Einu lagabreytingarnar vegna orkupakkans varða sjálfstæði og hert eftirlit Orkustofnunar

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir mælti fyrir frum­varpi vegna þriðja orku­pakk­ans í gær­kvöldi.

Einu laga­breyt­ing­arnar sem þriðji orku­pakk­inn kallar á hér­lendis eru breyt­ingar er varða sjálf­stæði Orku­stofn­unar við fram­kvæmd raf­orku­eft­ir­lits og auknar vald­heim­ildir vegna eft­ir­lits­ins. 

Ísland mun áfram njóta und­an­þágu frá ákvæðum um aðskilnað flutn­ings­fyr­ir­tækja frá fram­leiðslu- og sölu­fyr­ir­tækjum. Þannig verður starf­semi Lands­nets ekki raskað. Þá munu ákvæði þriðja orku­pakka ESB um grunn­virki á borð við sæstreng ekki eiga við á Íslandi, enda verða regl­urnar inn­leiddar með laga­legum fyr­ir­vara um að eng­inn sæstrengur verði lagður nema að und­an­geng­inni end­ur­skoðun á laga­grund­velli reglu­gerð­ar­innar og sér­stöku mati á því hvort inn­leið­ingin stand­ist stjórn­ar­skrá. 

Í frum­varpi sem Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, mælti fyrir í gær­kvöldi vegna inn­leið­ingar þriðja orku­pakk­ans er skerpt á hlut­verki Orku­stofn­unar og mælt fyrir um sjálf­stæði stofn­un­ar­innar við eft­ir­lit með aðilum á raf­orku­mark­aði. Í slíku sjálf­stæði felst ekki aðeins sjálf­stæði gagn­vart raf­orku­fyr­ir­tækjum heldur einnig gagn­vart stjórn­völdum.

Þá eru Orku­stofnun falin aukin úrræði til að fram­fylgja lög­unum, svo sem heim­ild til að áminna rekstr­ar­að­ila og leggja á stjórn­valds­sektir, auk þess sem gjaldið sem stendur undir kostn­aði við eft­ir­litið er hækkað. 

Gert er ráð fyrir að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna auk­inna lög­bund­inna verk­efna raf­orku­eft­ir­lits Orku­stofn­unar – meðal ann­ars vegna þátt­töku í ACER, Sam­starfs­stofnun eft­ir­lits­að­ila á orku­mark­aði – auk­ist um 49 millj­ónir króna árið 2019 en að tekjur rík­is­sjóðs auk­ist um 47 millj­ónir frá og með 2020 vegna hækk­unar á raf­orku­eft­ir­lits­gjald­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár