„Ég var í hálfgerðu kvíðakasti í morgun“

Erla Hlyns­dóttir, fyrr­ver­andi blaða­maður DV, vann þriðja málið gegn íslenska rík­inu fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu í morgun.

„Ég var í hálfgerðu kvíðakasti í  morgun“

„Ég var í hálf­gerðu kvíða­kasti í morgun en svo líður mér alveg frá­bær­lega vel,“ segir Erla Hlyns­dóttir, fyrr­ver­andi blaða­maður DV, sem í morgun skráði nafn sitt ræki­lega á blöð sög­unnar þegar hún vann þriðja mál sitt fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Það var þáver­andi útgáfu­fé­lag DV, Birt­ingur, ásamt Blaða­manna­fé­lagi Íslands, sem sótti málið á hendur íslenska rík­inu. Erlu voru dæmdar rúm­lega sex millj­ónir króna í skaða­bætur. Hún fékk aftur á móti ekki dæmdan kostnað vegna lög­manna.

Kókaínsmyglarar
Kóka­ínsmygl­arar Forsíðan frá árinu 2007 sem Erla var dæmd fyrir.

Málið snérist um frétt sem Erla skrif­aði í DV árið 2007 „Næstum hreint kókaín í pall­bíl“ sem fjall­aði um ákæru á hendur Rúnari Þór Róberts­syni vegna inn­flutn­ings á tæpum 3,8 kílóum af kóka­íni. Á for­síðu blaðs­ins var full­yrt að Rúnar Þór væri „kóka­ínsmygl­ari“. Viku eftir að fréttin birt­ist var Rúnar Þór sýkn­aður í hér­aðs­dómi og sú nið­ur­staða var stað­fest í Hæsta­rétti. Rúnar Þór fór fram á gjaf­sókn íslenska rík­is­ins. Það var heim­ilað í ráð­herra­tíð Björns Bjarna­sonar og stóð íslenska ríkið undir lög­sókn­inni á hendur blaða­mann­inum sem nú hefur verið dæmd ólög­mæt. Ummælin „kóka­ínsmygl­arar“ og „í þeirri trú að kóka­ínið væri á sínum stað“ voru dæmd dauð og ómerk í dómi Hæsta­réttar árið 2010. Síðari ummælin eru tekin orð­rétt upp úr ákæru. Þá var Erlu, ásamt Sig­ur­jóni M. Egils­syni, þáver­andi rit­stjóra DV, gert að greiða Rúnari Þór 150 þús­und krónur í bætur vegna máls­ins. Rúnar Þór var síðar dæmdur í tíu ára fang­elsi fyrir aðild sína í Papeyj­arsmygl­inu svo­kall­aða.

Þetta er sem áður segir í þriðja sinn sem Erla sigrar mál gegn íslenska rík­inu fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu. Í þeim fyrri var Erla dæmd fyrir ummæli við­mæl­enda sinna, ann­ars vegar í umfjöllun um kampa­víns­klúbb­inn Strawberry‘s og hins vegar um Byrg­is­málið. 

Sanngjörn niðurstaða

Erla sagði í morgun að nið­ur­staðan í mál­inu væri að sínu mati afar sann­gjörn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár