga væri galið að segja bara þvert nei við þessum sam­ræðum og full­kom­lega eðli­legt að kanna hvað fólk hefur að segja og hvort mögu­legt er að ná fram stefnu­málum BF í rík­is­stjórn með þessum flokkum - og ef svo er ekki, þá bara sleppa þessu. Við verðum alla­vega að vera viss um að þetta hafi verið skoðað til hlítar áður en við blásum þetta af. Hvort fólk er sam­mála þessu er eitt en það er annað ef á að fara úthúða fólki fyrir að tala saman. Það er bara fávita­skapur.“

Færsla Karls í heild

Óttarr Proppé er einn besti maður sem ég þekki. Hann er vand­aður, gáf­aður, var­kár, góð­hjart­aður og heið­ar­legur. Allt frá því við sáum fram á að Besti flokk­ur­inn yrði hluti af borg­ar­stjórn hefur hann talað um mik­il­vægi þjón­andi for­ystu og að setja almanna­hags­muni umfram hags­muni þröngra hópa og hann hefur hvergi vikið frá því við­horfi sínu. Nú er hann í fram­línu fólks af miðj­unni sem er að ræða við hægri flokk­ana um hugs­an­legt stjórn­ar­sam­starf. Í mínum huga væri það ekki óska­staða en ég ætla að leyfa mér að leggja traust mitt í hendur Óttari og anda með nef­inu þangað til eitt­hvað raun­veru­legt er að frétta úr þessum við­ræðum.

Það sem mér svíður hins vegar alveg ofboðs­lega um þessar mundir er hvernig fólk leyfir sér að tala um Óttar bara vegna þess að hann leyfir sér að kanna mögu­leik­ann á sam­starfi með þeim sem fengu stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið frá for­set­anum. Orð­bragðið sem er notað víða er svo ósmekk­legt að ég fæ bara illt í mag­ann og er skapi næst fara í þá rassíu að henda sumum út af vina­list­anum mínum.

Í mínum huga væri galið að segja bara þvert nei við þessum sam­ræðum og full­kom­lega eðli­legt að kanna hvað fólk hefur að segja og hvort mögu­legt er að ná fram stefnu­málum BF í rík­is­stjórn með þessum flokkum - og ef svo er ekki, þá bara sleppa þessu. Við verðum alla­vega að vera viss um að þetta hafi verið skoðað til hlítar áður en við blásum þetta af. Hvort fólk er sam­mála þessu er eitt en það er annað ef á að fara úthúða fólki fyrir að tala saman. Það er bara fávita­skapur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár