Strandveiðipar kærir barnaverndartilkynningu

Par sem var tilkynnt fyrir brot á barna­verndar­lögum, án þess að málið næði lengra, hefur kært kennara og sálfræðing fyrir að tilkynna þau til barna­verndar án þess að hafa athugað málið.

Strandveiðar
Strand­veiðar For­eldrar sem stund­uðu strand­veiðar fyrir vestan þurftu að verj­ast til­kynn­ingum um van­rækslu. Myndin teng­ist efni frétt­ar­innar ekki með beinum hætti. Mynd: Shutterstock

Sambúðar­fólk sem stundaði saman sjómennsku á smábáti út frá Vestfjörðum síðasta sumar var tilkynnt til barna­verndar, vænt um vanrækslu, vegna þess að börnin væru of lengi ein heima og án fullnægjandi matvæla þegar foreldrarnir væru í dagróðrum.

Barna­vernd á norðan­verðum Vestfjörðum lokaði málinu formlega eftir að faðirinn gat efnislega hrakið megin­hluta ásakana um vanrækslu. Málinu er hins vegar ekki lokið af þeirra hálfu. Þau hafa kært tilkynnendurna, tvær konur, á þeim grund­velli að þær hafi sem fagaðilar ekki kynnt sér málið áður en þær tilkynntu sex sinnum til barna­verndar 10. og 11. júlí. Konurnar starfa sem kennari og sálfræðingur annars staðar, án þess að umgangast börnin, og telur parið að þau hafi ríkari skyldur og hlotið meiri hljóm­grunn vegna stöðu sinnar – án þess þó að hafa næga þekkingu á aðstæðum barnanna.

Sögðu börnin ein og borða snakk og serios

Parið hafði nýlega sameinað fjöl­skyldur sínar, hvort …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár