Erfiðara að berjast við kerfið en að eiga barn með Downs

Viktor Skúli hefur búið í Danmörku, í Belgíu og í Tyrk­landi á sinni stuttu ævi. Mamma hans, Sig­ur­björg Hjör­leifs­dóttir, segir að það sem þau for­eldr­arnir höfðu mestar áhyggjur af eftir að Viktor fædd­ist hafi ekki ræst. Þeir hlutir hafi gleymst í gleði og amstri hvers­dags­ins. Það sem minni hins vegar stöðugt á fötlun hans sé slag­ur­inn við kerfið.

Erfiðara að berjast við kerfið en að eiga barn með Downs
Viktor og mamma Sig­ur­björg Hjör­leifs­dóttir segir stuðn­ing og ráð frá for­eldrum ann­arra barna með Downs hafa skipt sköpum á fyrstu árum Viktors. Sjálf reynir hún að hjálpa nýbök­uðum for­eldrum barna með Downs eins og hún getur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þau Sig­ur­björg Hjör­leifs­dóttir og Ólafur Ingi Skúlason eru rík af vel heppn­uðum afkvæmum. Þau eiga tíu ára dóttur, Andreu, son­inn Viktor Skúla, sem er fimm að verða sex og Freyju, sem er nýorðin fjög­urra ára. Hvað þroska varðar eru yngri systk­inin tvö á svip­uðum slóðum stödd. Viktor Skúli er nefni­lega með Downs-heil­kennið og þroskast því ekki á sama hraða og önnur börn.

Sig­ur­björg og Viktor hitta blaða­mann Stund­ar­innar í húsa­kynnum Styrkt­ar­fé­lags lamaðra og fatl­aðra á Háa­leit­is­braut, þangað sem þau eru mætt í hans viku­legu iðju­þjálfun. Viktor er nú ekk­ert endi­lega á því að fara með þjálf­ar­anum strax og vill heldur hlusta á mömmu sína spjalla og leika sér að stórum tusku­fíl á bið­stof­unni. Það tekur þó þjálf­ar­ann ekki langan tíma að lokka hann inn í sal­inn, enda greini­lega orku­mik­ill strákur sem finnst gaman að leika sér.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár