Sjáðu texta úr ritgerð sem átti að innihalda ritstuld

Stundin hefur undir höndum tvær BA-ritgerðir. Voru uppi ásakanir um að í annarri ritgerðinni væri ritstuldur úr hinni. Frétta­blaðið greinir frá því að málið hafi verið látið niður falla. Hér getur þú séð textana og borið þá saman.

Greint var frá því í Frétta­blaðinu í morgun að deildar­forseti Viðskipta­fræði­deildar Háskóla Íslands, Runólfur Smári Steinþórsson, hafi ákveðið að aðhafast ekki frekar vegna meints ritstulds innan deildarinnar. Málið kom upp á dögunum. Talið var að í BA-ritgerð frá árinu 2013 mætti finna ritstuld úr ritgerð frá árinu 2011. Ritgerðirnar fjölluðu báðar um markaðs­setningu íslenska hestsins á erlendri grundu. Sömuleiðis var leið­beinandinn í báðum tilvikum Þórður Sverrisson.

Samkvæmt heimildum Stundarinnar var málið látið niður falla þar sem ekki var litið á keimlíkar setningar sem hugverk höfundar fyrri ritgerðarinnar, þar sem hann var að vitna í erlendar rann­sóknir. „Meintur ritstuldur var ekki staðferstur með ótvíræðum hætti,“ sagði Runólfur í samtali við Frétta­blaðið.

Stundin hefur báðar ritgerðirnar undir höndum og birtir hér á eftir brot úr textanum sem kvartað var undan til Háskóla Íslands.

Verkfæri markaðsfræðinnar

Inngangur ritgerðarinnar sem var skrifuð árið 2011 hefst svona: „Eins og leið­beinandi þessarar ritgerðar benti höfundi á, má líta á markaðs­fræði sem verkfæra­kistu, kistu sem hefur að geyma ýmis tæki og tól sem nota má af kostgæfni, allt eftir því hvað hentar vörunni eða þjónustunni sem skal markaðs­setja.“

Í seinni ritgerðinni er þetta orðað svona: „Í þessari ritgerð er leitast við að að skoða hvort seljendur íslenska hestsins séu að nýta sér verkfæri markaðs­fræðinnar og hvað mætti betur fara í markaðs­setningu hestsins erlendis sem og hérlendis.“

„Óbeinar dreifileiðir“

Í kafla um dreifi­leiðir á íslenska hestinum segir í fyrri ritgerðinni: „Beinar dreifi­leiðir hafa þá kosti að fyrir­tækið hefur fullkomna stjórn á verði vörunnar og tengsl milli viðskipta­vina og fyrir­tækisins er meira. Aftur á móti geta óbeinar dreifi­leiðir aukið verðmæti vöru­merkisins  með því að gera vöruna aðgengilegri og dreift áhættu.“ Er þar vitnað í bókina Principles of Marketing frá árinu 1999.

Í seinni ritgerðinni er þetta textabrot að finna í kaflanum vettvangur: „Helstu kostir beinna dreifi­leiða er að fyrir­tækið hefur sjálft stjórn á verðlagi vöru og tenging milli fyrir­tækis og viðskipta­vina er meiri. Óbeinar dreifi­leiðir geta aftur á móti eflt verðmæti vöru­merkis með því að gera vöru aðgengi­lega og að dreifa áhættunni.“ Tilvitnunin er í sömu bók og áður, nema hvað notast við nýrri útgáfu frá árinu 2008.

Áþekkur texti

Örlítið neðar í sömu köflum má finna texta sem er keimlíkur í báðum ritgerðum, textinn er nánast orðrétt sá sami: „Dreifi­leið íslenska hestsins er bæði bein og óbein. Hún er bein vegna þess að útflutnings­aðilar eiga í nánum samskiptum við viðskipta­vininn, bæði fyrir og eftir að hesturinn er kominn til viðskipta­vinarins en þar sem Icelandair Cargo kemur vörunni til skila yfir hafið þá telst dreifi­leiðin einnig óbein,“ segir í fyrri ritgerðinni.

„Segja má að dreifi­leiðir íslenska hestsins séu bæði beinar og óbeinar þar sem útflutnings­aðilar eiga náin samskipti við viðskipta­vini, jafnt fyrir og eftir að hestur er kominn á áfanga­stað en óbeinar vegna þess að Icelandair Cargo kemur hestinum á áfanga­stað,“ segir í þeirri seinni.

Svipuð þýðing

Loks má finna áþekka upptalningu á eigin­leikum sem ákvarða vöru í báðum ritgerðum. Þegar textinn er skoðaður má telja líklegt að stuðst hafi verið við þýðingu í fyrri ritgerðinni þegar seinni ritgerðin var skrifuð, þótt ekki sé hægt að fullyrða það. Í heimilda­skrá seinni ritgerðarinnar er ekki vísað í fyrri ritgerðina. Í upptalningunni sem hér fer á eftir er í báðum tilvikum vitnað í fyrr­nefnda bók um markaðs­fræði.

Fyrri ritgerð:

„1. Eigin­leikar. Varan þarf að hafa ákveðna eigin­leika til þess að skapa ávinning.

2. Vörumerki (e. branding).  Vöru­merkið er notað til þess að aðgreina vöruna frá vöru samkeppnis­aðila og er verð­mætasta eign fyrir­tækis. Þegar vörumerki er búið til þarf að hafa í huga ýmis atriði. Atriði eins og hvert einkenni vöru­merkisins á að vera, fyrir hvað það skuli standa og hvort vöru­merkið kalli fram jákvæð viðbrögð í hugum neytenda.

3. Pakkningar. Pakkningar auka virði vörunnar með því að vernda inni­haldið. Aðlaðandi umbúðir hvetja einnig til kaupa.

4. Merkingar. Merkingar sýna innihald og aðrar mikil­vægar upplýsingar um vöruna.

5. Stuðningur. Með stuðningi er t.d. átt við eftir­þjónustu og viðgerðar­þjónustu.“

Seinni ritgerð:

„1. Eigin­leikar, en vara verður að skapa ávinning með ákveðnum eigin­leikum sínum.

2. Vörumerki er notað til þess að sundur­greina vöru fyrir­tækis frá þeirri vöru sem samkeppnis­aðilinn býður og er verð­mætasta eign fyrir­tækisins, atriði eins og hvert sérkenni vöru­merkis á að vera, hvort það kalli fram jákvæð viðbrögð í hugum neytenda, og fyrir hvað það skuli standa, eru atriði sem þarf að hafa í huga þegar vörumerki er búið til.

3. Pakkningar auka virði vöru með því að varðveita innhaldið.

4. Merkingar sem sýna innhald og þær upplýsingar um vöruna sem taldar eru mikil­vægar.

5. Stuðningur, en þá er átt við eftir­þjónustu og viðgerðir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár