Þrír oddvitar minnihlutans vilja afsögn Dags

Enginn af sam­starfs­flokkum Sam­fylk­ing­ar­innar í borg­ar­stjórn hefur kraf­ist afsagnar borg­ar­stjóra vegna bragga­máls­ins en Píratar munu funda um afstöðu sína í jan­úar.

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna, Kolbrún Bald­urs­dóttir, odd­viti Flokks fólks­ins og Vigdís Hauks­dóttir, odd­viti Mið­flokks­ins, hafa öll farið fram á afsögn Dags B. Egg­erts­sonar, borg­ar­stjór­ans í Reykja­vík, vegna bragga­máls­ins svo­kall­aða. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar kemur einnig fram að odd­viti þriðja flokks­ins sem myndar minni­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir frá Sós­í­alista­flokki Íslands, seg­ist hafa orðið orð­laus við lesn­ingu skýrsl­unnar en fer ekki fram á afsögn borg­ar­stjóra. Hildur Björns­dóttir, sem er annar maður á lista Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík, hefur ekki farið fram á afsögn líkt og odd­viti flokks hennar. Hún hefur hins vegar sagt að ef Dagur segi sig ekki úr rýni­hóp sem hann, hún og Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar, skipa, og á að skoða skýrslu innri end­ur­skoð­unar nánar muni Hildur sjálf víkja úr þeim hópi.

Enginn odd­viti þeirra flokka sem mynda meiri­hluta Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Við­reisnar og Pírata í borg­ar­stjórn hefur farið fram á að borg­ar­stjóri víki vegna máls­ins. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata, segir við Morg­un­blaðið að Dagur njóti stuðn­ings þangað til að annað kemur í ljós. End­an­lega ákvörðun um stuðn­ing verði tekin eftir að fundað verði með gras­rót flokks­ins í jan­úar.

Sjálfur hefur Dagur sagt á und­an­förnum dögum að hann ætli ekki að segja af sér vegna máls­ins. Það er afstaða sem hann hefur haft nær allan tím­ann síðan að málið kom upp en hann ræddi það meðal ann­ars í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í lok októ­ber. Stiklu úr þætt­inum má sjá hér að neðan.

Kostn­aður við fram­kvæmdir við end­ur­gerð bragg­ans við Naut­hóls­veg fór yfir 400 millj­ónum króna en upp­haf­lega var gert ráð fyrir að hann yrði 158 millj­ónir.

Hæsti reikn­ing­­ur­inn við fram­­kvæmd­irn­ar hljóð­aði upp á 105 millj­­ón­ir króna og gras­strá sem gróð­ur­­­sett voru í kring­um bygg­ing­una kost­uðu 757 þús­und krón­­ur. Fram­kvæmdum er enn ólokið en tölu­verð vinna er eft­ir í við­bygg­ing­unni, þar sem til stend­ur að opna frum­kvöðla­setur.

Skýrsla innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar um kostnað vegna verk­efn­is­ins var birt í lok síð­ustu viku. Nið­ur­stöður hennar benda ein­dregið til þess að kostn­að­ar­eft­ir­liti hafi verið ábóta­vant og hlítni við lög, inn­kaupa­reglur, starfs­lýs­ingar, verk­ferla, ábyrgð og for­svar hafi ekki verið nægj­an­leg. Þar kemur skýrt fram að meg­in­sök á fram­úr­keyrsl­unni hafi legið hjá skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­unar og fyrr­ver­andi yfir­manni hennar, Hrólfi Jónssyni. Í skýrsl­unni segir hins vegar einnig: „Sam­kvæmt skipu­riti er borg­ar­rit­ari næsti yfir­maður skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­unar en þó hafa mál skrif­stof­unnar ekki verið á hans borði heldur farið beint til borg­ar­stjóra og því hefur ekki verið unnið sam­kvæmt réttri umboðskeðju. Mikil sam­skipti hafa verið milli fyrrum skrif­stofu­stjóra og borg­ar­stjóra allt frá stofnun skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­un­ar, en þeim ber saman um að borg­ar­stjóra hafi ekki verið kunn­ugt um fram­vindu fram­kvæmda að Naut­hóls­vegi 100. Engar skrif­legar heim­ildir liggja fyrir um upp­lýs­inga­gjöf frá skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­unar til borg­ar­stjóra varð­andi fram­kvæmd­irn­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár