Mið­flokks­menn vitnuðu óspart í lög­fræðinga sem lögðu blessun sína yfir orku­pakka­leið ríkis­stjórnarinnar

Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, var spurður hvort hann væri ekki læs. „Er búið að afnema álits­gerð Stefáns Más Stef­áns­sonar og Friðriks Árna Frið­riks­sonar?“ kall­aði svo Ólafur þegar utan­rík­is­ráð­herra vís­aði í álits­gerð lög­fræð­ing­anna.

Þingmenn Mið­flokks­ins vitn­uðu óspart í álits­gerð tveggja lög­fræð­inga sem hafa lagt blessun sína yfir þá leið sem rík­is­stjórnin leggur til að farin verði við inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans þegar rætt var um málið á Alþingi í gær.

Ólafur Ísleifs­son og Una María Ósk­ars­dóttir, þing­maður og vara­þing­kona Mið­flokks­ins, byggðu nær allan sinn mál­flutn­ing á ein­stökum atriðum sem fram koma í álits­gerð Friðriks Árna Frið­riks­sonar Hirst og Stefáns Más Stef­áns­sonar um stjórn­skipu­leg álita­mál tengd fram­sali rík­is­valds til stofn­ana ESB og EFTA vegna þriðja orku­pakk­ans. Lögðu Mið­flokks­menn áherslu á að lög­fræð­ing­arnir hefðu lýst alvar­legum efa­semdum um að fyr­ir­hugað fram­sal rík­is­valds rúm­að­ist innan ákvæða stjórn­ar­skrár­innar.

Það var ekki fyrr en seig á seinni hluta umræð­unnar sem þing­menn­irnir virt­ust átta sig á því að það er einmitt þessi sama álits­gerð sem liggur til grund­vallar þeirri leið sem rík­is­stjórnin hefur kosið að fara við inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans, þ.e. að inn­leiða hann í íslenskan rétt með laga­legum fyr­ir­vara um að ákvæði um grunn­virki yfir landa­mæri, t.d. 8. gr. reglu­gerðar nr. 713/2009, öðlist ekki gildi, enda sé slíkum grunn­virkjum ekki fyrir að fara á Íslandi.

Fjallað er með ítar­legum hætti um umræddan fyr­ir­vara og ástæð­urnar að baki honum í grein­ar­gerð sem fylgir þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni sem Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra mælti fyrir á Alþingi í gær.

Mál­flutn­ingur Mið­flokks­manna vakti nokkra furðu og hneykslun í þing­sal. Þannig var hlegið og kallað fram í fyrir Ólafi Ísleifs­syni: „Ertu læs?“ 

„Er búið að afnema álits­gerð Stefáns Más Stef­áns­sonar og Friðriks Árna Frið­riks­sonar?“

Þegar utan­rík­is­ráð­herra benti á að rík­is­stjórnin hefði ákveðið að fylgja ráð­legg­ingum þeirra tveggja lög­fræð­inga sem hefðu haft lýst mestum áhyggjum af þeim þætti þriðja orku­pakk­ans er lýtur að fram­sals­heim­ildum til alþjóð­legra stofn­ana kall­aði Ólafur: „Er hún í gögnum máls­ins? Er búið að afnema álits­gerð Stefáns Más Stef­áns­sonar og Friðriks Árna Frið­riks­sonar?“ 

Una María, flokks­systir Ólafs, steig skömmu síðar í ræðu­stól og gagn­rýndi þing­heim fyrir að hafa sýnt Ólafi Ísleifs­syni óvirð­ingu þegar hann lýsti skoð­unum sínum.

Byggði ræða Unu Maríu einnig nær alfarið á til­vitn­unum í álits­gerð Stefáns Más og Friðriks Árna án þess að vikið væri að þeirri lausn sem þeir leggja til í nið­ur­stöðukafla álits­gerðar sinnar og rík­is­stjórnin ákvað að byggja á við inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans.

„Með­al­að­ilar sem eru að efast um þetta eru menn eins og Frosti Sig­ur­jóns­son, Guðni Ágústs­son, Haraldur Ólafsson, Jón Baldvin Hanni­bals­son, Hjör­leifur Gutt­orms­son“

Þor­grímur Sig­munds­son, sem einnig er vara­þing­maður Mið­flokks­ins, lagði áherslu á að stjórn­ar­skráin yrði að njóta vafans í mál­inu. „Ég nefni hér bara, til þess að það komi fram hér, að með­al­að­ilar sem eru að efast um þetta eru menn eins og Frosti Sig­ur­jóns­son, Guðni Ágústs­son, Haraldur Ólafsson, Jón Baldvin Hanni­bals­son, Hjör­leifur Gutt­orms­son,“ sagði hann. „Mér þykir bara eðli­legt á meðan að menn sem hafa mikla reynslu af störfum fyrir Alþingi Íslend­inga og við laga­setn­ingar og við þings­á­lykt­un­ar­til­lögur, þegar þeir hafa uppi svona miklar efa­semdir, þá finnst mér eðli­legt að við hlustum.“ 

Í álits­gerð Stefáns Más og Friðriks Árna eru nefndar tvær mögu­legar leiðir í orku­pakka­mál­inu til að tryggja að ekki verði brotið gegn stjórn­ar­skrá.

„Ein möguleg lausn gæti falist í því að Ísland fari fram á und­anþágur frá reglu­gerðum nr. 713/2009 og 714/2009 í heild, m.a. á þeirri for­sendu að hér á landi fari ekki fram raf­orku­við­skipti milli landa, og eigi fyrr­greindar reglu­gerðir því ekki við um aðstæður hér á landi. Kost­ur­inn við þessa aðferð er að hún er tiltölulega einföld í fram­kvæmd og mætti segja að EES/EFTA-ríkin töluðu einum rómi efslíkar und­anþágur fyrir Ísland yrðu sam­þykktar,“ segja höf­und­arnir.

Hinni leið­inni, sem rík­is­stjórnin hefur kosið að fara, er lýst með eft­ir­far­andi hætti: „Þriðji orku­pakk­inn verði inn­leiddur í íslenskan rétt en með laga­legum fyr­ir­vara um að ákvæði hans um grunn­virki yfir landa­mæri, t.d. 8. gr. reglu­gerðar nr. 713/2009, öðlist ekki gildi, enda er slíkum grunn­virkjum ekki fyrir að fara hér á landi. Grunn­for­senda þess­arar lausnar væri þá sú að þriðji orku­pakk­inn leggi ekki skyldur á Ísland til að koma á fót grunn­virkjum yfir landa­mæri, heldur sé ákvörðun um það alfarið á for­ræði Íslands. Ef Ísland tæki ákvörðun um að leggja grunn­virki yfir landa­mæri, yrðu ákvæði þriðja orku­pakk­ans um grunn­virki yfir landa­mæri tekin að nýju til skoð­unar og þá m.a. með til­liti til þess hvort þau samrýmist stjórnar­skránni.“ Taka höf­undar fram að þessi lausn sé ekki galla­laus.

„Þetta er önnur þeirra leiða sem lögð var til í áliti okkar Friðriks og að okkar mati er upp­taka og inn­leið­ing gerð­ar­innar með þessum hætti heimil sam­kvæmt stjórn­ar­skrá enda er laga­legur fyr­ir­vari um að þessi til­teknu ákvæði komi ekki til fram­kvæmda fyrr en laga­grund­völl­ur­inn, þar með talið stjórn­skip­un­ar­vand­inn, hefur verið tek­inn til end­ur­skoð­unar á Alþingi,“ segir Stefán Már í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef Stjórn­ar­ráðs­ins þann 22. mars eftir að rík­is­stjórnin sam­þykkti að leggja þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una um þriðja orku­pakk­ann fyrir Alþingi.

Grein­inni hefur verið breytt og til­vitn­unum bætt inn í hana frá því hún birt­ist fyrst.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár