Er Donald Trump snillingur?

Donald Trump er fyrst og fremst popúlisti sem gæti orðið næsti for­seti Banda­ríkj­anna, nán­ast ein­ungis vegna gríð­ar­legra vin­sælda meðal hvítra karla. Hvernig tókst honum að sigra þaul­reyndar kosn­ingamask­ínur nán­ast einn síns liðs?

Donald Trump er óhefð­bund­inn fram­bjóð­andi í síð­ari tíma sögu repúblik­ana. Flokk­ur­inn hefur barist fyrir lægri sköttum, færri reglu­gerðum og lagst hart gegn til­raunum demókrata til að nið­ur­greiða heil­brigð­is­þjón­ustu. Trump hefur ekki ávallt talað í anda hefð­bund­inna íhalds­manna. Hann sagð­ist hlynntur því að ríkir greiddu hærri skatta, tal­aði um að ekki væri hægt að láta fólk bara deyja á göt­unni heldur að ríkið mætti hjálpa, og þótt margt af því vinstri­s­inn­að­asta sem hann hefur sagt hafi síðar verið dregið til baka er ljóst að hann er frjáls­lynd­ari og félags­lynd­ari en ýmsir aðrir fram­bjóð­endur. Donald Trump er fyrst og fremst popúlisti og sem slíkur minnir hann meira á George Wallace heldur en George Bush. En hvernig tókst honum að sigra þaul­reyndar kosn­ingamask­ínur nán­ast einn síns liðs?

Uppfyllir ákveðið tómarúm

Mikil óánægja hefur verið meðal kjós­enda repúblik­ana eftir kjör Obama for­seta, en reyndar var hún þegar byrjuð að magn­ast undir lok Bush-tíma­bils­ins. Stjórn­mála­menn repúblik­ana hafa árum saman talað gegn ofur­trú á mennt­uðum sér­fræð­ingum, vís­indum og stofn­ana­veldi. Þeirra and-intellektúal­ismi náði hámarki í George Bush yngri sem taldi sig ekki þurfa að hlusta á neinn, bara virð­ast ákveð­inn í sinni sök. Heims­myndin sem stjórn­mála­menn­irnir drógu upp var að fjöl­miðlar væru fjand­samir íhalds­mönnum og til­heyrðu vinstri­s­inn­aðri elítu sem ræki upp­haf sitt til háskóla­sam­fé­lags sem hefði það eitt á dag­skrá að ráð­ast gegn banda­rískum gildum.

En það hafði átt sér stað klofn­ingur milli kjós­enda og flokks­for­ystu. Kjós­endur voru ósáttir við Íraks­stríðið og vonsviknir eftir að repúblikanar, þvert á tal um mark­aðs­frelsi, not­uðu rík­is­valdið til að bjarga stóru bönk­unum frá falli. Óhjá­kvæmi­lega urðu þing­menn flokks­ins að fjar­lægri elítu í augum þess­ara kjós­enda, sama hvað stjórn­mála­menn­irnir hömr­uðu á and­stöðu sinni við rík­is­valdið og jafn­vel stutta til­raun til að lama það alger­lega 2013. Inn í þetta tóma­rúm steig Donald Trump.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2016

ErlentForsetakosningar í BNA 2016

Berg­málið frá Hitler: Er Trump fas­isti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár