60 prósent landsmanna á móti frekari stóriðju

Könnun Félags­vísinda­stofnunar Háskóla Íslands sýnir að skiptar skoðanir eru meðal lands­manna til orku­nýtingar og verndunar.

Í skoðana­könnun Félags­vísinda­stofnunar Háskóla Íslands, sem unnin var fyrir verkefnis­stjórn 3. áfanga verndar- og orku­nýtingar­áætlunar, á landsvísu kemur fram að 60 prósent lands­manna eru andvíg því að virkja til að auka stóriðju á Íslandi en 15 prósent eru því fylgjandi.

Þá er 51 prósent lands­manna andvíg því að virkja og selja raforku til Evrópu um sæstreng, en 25 prósent eru því fylgjandi. Mun meira fylgi er hins vegar við að virkja til að efla aðra atvinnu­starfsemi en stóriðju á Íslandi (74 prósent) og til að rafvæða bílaflota og almennings­samgöngur í landinu (81 prósent)

Þetta kemur fram í drögum að loka­skýrslu verkefnis­stjórnunarinnar, sem birt var í dag.

Þegar spurt var í könnuninni á landsvísu hve sammála eða ósammála fólk sé því að gera eigi miðhálendið að þjóðgarði (sem er friðaður m.a. fyrir virkjunum) segjast 55% vera því sammála, (þar af 33% mjög sammála), en 23% eru ósammála. Jafnstór hópur tók ekki afstöðu. Marktækur munur var á viðhorfi karla og kvenna, þar sem yfir 60 prósent kvenna voru sammála á meðan 48 prósent karla voru sammála því að gera miðhálendið að þjóðgarði. Á milli 51-59 prósent í öllum aldurs­hópum voru sammála, en misjafnt hversu hátt hlutfall var ósammála eftir aldurs­hópum (mest andstaða hjá 60 ára og eldri og 30-44 ára, um fjórðungur í báðum hópum).

Samkvæmt þeirri tíma­áætlun sem verkefnis­stjórn 3. áfanga ramma­áætlunar vinnur eftir mun verkefnis­stjórnin skila tillögu sinni til ráðherra hinn 1. september 2016, að því er segir í inngangi draganna. „Sú skýrsla sem hér lítur dagsins ljós hefur að geyma fyrstu drög að þessari tillögu, eða með öðrum orðum „drög að tillögum um flokkun virkjunar­kosta og afmörkun virkjunar- og verndar­svæða í samræmi við flokkunina“, eins og það er orðað í 3. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011. Þessi drög verða kynnt almenningi á kynningar­fundum víða um land í apríl 2016, auk þess sem leitað verður umsagna um þau hjá viðeigandi stofnunum, stjórn­völdum ríkis og sveitar­félaga, félaga­samtökum og hagsmuna­aðilum.

Ætlunin er að þessu ferli verði lokið 20. apríl 2016. Að loknum kynningum og samráði samkvæmt framan­skráðu mun verkefnis­stjórn ganga frá tillögum sínum að verndar- og orku­nýtingar­áætlun og auglýsa þær með opinberum hætti. Í því ferli gefst öllum kostur á að koma athuga­semdum á framfæri innan ákveðins frests. Þetta umsagnar­ferli hefst 11. maí 2016 og stendur í 12 vikur til og með 3. ágúst sama ár. Eftir það mun verkefnis­stjórn ganga frá endanlegum tillögum sínum til ráðherra og afhenda þær 1. september eins og fram hefur komið,“ segir Stefán Gíslason, formaður verkefnis­stjórnarinnar.

Hér að neðan má sjá hvernig einstök svæði falla í flokka, eftir nýtingar-, bið-, og verndar­flokki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár