Héldu dreng inn í fölskum vegg í fjögur ár

Þrettán ára gamall drengur, sem hafði verið saknað í fjögur ár, fannst inn í fölskum vegg á heimili föður síns og stjúpmóður í Atlanta í gær. Frétta­stofa CNBC greindi frá málinu.

Lögreglu­menn björguðu honum úr skelfi­legum aðstæðum, eftir að hafa fylgt vísbendingum um að drengurinn væri á heimilinu. Eftir nokkra leit fannst hann inn í fölskum vegg, illa á sig kominn.

Á blaðamanna­fundi sem lögreglan í Clayton sýslu í útjaðri Atlanta hélt í gær, kom fram að fimm einstaklingar, tveir full­orðnir og þrír unglingar, væru í haldi vegna málsins og hefðu verið ákærðir, meðal annars fyrir grimmdar­verk gagnvart börnum. Þar á meðal er faðir drengsins og stjúpmóðir.

Faðir drengsins neitaði að leyfa drengnum að fara aftur til móður sinnar árið 2010, og hefur frá þeim tíma verið saknað og ekkert til hans spurst. Lögreglan efldi rannsókn á hvarfi drengsins fyrir nokkrum mánuðum síðan eftir að vísbendingar bárust móður hans um að hann væri á lífi.

Á meðfylgjandi myndbandi, frá blaðamanna­fundi lögreglu í Clayton sýslu, sést drengurinn hitta móður sína og nána ættingja eftir fjögurra ára aðskilnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár