Nýr seðlabankastjóri mættur og gefur vísbendingar um næstu skref

Ásgeir Jónsson, fyrr­verandi forstöðu­maður greiningar­deildar Kaupþings og forseti hagfræði­deildar Háskóla Íslands, tók við sem Seðla­bankastjóri í morgun.

Nýr bankastjóri
Nýr banka­stjóri Már Guð­munds­son ræðir við arf­taka sinn, Ásgeir Jónsson. Hér ásamt Rann­veigu Sig­urð­ar­dóttur aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra. Mynd: Pressphotos

Nýr seðla­bankastjóri tók formlega við störfum í morgun eftir að Már Guðmundsson lauk tíu ára starfs­tímabili sínu. 

„Blessaður seðla­bankastjóri og velkominn,“ sagði Már við Ásgeir Jónsson, arftaka sinn í morgun. „Sælir,“ svaraði Ásgeir, áður en hann heilsaði aðstoðar­seðla­bankastjóra, Rannveigu Sigurðar­dóttur.

Már og Ásgeir grínuðust með að nú þyrfti nýr seðla­bankastjóri að ná að lyfta gullforða ríkisins, ellegar hverfa frá. Gull­forðinn er hins vegar geymdur erlendis, eða í Lundúnum, og vegur um tvö tonn.

„Þetta er eiginlega eina starfið sem hefði geta dregið mig út úr háskólanum,“ sagði Ásgeir síðar við frétta­menn.

Starf seðla­bankastjóra hefur verið storma­samt. Þegar Már tók við sem seðla­bankastjóri 20. ágúst árið 2009 voru megin­vextir seðla­bankans 9,5 prósent og höfðu staðið í 18 prósentum fimm mánuðum fyrr. Nú eru þeir aðeins 3,75 prósent.

Ásgeir JónssonNýr seðla­banka­stjóri í morgun.

Ásgeir Jónsson hefur undan­farin ár verið þekktur sem forseti hagfræði­deildar Háskóla Íslands, en áður var hann meðal annars aðal­hagfræðingur Kaupþings og forstöðu­maður greiningar­deildar Kaupþings í aðdrag­anda efnahags­hrunsins. 

Tveir þingmenn Pírata hafa meðal annarra gagnrýnt skipan Ásgeir á þeim grund­velli að hann hafi verið lykil­maður og klapp­stýra Kaupþings banka í starfseminni fyrir efnahags­hrunið. Ásgeir gagnrýndi meðal annars gagn­rýnendur bankanna fyrir „hysteríu“ árið 2008, nokkru áður en bankarnir féllu.

Seðla­bankastjóri er skipaður til fimm ára, að hámarki til tíu ára. Í núgildandi lögum er gerð sú krafa að hann sé menntaður í hagfræði eða tengdum greinum. Ásgeir skrifaði doktors um sveiflu­jöfnun yfir skamman tíma í litlu, opnu hagkerfi. Hann lauk doktors­prófi frá Indiana University í Banda­ríkjunum með alþjóða­fjármál, peningamála­hagfræði og hagsögu sem aðalsvið.

Forveri Más Guðmunds­sonar í starfi var Svein Harald Øygard, sem skipaður var til bráða­birgða í febrúar 2009 eftir að Jóhanna Sigurðar­dóttir, þá forsætis­ráðherra, sendi Davíð Oddssyni seðla­bankastjóra í reynd uppsagnar­bréf, þar sem hún kynnti laga­breytingu sem myndi leggja niður stöðu hans. Davíð er lögfræði­menntaður og fyrr­verandi forsætis­ráðherra til þrettán ára.

„Ég varð um tíma að halda símtólinu vel frá mér, svo æstur var hann,“ sagði Jóhanna um síðasta samtal hennar og Davíðs, í bók hennar Minn tími.

Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra og formaður Vinstri grænna, skipaði Ásgeir í kjölfar þess að hann var metinn­meðal þeirra hæfustu af hæfis­nefnd. Ásgeir er sonur fyrr­verandi ráðherra Vinstri grænna, Jóns Bjarna­sonar, en Jón yfirgaf flokkinn á sínum tíma.

„Við erum svolítið eins og hálf­gerður klúbbur“

Ásgeir tekur við ágætu búi í sögulegu samhengi. Skuldir ríkisins eru í lágmarki, verðbólga er 3,1 prósent og stýri­vextir sögulega lágir. Næsti vaxta­ákvörðunar­dagur er miðvikudagurinn 28. ágúst næst­komandi.

Í samtali við Stöð 2 sagði Ásgeir að stýri­vaxta­lækkanir „gætu hæglega haldið áfram“ vegna fækkunar ferða­manna. „Við erum líka að sjá kjara­samninga sem ég tel að stuðli að stöðug­leika í landinu og allt þetta undir­byggir frekari stýri­vaxta­lækkanir. En þetta veltur dálítið á því hvernig hagkerfið þróast. Ísland er svo lítið land og við erum svolítið eins og hálf­gerður klúbbur þannig að hagkerfið er mjög fljótt að snúast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár