Ekkert feimin við að berjast fyrir sínu

Lífið brosir við Halldóru Jóns­dóttur. Hún er nýfarin að búa með ást­inni sinni, vinnur á bóka­safni eins og hana hafði alltaf dreymt um og hefur meira en nóg að gera í að sinna tón­list, keilu, leik­list og öðrum áhuga­málum. Hún sættir sig ekki við að líf ann­arra sé metið verð­mæt­ara en hennar og telur að heim­ur­inn verði fátæk­ari ef af því kemur að fólk með Downs verði ekki lengur til.

Ekkert feimin við að berjast fyrir sínu
Bar­áttu­kona og bóka­ormur Halldóra Jóns­dóttir elskar bækur og er þess vegna him­in­lif­andi með vinn­una sína, sem hún sinnir af mik­illi alúð. Hún vinnur í bóka­safn­inu í Árbæ og er sér­stak­lega hæf í því að raða í barna­bóka­deild­inni.

Þegar blaða­maður heim­sækir Halldóru Jóns­dóttur á heim­ili móður hennar í Blesu­gróf, og verður að orði að þetta sé skemmti­legur staður í borg­inni, sem hann hafi aldrei komið á áður og spyr hvort það sé ekki gott að búa þarna, er Halldóra fljót að leið­rétta: „Ég á ekki heima hérna, ég er bara í heim­sókn,“ segir hún ákveðin. Það er ekki skrýtið að hún vilji hafa þetta atriði á hreinu. Hún hafði verið á biðlista eftir því í fjórtán ár að kom­ast í sitt eigið hús­næði. Það varð því tvö­faldur draumur sem varð að veru­leika fyrir skemmstu: Að flytja úr for­eldra­húsum og fá að búa með ást­inni í lífi sínu, honum Ólafi Guð­munds­syni. Þau voru hins vegar svo óheppin að næla sér bæði í flensu þremur dögum eftir að hafa flutt inn og þurftu því tíma­bundið að snúa aftur á heim­ili for­eldra sinna og leyfa þeim að sjá um sig. En þau eru óþreyju­full að kom­ast aftur heim. „Við viljum fara aftur heim „ því nú köllum við Hraun­bæ­inn heim – af því okkur var lengi búið að langa að fara frá mömmu okkar og pabba og gera meira sjálf, gera hlut­ina saman, bara eins og pör gera, og vera sjálf­bjarga,“ segir hún og bætir við að fyrstu dag­arnir í sam­búð hafi verið góðir. Þau hafi spilað tölvu­leiki, litað saman, þrifið, eldað og borðað. Þau hafi líka hjálp­ast að við að búa um sig  – en samt ekki fyrr en þau lang­aði til og alls ekki strax eftir að þau vökn­uðu. „Þetta var fyrsta skrefið okkar. Ef okkur gengur mjög vel færum við okkur kannski nær mömmu og pabba,“ segir Halldóra. Eitt gerir hún þó ekki með honum og það er að horfa á fót­bolta. „Hann elskar fót­bolta og horfir alltaf á hann. Það er ekki hægt að trufla hann þegar hann er að horfa, því hann er bara fastur við skjá­inn. Þá er ég bara að lita á meðan.“

Eiga lífsgleðina sameiginlega

Halldóra og Ólafur eru á svip­uðu reki, hann er 31 árs og hún 33 ára. Þau kynnt­ust fyrir tveimur árum í sum­ar­búðum fyrir fatl­aða á Laug­ar­vatni og hafa verið óað­skilj­an­leg síðan. „Við erum bara gott par. Hann er bara góður strákur, lífs­glaður, eins og ég er líka. Svo við pössum vel saman.“

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár