Andleg efling kvenna

Ein af þeim konum sem hefur verið hvað mest áber­andi í vald­efl­ingu kvenna á með­göngu og í fæð­ingu er Auður Bjarna­dóttir, dans­ari og jóga­kenn­ari. Auður hefur staðið fyrir nám­skeiðum í með­göngu­jóga í mörg ár, og deilir þar meðal ann­ars reynslu sinni af því að fæða á óhefð­bundnum stöðum, án deyf­ingar, með hjálp jóga­tækn­innar.

Andleg efling kvenna

Auður: „Ég átti fyrsta barnið mitt hefð­bundið, á Land­spít­al­anum, það eru 28 ár síðan. Stelpuna mína, fyrir 25 árum, átti ég á elli­heim­il­inu á Horna­firði. Ég ákvað að treysta bara þess­ari flottu ljós­móður sem var þar, í stað þess að fara að bruna í bæinn. Ég átti þá inni á stofu, og lá sæng­ur­leg­una í kjall­ar­anum á elli­heim­il­inu á Höfn í Horna­firði. 

Svo var ég í Banda­ríkj­unum, bjó í Seattle og búin með jóga­nám þar, og hafði verið í algjör­lega frá­bæru með­göngu­jóga. Þar fæ ég nýja menntun, og alveg nýja sýn á fæð­ing­ar­fræðin. Því þótt ég hafi treyst mér til að eiga á elli­heim­il­inu á Horna­firði, og ekk­ert þurft nema hljóð­pípu, þá var ég ekki búin að fá þessa fæð­ing­ar­fræðslu. Þannig að ég ligg bara á bak­inu, með lapp­irnar upp í loft eins og hentar lækn­inum.“ 

Andaði barninu í heiminn

„Ég þurfti fæð­inga­fræðsl­una. Að heyra að það hjálp­aði að fara á fjóra fætur, og standa, og vera í vatni, að lík­am­inn þurfi að fá að ráða sjálfur. Ég bjó í teppa­lagðri stúd­enta­í­búð þarna úti, sem mig lang­aði ekki að fæða í, en ég fékk dásam­legt fæð­ing­ar­heim­ili, þannig að það var soldið eins og heima­fæð­ing. Stofa, með potti, í algjörri sælu. 

Þar átti ég þessa upp­lifun af jóga­fæð­ingu, að anda barn­inu í heim­inn. Ég bók­staf­lega and­aði honum í heim­inn. Þá skildi ég þetta: Mín fæð­ing, þetta er mín fæð­ing! Á ensku er sagt „when a woman owns her birth she owns her 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár