Krafist óháðrar og opinberrar rannsóknar

Lands­samband veiði­félaga hefur farið fram á það við bæði sjávar­útvegs­ráðherra og umhverfis­ráðherra að fram fari óháð opinber rannsókn á því hvers vegna og hvernig regnboga­silungur hafi sloppið í miklu magni á Vestfjörðum sem leitt hefur til þess að regnboga­silungur hefur veiðist um allt norðan- og vestan­vert land síðustu vikur og mánuði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lands­sambandinu. „Staðfest hefur verið að regnboga­silungur hefur veiðst í ám við Húnaflóa, í ám á Vestfjörðum og allt suður til Faxaflóa, í Vatns­dalsá, Haffjarðará, Hítará á Mýrum auk fleiri vatna­svæða og það í nokkru magni. Engu að síður hefur ekkert fiskeldis­fyrirtæki tilkynnt um slysa­sleppingar úr sjókvíaeldi sínu, sem fyrir­tækjunum er þó skylt að gera lögum samkvæmt,“ segir í tilkynningunni.

Er þess krafist að stjórn­völd láti fara fram óháða og opinbera rannsókn á málinu og jafnframt gerir Lands­sambandið kröfu um að skoðað verði hvort eftirlit með starfsemi sjókvíaeldis­fyrirtækja sé fullnægjandi og standist kröfur.

„Ljóst er að um umhverfis­slys er að ræða og útbreiðsla regnboga­silungs um allt norðan – og vestan­vert land er einungis fyrirboði annars umhverfis­slyss sem verði með vaxandi laxeldi í sjókvím. Slíkt umhverfis­slys er óafturkræft og því mikilvægt að tekið sé í taumana strax,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár