RÚV biðst velvirðingar: Bjarni ekki stjórnarformaður

„Vegna rang­hermis í fréttum í tengslum við einka­hluta­fé­lag sem ann­ast skal umsýslu og fulln­ustu stöð­ug­leika­eigna, tekur fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið fram, að fjár­mála­ráð­herra gegnir ekki stjórn­ar­for­mennsku í félag­inu,“ segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

RÚV biðst velvirðingar: Bjarni ekki stjórnarformaður

Uppfært kl. 12:
Frétt RÚV í gær, þar sem fram kom að fjár­mála­ráð­herra hygð­ist sjálfur gegna stjórn­ar­for­mennsku í einka­hluta­fé­lagi sem sér um sölu rík­is­eigna, vakti mikla athygli. Stundin fjall­aði um málið í morgun og setti í sam­hengi við umræður og nefnd­ar­á­lit af þing­inu.

Nú hefur hins vegar fjár­mála­ráðu­neytið sent út frétta­til­kynn­ingu þar sem fram kemur að ekki standi til að ráð­herra verði stjórn­ar­for­maður. „Vegna rang­hermis í fréttum í tengslum við einka­hluta­fé­lag sem ann­ast skal umsýslu og fulln­ustu stöð­ug­leika­eigna, tekur fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið fram, að fjár­mála­ráð­herra gegnir ekki stjórn­ar­for­mennsku í félag­inu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Stundin ræddi við upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins sem sagði að aldrei hefði staðið til að Bjarni gegndi stjórn­ar­for­mennsku í félag­inu. Hefur RÚV beðist vel­virð­ingar á mis­tök­unum.

Upp­haf­lega frétt Stund­ar­innar má lesa hér að neðan:

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mun gegna stjórn­ar­for­mennsku í einka­hluta­fé­lagi sem ann­ast umsýslu, fulln­ustu og sölu rík­is­eigna sem til komnar eru af stöð­ug­leika­fram­lögum.

Þetta kemur fram í frétt RÚV þar sem jafn­framt segir að félagið verði stofnað á næstu dögum á grund­velli laga um breyt­ingu á lögum um Seðla­banka Íslands sem Alþingi sam­þykkti þann 17. mars síð­ast­lið­inn. 

Samkvæmt því laga­frum­varpi sem upp­haf­lega var lagt fram átti Seðla­bank­inn að stofna félagið og skipa stjórn þess. Jafn­framt var kveðið á um að stjórn­sýslu­lög giltu ekki um ákvarð­anir sem teknar væru af hálfu félags­ins. Frum­varpið tók hins vegar breyt­ingum í efna­hags- og við­skipta­nefnd. Í áliti nefnd­ar­meiri­hlut­ans frá 29. febr­úar kemur fram að „í sam­ráði við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið“ hafi „komið fram veiga­mikil rök fyrir því að félagið verði ekki á for­ræði Seðla­banka Íslands heldur heyri beint undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sem fer með eignir rík­is­sjóðs“. Var Seðla­bank­inn sam­mála þessu. Þá var klausa um að félagið væri und­an­þegið stjórn­sýslu­lögum fjar­lægð úr frum­varp­inu.

Ekki er að sjá að nefnd­ar­menn hafi gert ráð fyrir að ráð­herra yrði sjálfur stjórn­ar­for­maður félags­ins. Í álit­inu er raunar tekið fram að verk­efni félags­ins verði „leyst í hæfi­legri fjar­lægð frá ráðu­neyt­inu en ráð­herra skipi hins vegar í stjórn félags­ins“. Þessi skiln­ingur kom einnig fram þegar málið var rætt á þing­fundi 2. mars síð­ast­lið­inn. „Eins og ég segi tel ég þetta þó miklu betri leið, það er að stofnað sé sér­stakt félag sem ráð­herra skipi stjórn, hann hafi ekki aðkomu að ein­stökum ákvörð­unum en beri ábyrgð á að stofna félagið og skipa stjórn­ina,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. 

RÚV greindi hins vegar frá því í gær að félagið taki til starfa á allra næstu dögum og fjár­mála­ráð­herra verði sjálfur stjórn­ar­for­maður þess. Birgittu Jóns­dóttur, þing­konu Pírata, virð­ist brugðið. „Þetta líst mér engan vegin á og ljóst er að þær ónota­til­finn­ingar sem ég hef haft og ekki getað alveg skilið hvaðan koma varð­andi upp­gjör og afnám hafta hafi form­gerst og ljóst að þetta fyr­ir­komu­lag getur ekki gengið upp og má ekki ger­ast,“ skrif­aði hún á Facebook í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár