„Þið teljið að þið séuð ekki nasistar af því þið eruð góða fólkið“

Áslaug María Frið­riks­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, bar vinnu­brögð borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans saman við kyn­þátta­mis­munun nas­ista á borg­ar­stjórn­ar­fundi í kvöld. Kallað var eftir afsögn borg­ar­stjóra og stór orð höfð uppi um skað­ann sem ákvörð­unin í síð­ustu viku hefði valdið.

„Þið teljið að þið séuð ekki nasistar af því þið eruð góða fólkið“

Auka­fundur borg­ar­stjórnar vegna til­lögu um að draga til baka sam­þykkt um snið­göngu á ísra­elskum vörum fór fram í Ráð­hús­inu í kvöld. Stundin fjall­aði um málið eftir því sem umræð­unum vatt fram.

Kl. 13:20, 23. sept

Áslaug hefur beðist afsök­unar á ummælum sínum. Á Facebook-síðu sinni skrifar hún:

„Á borg­ar­stjórn­ar­fundi í gær fjall­aði ég um alvar­leika þess við­horfs að telja sig æðri lögum í skjóli þess að um góðan mál­stað væri að ræða. Tilefnið var að ég taldi ákveðna borg­ar­full­trúa meiri­hlut­ans ekki skilja hversu hættu­legt for­dæmi væri þar með sett. Ekki væri alltaf öruggt að gott fólk væri við stjórn og tók ég í kjöl­farið svo til orða að for­dæmið yrði sér­stak­lega slæmt ef til dæmis nas­istar kæmust til valda. Þeir gætu þá í skjóli þess að þeir trúðu á ákveð­inn mál­stað virt lög að vettugi eins og borg­ar­stjórn­ar­meirit­hlut­inn gerði fyrir viku. Ég var ekki að líkja meiri­hlut­anum við nas­ista en það hefur mis­skilist og það þykir mér mjög leitt. Ég vil því biðj­ast afsök­unar á því að hafa ekki valið orð mín af meiri kost­gæfni og vandað betur til máls míns.“

Kl. 00:45

Áslaug Frið­riks­dóttir tjáir sig á Facebook og seg­ist vilja kom því skýrt á fram­færi að hún hafi ekki verið að kalla full­trúa meiri­hlut­ans nas­ista. „Ég not­aði nas­istana sem dæmi um af hverju virð­ing fyrir lögum og reglu skiptir máli. Lög eru ekki til þess að vera bara stíf og leið­in­leg og koma í veg fyrir fal­leg mál. Þau eru örygg­is­vent­ill – einmitt sett til að gera vondu fólki erf­ið­ara fyrir ef það kemst til valda,“ skrifar Áslaug og bætir við: „Ef nas­istar næðu meiri­hlut­anum í borg­ar­stjórn myndu sömu lög – og meiri­hlut­inn nú ber enga virð­ingu fyrir og vill helst virða að vettugi - bjarga því að þeir gætu tekið alls­konar ógeð­felldar ákvarð­anir þrátt fyrir að hafa völdin. Það er mikil van­virð­ing að bera ekki virð­ingu fyrir því hlut­verki laga og reglna að halda að þau eigi alltaf bara við um ákvarð­anir ann­arra, en ekki sinna eigin.“

Kl. 21:27, 22. sept

Borg­ar­stjórn hefur nú sam­þykkt með atkvæðum allra fimmtán borg­ar­full­trúa að fella úr gildi sam­þykkt borg­ar­stjórnar frá því í síð­ustu viku um snið­göngu á ísra­elskum vörumum. Var fundi slitið kl. 21:20.

Kl. 20:30

„Við erum í alþjóð­legu sam­hengi ras­istar. Ykkur er sama um það,“ sagði Áslaug Frið­riks­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í ræðu sinni rétt í þessu, nefndi að íslenskar vörur hefðu verið teknar úr búðum og vitn­aði til yfir­lýs­ingar Simon Wiesentahl-stofn­un­ar­innar þar sem gyð­ingar eru hvattir til að fara ekki til Íslands. „Það skiptir ekki máli þótt ykkur finn­ist þið vera ofboðs­legir mann­rétt­inda­fröm­uðir,“ sagði hún og full­yrti að sam­þykkt borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans hefði verið and­stæð lögum og haft slæmar afleið­ingar. „Ykkur er í raun og veru alveg nákvæm­lega sama, þið takið þetta ekki alvar­lega og þið eruð meira að segja farin að fabúlera um það að skað­inn sé nán­ast eng­inn. Algjör­lega óskilj­an­legt og mér finnst þetta bara ekki siðað.“

„Þið gerið það í krafti þess
að þið séuð góða fólkið“

Hún sagði að borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn virð­ist hafa talið sig æðri lögum. „Þið tölduð ykkur æðri lög­unum og mér finnst það svo alvar­legt brot að þið hljótið að vera að íhuga afsögn.“ Sagði hún meiri­hlut­ann ganga fram „með hegðun sem ég held að ekk­ert okkar vilji sjá. En þið gerið það í krafti þess að þið séuð góða fólkið“. Þá nefndi hún dæmi úr sög­unni:

„Segjum að nas­istar kæmust hér við völd og ákvæðu að setja ein­hvers konar bann á hluti, fara í gegnum inn­kaupa­stefn­una og segja: 'þetta hérna, þetta er ein­hvern veg­inn þannig að við teljum að hér sé verið að brjóta á fólki og lalala'... þið eruð í raun­inni að gera þetta nema að þið teljið að þið séuð ekki nas­istar af því þið eruð góða fólkið“.

Kl. 20:27

„Fram­ganga ykkar í minni­hlut­anum und­an­farnar vikur hefur ein­kennst af póli­tískum subbu­skap þegar þið hafið þjösnast áfram og kallað eftir afsögn borg­ar­stjóra,“ sagði Magnús Már Guð­munds­son, borg­ar­full­trúi Sam­fyk­ing­ar­innar. Gagn­rýndi hann sjálf­stæð­is­menn fyrir að hafa ekki lagst af meiri hörku gegn til­lög­unni þegar rætt var um hana á borg­ar­stjórn­ar­fundi í síð­ustu viku. Halldór Hall­dórs­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, furð­aði sig á þessum mál­flutn­ingi og sagði borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ann láta eins og sitt eigið klúður væri minni­hlut­anum að kenna.

Kl. 20:07

„Baráttan fyrir mann­rétt­indum er ekki ein­föld,“ sagði Heiða Björg Hilm­is­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, í ræðu sinni. Sagði hún til­lög­una hafa verið illa orð­aða og því yrði að draga hana til baka. „Við erum ekki að draga til baka erindi hennar, sem er að standa upp fyrir mann­rétt­indum fólks,“ sagði hún þó einnig. Heiða benti á að þótt sam­þykkt borg­ar­stjórnar yrði tekin til baka úti­lok­aði það ekki að borgin ákvæði að snið­ganga vörur í fram­tíð­inni vegna mann­rétt­inda­sjón­ar­miða.

Kl. 20:02

„Að þekkja og virða sín valda­mörk eru eitt af mik­il­væg­ustu verk­efnum stjórn­mál­anna,“ segir Halldór Auðar Svansson, odd­viti Pírata í borg­ar­stjórn. „Við hugs­uðum ekki nógu vel um afleið­ing­arnar.“ Halldór segir drög að til­lögu Bjarkar hafa legið fyrir í borg­inni í nokkurn tíma en til­lagan þó verið lögð fram með of skömmum fyr­ir­vara. „Þannig að ég tel fulla ástæðu til að biðj­ast afsök­unar á því að hafa farið fram úr sjálfum mér og beitt valdi mínu á óábyrgan hátt. Ég geri það hér með,“ sagði Halldór og bætti við: „Vegurinn til heljar er því miður oft varð­aður góðum áformum. Áformin voru nefni­lega ekki vond - þau sner­ust um að vekja athygli á her­námi Ísra­els­manna á land­svæðum Palest­ínu­manna og þrýsta á um að látið yrði af því. Mér finnst þessi mál­staður hafa dálítið gleymst í umræð­unni um til­lög­una og afleið­ingar hennar og von­andi gef­ast færi á að ræða áfram hvernig halda má honum og öðrum góðum og mik­il­vægum mál­stöðum á lofti.“

Kl. 19:55

Ítrekað hefur verið minnst á bréf Hösk­uldar Ólafs­sonar, banka­stjóra Arion banka, til Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra í kvöld, en eins og fram hefur komið áframsendi banka­stjór­inn Degi bréf frá Eggerti Dag­bjarts­syni, einum af þeim fjár­festum sem koma að bygg­ingu Marriott-hót­els við Hörpu, sem lýst hafði áhyggjum af við­brögðum við ákvörðun borg­ar­stjórnar. Dagur vísar því á bug að þetta bréf eitt og sér hafi valdið því að hann ákvað að draga til baka til­lögu borg­ar­stjórnar um að snið­ganga ísra­elskar vörur.

Kl. 19:50

„Ég vona að borg­ar­full­trúar hafi ekki hér verið að hvetja aðila til að krefj­ast skaða­bóta af borg­inni vegna afleidds tjóns," sagði Björn Blöndal, odd­viti Bjartrar fram­tíðar í ræðu sinni. Sagði hann kröfu um afsögn borg­ar­stjóra „ein­hvers konar yfir­spil“. Þá spurði Björn hvort borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins væru að veita meiri­hlut­anum aðhald eða að reyna að valda póli­tískum skaða. Hann við­ur­kenndi að ekki hefði verið staðið nægi­lega vel að sam­þykkt borg­ar­stjórnar í síð­ustu viku. 

Kl. 19:16

Skúli Helgason, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, ræddi um mik­il­vægi þess að barist sé fyrir mann­rétt­indum með ýmsum hætti. Borgin ætti ekki að láta sitt eftir liggja. Hann sagði virð­ing­ar­vert af Degi B. Sig­urðs­syni að hafa beðist afsök­unar á sam­þykkt borg­ar­innar. Fráleitt og fjar­stæðu­kennt væri að krefja borg­ar­stjóra um afsögn vegna til­lögu sem dregin hefði verið til baka. 

Kl. 19:08

Hjálmar Sveins­son, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, sak­aði Kjartan Magn­ús­son um að reyna að grafa undan far­sælum og vin­sælum borg­ar­stjóra. Þá sagði hann ræðu Kjartans ómál­efna­lega og óskýra og farið hefði verið úr einu í annað. Ræða Kjartans hafi haft „móð­ur­sýkis­legt yfir­bragð“. Kjartan svar­aði þessu, furð­aði sig á orðum Hjálmars og sagð­ist aldrei sjálfur hafa við­haft slík ummæli um þá sem eru honum ósam­mála í póli­tík. 

Kl. 19:05

Kjartan Magn­ús­son, borg­ar­full­trúi Reykja­vík­ur­borgar, kallar eftir því að lög­fræði­á­lit borg­ar­innar á sam­þykkt borg­ar­stjórnar um að snið­ganga ísra­elskar vörur verði gert opin­bert. Hann segir að erfitt sé að meta þann skaða sem ákvörð­unin hafi valdið. Þá veltir Kjartan því fyrir sér hvort umræða und­an­farna daga hafi ef til vill skaðað umræð­una um mann­rétt­indi á Íslandi. Umræðan hafi harðnað og orðið ómál­efna­legri og með sam­þykkt borg­ar­innar hafi gyð­inga­hatur fengið frjóan far­veg.

Kl. 18:53

Magnús Már Guð­munds­son, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Svein­björgu Birnu hvort hún styddi að mann­rétt­inda­sjón­ar­miðum væri fylgt í inn­kaupa­stefnu borg­ar­innar og hvort hún styddi Palest­ínu sem sjálf­stætt og full­valda ríki. Svein­björg svar­aði fyrri spurn­ing­unni ját­andi en vildi ekki svara þeirri síð­ari. „Ég ætla aftur á móti ekki að fara út í það að láta stilla mér hérna upp við vegg að láta mig svara ein­hverjum spurn­ingum sem mér finnst ekki eiga heima í borg­ar­stjórn­ar­sal,“ sagði hún.

Kl. 18:39

„Við ættum ekki að espa upp í okkur ein­hverja móð­ur­sýki varð­andi þetta,“ sagði Hjálmar Sveins­son borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í and­svari við ræðu Svein­bjargar Birnu Svein­björns­dóttur, odd­vita Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina. Benti hann á að lítið hefði verið fjallað um sam­þykkt Reykja­vík­ur­borgar ann­ars staðar en í íslenskum og ísra­elskum miðlum. Svein­björg segir mik­il­vægt að sann­reyna og meta tjónið sem hafi orðið og bæta þurfi það upp. 

Kl. 18:36

„Hvernig ætlar borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn að bregð­ast við efna­hags­legum afleið­ingum þessa flumbru­gangs?“ spyr Svein­björg. Hún seg­ist ætla að óska eftir umsögn borg­ar­lög­manns um mögu­lega skaða­bóta­skyldu vegna sam­þykkt­ar­innar um að snið­ganga vörur frá Ísrael. Áður hefur Júlíus Vífill, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, boðað að kallað verði eftir öllum gögnum um ákvörðun borg­ar­innar. 

Kl. 18:33

Svein­björg Birna gagn­rýnir Dag B. Egg­erts­son harð­lega en segir að hann hafi „klár­lega við­ur­kennt van­mátt sinn“ og sé „að því leyti maður að meiri“. Svein­björg les nú upp til­kynn­ingu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í heild sinni. Í þeirri til­lögu kom fram að ákvörðun borg­ar­stjórnar Reykja­víkur væri hvorki í sam­ræmi við íslensk lög né utan­rík­is­stefnu Íslands.

„Sveit­ar­stjórnir eru eins og önnur stjórn­völd bundin af lögum. Í því felst að Reykja­vík­ur­borg verður að haga stjórn­sýslu sinni í sam­ræmi lög og að ákvarð­anir hennar mega ekki fara í bága við þau, þ. á m. lög um opin­ber inn­kaup, þar sem óheim­ilt er að mis­muna fyr­ir­tækjum á grund­velli þjóð­ernis eða af öðrum sam­bæri­legum ástæðum,“ segir í til­kynn­ing­unni. Ekki er tekið fram að sam­kvæmt 15. gr. lag­anna njóta aðeins þau fyr­ir­tæki réttar sam­kvæmt lög­unum sem eru með stað­festu í ein­hverju ríkja Evrópska efna­hags­svæð­is­ins eða aðild­ar­ríkja stofn­samn­ings Frí­versl­un­ar­sam­taka Evrópu. 

Svein­björg Birna seg­ist ekki hissa á því að kallað sé eftir afsögn Dags, enda sé iðu­lega kallað eftir afsögnum þegar axar­sköft eru gerð.

Kl. 18:27

Lág­mörkun skað­ans felst í að draga til­lög­una til baka og ekki koma með nýja. Þetta segir Svein­björn í ræðu sinni. Hún segir að líkja megi mál­inu við það ef fiður úr fið­ur­kodda fýkur út um allan heim. Nú beri borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­anum að reyna að lág­marka tjónið. „Skaðinn er skeður og fréttir af til­lög­unni komnar út um allan heim,“ segir hún.

Kl. 18:25

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, odd­viti Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, segir óljóst að hvaða leyti ákvörð­unin um að snið­ganga ísra­elskar vörur varði hags­muni Reyk­vík­inga, þess hóps sem borg­ar­stjórn eigi að þjóna.

Kl. 18:20

Skúli Helgason, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Júlíus Vífil hvort hann gæti útskýrt í hverju sá mikli skaði fælist sem Ísland hefði orðið fyrir og hvert umfang skað­ans væri. Júlíus svar­aði meðal ann­ars á þá leið að skað­inn hefði komið skýrt fram í fréttum und­an­farna daga. Auk þess væri baga­legt fyrir Reyk­vík­inga að vera kall­aðir ras­istar. „Ég vil ekki láta kalla mig ras­ista,“ sagði Júlíus í svari sínu við spurn­ingu Skúla.

Kl. 18:10

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnir Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra og borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ann í Reykja­vík harð­lega á fundi sem nú stendur yfir í Ráð­hús­inu.

„Meiri­hluti borg­ar­stjórnar hefur skaðað hags­muni Íslands. Skaðinn er bæði fjár­hags­legur og ímynd­ar­legur. Orðspor okkar hefur beðið hnekki og það mun taka tíma að vinna það til baka,“ sagði Júlíus á fund­inum.

Þá sak­aði hann borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans um valda­græðgi og sagði málið orðið hið ótrú­leg­asta. „Þetta er eins og fram­halds­þáttur sem gæti heitið borg­ar­stjóra­vaktin en það eru bara allir sof­andi á þeirri vakt,“ sagði hann og bætti því við að fjöldi fólks hefði orðið fyrir fjár­hags­legum skaða. Líklega ætti ein­hver eftir að missa vinn­una vegna sam­þykktar Reykja­vík­ur­borgar um snið­göngu á ísra­elskum vörum.

„Ég tel að umboðs­maður Alþingis sé næsti vett­vangur þessa máls,“ sagði hann og full­yrti að aug­ljóst væri að ekki hefði verið farið að reglum um vand­aða stjórn­sýslu. Kallaði hann eftir afsögn Dags B. Egg­erts­sonar. Þá gagn­rýndi hann Árna Pál fyrir að hafa sagt í við­tali við vef­mið­il­inn The Electronic Intifada að haft yrði sam­ráð við palest­ínsk yfir­völd um næstu skref. Furðaði hann sig á því að Árni hefði rætt við „palest­ínskan áróð­ur­svef“ og lofað „sam­ráði við stjórn­völd í palest­ínu“. „Maður veltir fyrir sér á hvaða stað Sam­fylk­ingin er eig­in­lega komin,“ sagði Júlíus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meirihlutanum: „Borgarstjórnin er ekki sérlega vel mönnuð“
InnlentReykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meiri­hlut­anum: „Borg­ar­stjórnin er ekki sér­lega vel mönnuð“

Egill Helgason hefur litla trú á nýjum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­anum sem kynnt verður í dag. Fjöl­miðla­mað­ur­inn víð­lesni, Egill Helgason skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann óskar nýjum meiri­hluta í borg­inni vel­farn­aðar en seg­ist um leið ekki hafa mikla trú á henni. Segir hann að borg­ar­stjórnin sé ein­fald­lega ekki vel mönnum og að hæfi­leika­fólk lað­ist ekki að setu í borg­inni. Spáir hann...
Kryddpíurnar í borginni byrjaðar að skrifa sáttmála: „Þetta eru auðvitað bara lykiláhersluatriði“
InnlentReykjavíkurborg

Kryddp­í­urnar í borg­inni byrj­aðar að skrifa sátt­mála: „Þetta eru auð­vitað bara lyk­ilá­herslu­at­riði“

Oddviti Pírata í Reykja­vík­ur­borg, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, segir að meiri­hluta­við­ræður gangi vel á milli þeirra fimm stjór­mála­flokka sem rætt hafa saman und­an­farið en þær hafa haldið áfram í dag. Dóra segir að fundað hafi verið til 18 í dag en haldið verður áfram á morgun. Segist hún í sam­tali við RÚV vona að það dragi til tíð­inda á allra næstu...
Árshátíð borgarstjórnar kostaði Reykvíkinga tæpar tvær milljónir króna
InnlentReykjavíkurborg

Árshátíð borg­ar­stjórnar kost­aði Reyk­vík­inga tæpar tvær millj­ónir króna

Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn kost­aði borg­ar­búa rúm­lega 1,8 millj­ónir króna. Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur var haldin með pompi og prakt á Kjar­vals­stöðum þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá borg­inni voru 91 gestur á hátíð­inni. Borgaði hver um sig 9.500 krónur í aðgangs­eyri, jafnt makar sem aðrir gestir. Eft­ir­stand­andi kostn­aður vegna hátíð­ar­innar hljóð­aði upp á 1.806.301 króna...
Sanna útilokar ekki borgarstjórastólinn: „Bara eitt skref í einu“
InnlentReykjavíkurborg

Sanna úti­lokar ekki borg­ar­stjóra­stól­inn: „Bara eitt skref í einu“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir seg­ist taka eitt skref í einu en úti­loki ekki borg­ar­stjóra­stól­inn. Nú þegar Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri kom öllum að óvörum og sleit meiri­hluta­sam­starfi sínu í borg­ar­stjórn, eru ýmsar þreif­ingar í gangi meðal flokk­anna í borg­inni. Nokkuð ólík­legt verður að telj­ast að Fram­sókn­ar­flokkur Einars verði í næsta meiri­hluta, eftir að Inga Sæland lýsti því yfir að Flokkur fólks­ins hefði...
Glittir í aðgerðaráætlun varðandi heimilisleysi: „Borgin er í mikilli skuld í þessum málaflokki“
InnlentReykjavíkurborg

Glittir í aðgerð­ar­á­ætlun varð­andi heim­il­is­leysi: „Borgin er í mik­illi skuld í þessum mála­flokki“

Stefán Pálsson segir Reykja­vík­ur­borg í mik­illi skuld við heim­il­is­lausa en nú glitti í betri tíð í þeim mála­flokki. Sagn­fræð­ing­ur­inn og vara­borg­ar­full­trú­inn Stefán Pálsson segir að borg­ar­stjórn Reykja­víkur sé við það að sam­þykkja aðgerð­ar­á­ætlun í mál­efnum heim­il­is­lausra. Segir hann borg­ina vera í milli skuld við mála­flokk­inn en að gangi áætl­unin eftir verði staðan miklu betri í náinni fram­tíð. „Í borg­ar­stjórn erum...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár