Nóbelsverðlaun í hagfræði: Sýndi að hækkun lágmarkslauna fækkaði ekki störfum

Þrír hagfræðingar fá nóbels­verðlaunin í ár fyrir að þróa tilraunir í hagfræði, ekki síst á sviði kjara­rannsókna. Niður­stöður einnar rann­sóknarinnar gekk gegn hefð­bundnum kenningum um að hækkun lágmarks­launa myndi valda atvinnu­leysi.

Verðlaunahafar nóbelsverðlauna í hagfræði
Verð­launa­hafar nóbels­verð­launa í hag­fræði David Card hjá Berkeley-háskóla, Joshua D. Angrist hjá MIT og Guido W. Imbens hjá Stanford hafa verið sæmdir nóbels­verð­launum í hag­fræði fyrir rann­sóknir á til­raunum í raun­að­stæðum. Mynd: AFP / Claudio BRESCIANI

Handhafar nóbels­verð­launanna í hagfræði 2021 eru þrír hagfræðingar sem hafa verið leiðandi í því að leiða hagfræði­legan sannleika úr raun­aðstæðum, eða í reynd hagfræði­legum tilraunum þegar tekin er ákvörðun um að breyta aðstæðum á einum stað en ekki öðrum.

Sænska nóbels­nefndin tilkynnti um val sitt rétt í þessu. Hagfræðingarnir, David Card, Johshua D. Angrist og Guido W. Imbens, starfa allir við bandaríska háskóla, en Imbens er fæddur í Hollandi og Angrist í Kanada. Þeir eru allir vinir, en fá verð­launin fyrir framlag í sitt hvoru lagi á svipuðu sviði.

Hærri lágmarkslaun þýddu ekki meira atvinnuleysi

Meðal þekktra niður­staðna af rann­sóknum þremenninganna er  samanburðar­rannsókn á hagrænum áhrifum þess að hækka lágmarks­laun. Samkvæmt hagfræði­kenningum sem kenna mætti við frjáls­hyggju hefur skaðleg áhrif fyrir launafólk að hækka lágmarks­laun, meðal annars vegna þess að launa­hækkunin leiði til aukins kostnaðar fyrir fyrirtæki, sem aftur segi upp starfs­fólki og þar með aukist atvinnu­leysi, með neikvæðri heildar­niðurstöðu. Rannsókn Davids Card sýndi fram á að þessi „viðtekna hugmynd“ væri röng, þegar hann rann­sakaði raun­aðstæður við það að eitt ríki, New Jersey, hækkaði lágmarks­laun úr 4,25 dollurum í 5,05 dollara, á meðan annað ríki, Pennsylvania, gerði það ekki. Rannsókn Cards í samstarfi við hagfræðinginn Alan Krueger snerist um að kanna starfs­aðstæður og starfs­hlutfall starfs­fólks í 400 skyndibita­stöðum í ríkjunum tveimur.

Niður­stöðurnar tengjast einu helsta þema þjóðfélags­umræðu á Íslandi, eins og í mörgum öðrum samfélögum, sem snýst um áhrif þess að hækka lægstu laun. Þannig varaði formaður Samtaka atvinnu­lífsins við því í fyrra að launa­hækkanir í því árferði sem þá var, myndu auka atvinnu­leysi. Á Íslandi hefur kjarni umræðunnar þó snúist um að launa­hækkanir geti aukið verðbólgu, þegar launþegar auka eftir­spurn eftir vörum og þær hækka í verði fyrir vikið.

Lykilspurningar um orsakasamhengi

Kjarninn í framlagi Angrist og Imbens snýr að því að sundur­greina orsaka­tengsl frá tilfall­andi þróun þegar inngrip verða í hagkerfinu. Áskorun hagfræðinga er meiri en annarra vísinda­manna, þar sem þeir geta ekki haft stjórn á öllum breytum líkt og tilrauna­aðferðin kallar á.

„Rann­sóknir þeirra hafa bætt umtals­vert getu okkar til þess að svara lykil­spurningum um orsaka­samhengi, sem hefur orðið til mikilla hagsbóta fyrir samfélagið,“ segir í umsögn nóbels­nefndarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár