Hafa brotið gegn dönskum lögum í 103 ár

Það er stundum sagt að á skjal­söfnum ríki friður og ró og tíminn líði þar jafnvel hægar en annars staðar. Margir danskir kráar­eigendur geta kannski tekið undir þetta eftir að þeim barst fyrir nokkru bréf frá danska ríkis­skjala­safninu. Í bréfinu stóð að síðan árið 1912 hefðu kráar­eigendurnir brotið dönsk lög. Kórónu­lögin. Og nú gengi það ekki lengur. „Niður með kórónurnar“ sagði ríkis­skjala­safnið.

Máttu baka brauð, eima og brugga bjór og með leyfi konungs


Á þrett­ándu, fjórt­ándu og fimmt­ándu öld fengu margar krár í Danmörku sér­stakt kon­ung­legt leyfi til að baka brauð, eima áfengi og brugga bjór ásamt því að bjóða uppá gist­ingu. Þessar krár stóðu yfir­leitt við helstu vegi í land­inu og til­gang­ur­inn var að tryggja að ferða­langar gætu fengið gist­ingu og mat á ferðum sínum.

Reglur um starf­semi veit­inga-og gisti­staða eru gjör­breyttar frá því sem áður var en hinir kon­ung­legu krá­ar­eig­endur hafa haldið fast í notkun kór­ón­unnar gegnum árin. Enginn hefur amast við þessu fyrr en nú.

Kráar­eigendur, sem fengu þessi konunglegu leyfi, máttu auglýsa utandyra og innan að kráin hefði áðurnefnd konungleg forréttindi og auk þess máttu þeir líka láta gera kórónu­eftir­líkingar og hengja upp utandyra. Margir létu líka prenta kórónu ásamt nafni kráarinnar á servíettur, bréfsefni, bjórglös, diska og jafnvel hnífapör. Áður fyrr var það talinn ákveðinn gæða­stimpill að skarta slíku konunglegu leyfi, þá var ekki búið að finna upp stjörnu­gjöf í dagblöðum og franski hjóla­barða­fram­leiðandinn Michelin ekki orðinn yfir­dómari í matargerðar­listinni. Reglur um starfsemi veitinga-og gististaða eru gjör­breyttar frá því sem áður var en hinir konunglegu kráar­eigendur hafa haldið fast í notkun kórónunnar gegnum árin. Enginn hefur amast við þessu fyrr en nú.

Röggsami deildarstjórinn skrifar bréf


Fyrir rúmum þremur árum kom til starfa nýr deild­ar­stjóri á danska rík­is­skjala­safn­inu. Rögg­samur maður sem rak fljót­lega augun í að árið 1912 hefðu verið sett lög sem bönn­uðu, öðrum en útvöldum, að skreyta sig með „kongekronen“ og að þeim sem not­uðu slíkar skreyt­ingar bæri að fjar­lægja þær. Sá rögg­sami sá engin merki þess að reynt hefði verið að fram­fylgja lög­unum og ákvað að nú yrði þar breyt­ing á.

Hann komst fljótlega yfir lista yfir þær krár sem fengið höfðu kórónu­leyfið, þær reyndust flestar enn við lýði og fengu seint á árinu 2013 bréf frá ríkis­skjala­safninu þar sem þeim var bent á þetta lang­varandi lögbrot sem nú yrði ekki umborið lengur. „Niður með kórónurnar nú þegar“ sagði í bréfi deildar­stjórans. Hann benti jafnframt á að kránum væri heimilt að skreyta sig með svokallaðri opinni kórónu.

Samkvæmt dönskum lögum er óheimilt að nota svokallaðar „lokaðar“ kórónur til markaðs­setningar. Myndin hér að ofan er dæmi um slíka kórónu.

Korona
Korona

 

Héldu að bréfið væri grín


Þegar krá­ar­eig­endur fengu bréfið frá rík­is­skjala­safn­inu haustið 2013 héldu margir þeirra að þetta væri grín eða að það hefði verið sent fyrir mis­skiln­ing. Þeir komust hins vegar fljót­lega að því að á skjala­safn­inu voru menn ekki að spauga því annað bréf fylgdi fljót­lega í kjöl­farið. Þar var erindið ítrekað og óskað svara við því hvenær við­kom­andi hygð­ist fjar­lægja kór­ón­urnar. Ef ekki yrði brugð­ist við erind­inu myndi rík­is­skjala­safnið grípa til aðgerða.

Í bréfinu frá safninu kom fram að fjöl­skylda drottningar hefði farið fram á að kórónurnar yrðu fjar­lægðar. Kráar­eigendur eru ekki trúaðir á það og segjast vissir um að þetta sé einka­framtak hins röggsama deildar­stjóra. Síðastliðið haust kom svo enn eitt bréfið frá deildar­stjóranum og gefinn frestur til áramóta, ella yrði gripið til „viðeigandi ráðstafana“ án þess að það væri nánar útskýrt.

Kráareigendur ætla að flýta sér hægt, mjög hægt


Einn krá­ar­eig­andi svar­aði strax og sagði að kór­ón­urnar á sínu húsi hefðu verið settar upp árið 1682 og þær yrðu ekki fjar­lægðar. Annar sagði að nú tæki hann sér eina öld í að hugsa málið, það væri jafn langur tími og rík­is­skjala­safnið hefði þurft til að koma skip­un­unum til krá­ar­eig­end­anna. „Ég leigi ekki stiga á morgun.“

Sá þriðji sagði að þótt herinn kæmi á skrið­drekum og orustu­þotum dytti sér ekki í hug að fjarlægja kórónurnar. Margir aðrir kráar­eigendur hafa talað á svipuðum nótum og enginn sem hefur tjáð sig ætlar að hlíta fyrir­mælum ríkis­skjala­safnsins.

Margir þingmenn hafa tjáð sig um kórónu­málið. Þeir eru allir undrandi á framgöngu ríkis­skjala­safnsins og hafa sagt að þetta virðulega og mikilvæga safn hljóti að hafa brýnni verkefnum að sinna, hvað svo sem lögin segi. Auk þess leiki vafi á hvort safninu sé stætt á þessari kröfu sem aldrei fyrr hafi verið sett fram, þarna hafi einfald­lega skapast hefðar­réttur. Einn þingmaður benti líka á að flestar þessara kráa væru friðaðar og það bryti í bága við lög að breyta þar nokkru. „Ætlar ríkis­skjala­safnið að brjóta lög til að fram­fylgja öðrum lögum?“ spurði þessi þingmaður.

Óljóst um framhaldið


Á þess­ari stundu veit eng­inn hvert fram­haldið verður. Danskir fjöl­miðlar fylgj­ast grannt með og glöggt má sjá að þeir skemmta sér vel yfir fram­göngu deild­ar­stjór­ans hjá rík­is­skjalsafn­inu. Fjöl­miðl­arnir hafa líka velt því fyrir sér hvort rík­is­skjala­safnið sé ein­hvers konar yfir­vald sem vald til að skipa fyrir um skilti og merk­ingar. „Ef safnið telur að lög hafi verið brotin hlýtur að að þurfa að kæra málið,“ sagði einn þing­maður „það kallar á flókin mála­ferli og hver hefur áhuga fyrir því.“ „Starfs­menn rík­is­skjalsafns­ins geta skrifað eins og þeim sýn­ist en þeim væri kannski nær að reyna að sjá til þess að verð­mæt skjöl hverfi ekki úr safn­inu“ (Þarna vísar þing­mað­ur­inn til þess að nýlega kom í ljós að hund­ruð verð­mætra skjala finn­ast ekki í safn­inu og talið að þeim hafi verið stolið).

Blaða­maður Jótlands­póstsins mælti sennilega fyrir munn margra Dana þegar hann dró saman kjarna málsins í tveimur orðum: „Typisk papirnusseri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár