Sævar Poetrix svarar Jóhannesi Hauki fullum hálsi: „Ég kem frá einstaklega veikri fjölskyldu“

Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson og Sævar Poetrix rappari deila á Facebook. Sævar skrifar langt bréf til Jóhannesar þar sem hann lýsir lífs­hlaupi sínu eftir að Jóhannes Haukur gagnrýndi það sem hann kallar væl.

Rappari
Rappari Sævar Poetrix svarar Jóhann­esi Hauki fullum hálsi.

Rapparinn Sævar Poetrix ætlar ekki að mæta fyrir dómstóla vegna ákæru gegn honum vegna vörslu kannabis. Eftir að Vísir greindi frá þessu fyrr í dag brást leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson við með því að segja á Facebook-síðu sinni að hann væri orðin þreyttur á væli „hasshausa“. DV birti síðan frétt þar sem vísað var í ummæli Jóhannesar Hauks. Sævar hefur nú svarað Jóhannesi Hauki, með langri færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir ummælin og fjallar um sína persónu­lega hagi. 

Hlustar ekki á svona væl 

„Um leið og ég sé hóp af hass­reykinga­mönnum sem eru pródúktívir einstaklingar sem leggja eitthvað til samfélagsins og gera eitthvað af viti, þó það sé ekki nema að sinna einhverju starfi af svo mikið sem örlitlum metnaði, þá er ég til í að fara að hlusta á svona málflutning. Þangað til það gerist, hlusta ég ekki á svona væl. ‪#‎TellingItLikeItIs,“ skrifaði Jóhannes Haukur fyrr í dag og tengdi á frétt Vísis.

Margir gagnrýndu þessa skoðun og má þar helst nefna Mikael Torfason, rithöfund og fyrrum ritstjóra, sem segir starfs­bræður Jóhannesar í Banda­ríkjunum skila sínu þrátt fyrir neyslu.

„Þangað til það gerist, hlusta ég ekki á svona væl“

 

Um leið og ég sé hóp af hass­reyk­inga­mönnum sem eru pródúk­tí­vir ein­stak­lingar sem leggja eitt­hvað til sam­fé­lags­ins og...

Posted by Jóhannes Haukur Jóhann­es­son on Wednesday, May 27, 2015

„Ég hef átt stórbrotna ævi“

Neðar í þræðinum er færsla frá Sævari þar sem hann lýsir fjölskyldu­högum sínum fyrir Jóhannesi. „Sævar heiti ég og langaði að kynna mig. Ég hef átt stór­brotna ævi. Ég kem frá einstak­lega veikri fjöl­skyldu sem glímdi við alkóhólisma, geðsjúk­dóma, tryllingslegt ofbeldi og trúarbragða­ofstæki. Ég las 15.000 bækur frá sjö ára aldri til fimmtán ára. Þá flutti ég að heiman til að spreyta mig einsamall,“ skrifar Sævar.

Því næst lýsir Sævar framlagi sínu til samfélagsins. Hann segist hafa gefið út plötur, skipulagt viðburði, gefið út ljóðabók, verið ritstjóri tímarits og starfað sem markaðs­stjóri sprota­fyrirtækis.

Hefur elskað og hatað

Bréf Sævars til Jóhannesar Hauks hljómar á köflum eins og rapplag. „Hef ferðast um veröldina þvera og endilanga, umgengist róna og hefðar­fólk, tekið meira dóp en þú ímyndaðir þér að hafa tekið í Svartur á leik. Hugleitt í fleiri klukku­stundir en flestir eyða fyrir framan sjón­varpið. Dílað við fleiri vandamál en heróín­sali. Ég get talað flesta undir borðið um heimspeki­stefnur, hugvísindi, málvísindi, sálfræði, trúar­brögð, stefnur og strauma í samfélags­hugmyndum. Tussufær í öðrum umræðu­efnum líka. Allt þetta hef ég gert í skugga flókinnar áfalla­streiturösk­unnar eftir æsku sem þú getur ekki gert þér í hugarlund en getur lesið um í fyrstu bókinni minni sem ég gaf sjálfstætt út fyrir jól. [...] Flest allt sem ég hef gert hefur verið einka­framtak og ég er sjálf­lærður að öllu leyti. Ég hef lifað. Brunnið. Elskað og hatað,“ skrifar Sævar.

„Ég hef lifað. Brunnið. Elskað og hatað.“

Segist ekki vera aðgerðarsinni

Sævar segir að sú ákvörðun hans að mæta ekki í réttarsal þýði ekki að hann sé aðgerðar­sinni. „Ég er ekki hópur af hass­reykinga­mönnum. Þetta er minn málflutningur og kemur því bara ekkert við hvað hópar ókunnugs fólks eru að gera. Þetta „væl“ snýst ekki um hvort það sé rétt að reykja kannabis eða ekki. Þetta snýst ekki um að ég sé sé eitthvað sérstak­lega harður aðgerða­sinni fyrir málstaðnum að lögleiða skuli kannabis. Þetta snýst ekki um persónulegar skoðanir fólks á því hvort sé betra að vera edrú eða ekki.

Þetta snýst um að enginn ætti að hafa vald til að segja þér hvernig þú átt að haga lífi þínu. Ríkið eða önnur bákn eru ekki heilög, þau hafa ekki fyrir eitthvað náttúru­lögmál, rétt á því að stýra hvað þú setur ofan í þig, ryðjast inn á heimili okkar, hlera símanna okkar, fylgjast með ferðum okkar eða athöfnum, stjórna mannlegum samskiptum okkar, viðskiptum eða samfélags­legum framkvæmdum einstaklinga,“ skrifar Sævar.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár