„Dr. Livingstone, geri ég ráð fyrir?“

David Livingstone varð að heim­þekktum manni með frá­sögnum sínum af Afríku. Ekkert hafði heyrst til hans árum saman þegar blaða­mað­ur­inn Henry Stanley fann hann eftir margra mán­aða leit og kastaði þá á hann einni fræg­ustu kveðju allra tíma.

„Dr. Livingstone, geri ég ráð fyrir?“
Fund­ur­inn frægi Kveðja Henry hefur orðið að inn­blæstri fyrir fjöl­marga lista­menn.

Ein fræg­asta saga af ferða­lagi vest­rænna manna til Afríku átti sér stað fyrir 145 árum, þegar frétta­mað­ur­inn Henry Stanley fann loks hinn fræga Dr. Livingstone.

David Livingstone kom fyrst til Afríku árið 1840 með tvö mark­mið: Að kanna álf­una og koma á enda­lokum þræla­halds. Skrif hans og fyr­ir­lestrar í Englandi kveiktu síðar áhuga almenn­ings á „Álfunni myrku“ og áttu eftir að gera Livingstone að þjóð­hetju og lif­andi goð­sögn.

Árið 1864 ferð­að­ist Livingstone aftur til Afríku og hóf könn­un­ar­leið­angur í gegnum miðja álf­una með það fyrir stafni að finna upp­tök árinnar Níl. Mánuðir urðu að árum og lítið sem ekk­ert heyrð­ist frá land­könn­uð­inum fræga. Kjafta­sögur fóru á kreik um að Livingstone væri haldið föngnum eða hann jafn­vel lát­inn. Dagblöð birtu fyr­ir­sagnir eins og „Hvar er Livingstone?“ Almenn­ing þyrsti í fréttir af þjóð­hetj­unni sinni. Árið 1871 hafði for­vitnin borist yfir Atl­ants­hafið til Ameríku og Henry Stanley, blaða­manni New York Herald, var gert að fara til Afríku og finna Livingstone.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár