Facebook bað Gylfa Ægis afsökunar

Gylfi Ægisson seg­ist koma margefldur til baka en Facebook-síða hans var tekin niður á dög­unum. Hann segir ekk­ert hræð­ast og komi til þess muni hann verja sig gegn þeim sem hafa hótað honum líf­láti.

Facebook bað Gylfa Ægis afsökunar

Í fyrra­dag var lokað á per­sónu­lega Facebook-síðu þjóð­laga­söngv­ar­ans Gylfa Ægis­sonar í kjöl­far þess að hann for­dæmdi hinsegin fræðslu í Hafn­ar­firði og bar fram ásak­anir um að verið væri að „eyði­leggja“ börn, „heila­þvo“ þau og „fremja sál­ar­morð“ á þeim.

Nú er síða Gylfa aftur komin upp og seg­ist hann hafa fengið afsök­un­ar­beiðni frá Facebook. „Þeir báðu mig afsök­unar. Það er núna búið að ráð­ast á mig tvisvar og í bæði skiptin hafa þeir beðið mig inni­lega fyr­ir­gefn­ingar. Þeir sendu mér þetta áðan, að þeir bæð­ust afsök­unar á þessu. Ég segi bara að skömmin er þeirra sem réð­ust á síð­una mína,“ segir Gylfi.

Tengja hinseginfræðslu við nauðganir

Gylfi hefur safnað liði gegn til­lögu innan bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar að efla hinsegin fræðslu í skólum bæj­ar­ins. Hann sakar bæj­ar­yf­ir­völd um „sál­ar­morð á börnum“, segir að verið sé að „skemma börnin og eyði­leggja“ og kveðst til­bú­inn að fara í fang­elsi fyrir bar­áttu sína gegn fræðsl­unni. Hann sakar Samtökin ‘78 um yfir­vof­andi heila­þvott. „Samtökin '78 fá að heila­þvo Grunn­skóla­börn í Hafn­ar­firði að vild,“ full­yrðir hann.

Stundin fjall­aði um yfir­lýs­ingar hans og birti svör fyrr í vik­unni. Meðal ásak­ana fylg­is­manna Gylfa, sem hafa birst á Facebook og í inn­hringi­tíma á Útvarpi sögu, snúa þær að því að tengja hinsegin fræðslu við nauðg­anir og barn­a­níð.

Þannig tók söng­konan Leoncie undir á Facebook-síðu Gylfa: „Næst fara kenn­ara til skól­ans og heila­þvo börnin að það er allt í lagi að nauðga,“ full­yrðir hún

Meðal þess sem Gylfi sagði á Facebook-síðu sinni áður en henni var lokað var að Samtökin '78 myndu „heila­þvo“ börn og sagði það ekki koma á óvart, þar sem það hafi tíðkast í ára­tugi að „fremja sál­ar­morð á börnum“.  

„Nú skal ráð­ist á grunn­skóla­börn sem varla hafa náð kyn­þroska og þau heila­þvegin af Samtökum 78 Hvernig er eig­in­lega heila­búið í þessu fólki? er það steikt? Góðir Íslend­ingar brettum nú upp á ermarnar og STÖÐVUM inn­ræt­ingu sam­tak­anna 78 á grunn­skóla­börnum í Hafn­ar­firði,“ sagði Gylfi.

Reglur Facebook kveða hins vegar á um að birt­ing á geir­vörtum kvenna sé brot sem leitt getur til lok­unar Facebook-síðna.

Hótar þeim sem hótar honum

Hann segir að honum hafi borist líf­láts­hót­anir eftir nýjasta upp­á­tæki hans, Barna­skjól. „Það var búið að marg­hóta mér að þetta væri hat­ursá­róður og ég veit ekki hvað og hvað, að ég væri hrein­lega skot­inn niður. Það er hell­ingur af fólki að kommenta á Barna­skjól, síð­unni sem átti að skjóta niður, og vill ekki að sé hrært í börn­unum þeirra. Ég kem margefldur til baka,“ segir Gylfi og bætir við að sér hafi þótt ein athuga­semd verst. „Það var þetta komment um að ég væri bestur hnakka­skot­inn. Svo var það tekið út. Bara hnakka­skot­inn. Ég kem margefldur frá því, það er eng­inn að fara að skjóta mig. Ég hef rétt á að verja mig. Það er bara verst að ég skrif­aði ekki niður nafnið á þessum gaur því þá hefði ég kannski ein­hverja nótt­ina setið á rúm­stokknum hjá honum og talað við hann. Ég gerði það síð­ast þegar glæpa­maður hót­aði mér. Ég hræddi hann svo mikið að hann lét mig í friði,“ segir Gylfi.

Áhrif viðhorfanna á hinsegin börn

Þá hefur móðir sam­kyn­hneigðs manns skrifað opið bréf til Gylfa, þar sem hún lýsir áhrifum við­horfa eins og þeirra sem Gylfi dreifir, á son sinn í gegnum árin:

„Hann var öðru­vísi, hann fór sínar eigin leiðir og gerir enn. Hann fylgdi aldrei þessu „normi“ hvað svo sem það á að vera. Hann fór sem Mjall­hvít í leik­skól­ann einn ösku­dag­inn, við útskýrðum fyrir honum að hann kæmi lík­lega nið­ur­brot­inn heim, því við vissum að enn væri til svona fólk eins og þú. Hann kom nið­ur­brot­inn heim!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár